26.04.1938
Neðri deild: 54. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 899 í B-deild Alþingistíðinda. (1333)

95. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

*Thor Thors:

Ég skal vera fáorður, enda er næsta þýðingarlítið að tala á þessum fundi, þar sem aðeins örfáir þm. eru viðstaddir.

Ég hefi í rauninni fáu að svara hv. þm. Barð. öðru en því, að mótmæli hans gegn till. okkar voru æði veigalítil yfirleitt, og mér heyrðist á honum, að þau væru frekar gerð af skyldu en sannfæringu. Ég skil það á þann veg, að það sé fast um þetta mál samið milli Alþfl. og Framsfl., að jafnvel þýðingarlitlar leiðréttingar megi ekki komast að.

Hv. þm. N.-Ísf., sem hér talaði æðilangt mál, vék að sögu Sjálfstfl. á sviði þessara málefna, og virtist honum hún ekki vera sem fegurst. Hann byrjaði að vitna í 10 ára gömul ummæli eftir látinn heiðursmann. Það hefir stundum verið talað um skyldur manna, sem þættust kunna almenna mannasiði, um að leyfa mönnum að vera í friði í gröfinni. Það hefir verið regla, sem almennt hefir verið viðurkennd af mönnum, sem hafa viljað láta líta svo út sem þeir kynnu almenna mannasiði. En það, sem þessum hv. þm. fannst svo svívirðilegt í fari þessa látna heiðursmanns, var, að hann hér á þingi flutti frv. um gerðardóm í vinnudeilum. Hann var þar ekki einn að verki, heldur voru það nokkrir framsóknarmenn, sem fluttu þetta frv. með honum, þar á meðal hæstv. forseti þessarar d., sem þá átti sæti á þingi. En það hafa skeð þau undur á þessu þingi, að samstarfsflokkur þessa hv. þm. hefir flutt frv. um gerðardóm í vinnudeilum, sem náð hefir fram að ganga. Og þetta var ekki meiri sök en það, að alþýðuflokksmennirnir hér á þingi skriðu í sængina hjá flokknum rétt á eftir og báðu um að mega styðja þann forsrh. sem stjórnarherra, sem stóð fyrir þessu máli. Afstaða Alþfl., sem jafnan hefir haldið því fram, að samningsréttur verkalýðsins væri heilagur, var ekki merkilegri en það, að þeir vildu einnig lögfesta kaup á togurum, því að þeir héldu, að með því gætu þeir keypt sér frið í stjórnarsamvinnu við Framsfl.

En snertandi afstöðu Sjálfstfl., þá sagði þessi hv. þm., að þegar við hefðum séð, að við höfðum ekki styrk til að koma því illa fram, þá hefðum við álitið það styrkleika fyrir okkur að flytja frv., sem byggðist á því, sem sósíalistar hafa í l. á Norðurlöndum. Það er alltaf styrkur fyrir flokk að flytja góð mál. En það var ekki einu sinni svo, að Alþfl. áliti þetta frv. okkar þarft og gott mál, því að fyrst þegar það var fram borið, voru alþýðuflokksmennirnir með stöðug ókvæðisorð í garð þess og kölluðu þetta frv. þrælalög og öðrum illum nöfnum.

Hann sagði, að fylgi okkar við þetta frv. byggðist á því, að við værum sigraðir menn. Við höfum látið þess getið alltaf, þegar við höfum flutt okkar frv. og talað fyrir því, að við værum reiðubúnir til að taka á móti öllum skynsamlegum brtt., sem fram kynnu að koma við það.

Okkar frv. var byggt á gildandi löggjöf um þetta efni á Norðurlöndum, ekki á því versta, sem til var í hverju landi fyrir sig, heldur var í nærri hverju atriði farið meðalveg, svo að jafnvel þetta frv., sem sósíalistar nú loks hafa þorað að ljá fylgi sitt, gengur í sumum atriðum lengra en okkar frv. En úr því að hv. þm. fór að tala um sigraða menn, þá hlýt ég að koma að Alþfl. Þeir eru nú að glíma við að kveða niður þann draug, sem þeir sjálfir hafa vakið upp. Þeir gera það ekki af því, að þeir hafi réttan skilning á þessu máli, og ekki af því, að þeir skilji, að það er til hagnaðar fyrir verkalýðinn að hafa fastar reglur í þessu máli. heldur af því, að þeir eru að kaupa sjálfum sér vinnufrið í stjórnaraðstöðunni nokkru lengur. Það er aðeins þess vegna, að þeir hafa látið kúgast til þess að fylgja þessu máli, sem þeir ár eftir ár hafa barizt gegn. Það er von, að hv. þm. tali um sigraða menn. Það kemst enginn hjá því, sem kemur hér á þing og fylgist eitthvað með í gangi mála, að taka eftir því, hversu gersigraðir þessir sjömenningar eru, sem telja sig Alþfl. Það hefir gripið þá slíkur ótti við hv. 3. þm. Reykv., að það eru ósköp að sjá þessa menn. Það er eins og þeir séu myrkfælnir um hábjartan daginn og viti ekki, hvort þeir eru sjálfir lífs eða liðnir. Afstaða þeirra og framkoma hér á þingi er slík, að maður getur kennt í brjósti um þá. Ég hefi aldrei getað hugsað mér öllu sorglegri tákn sigraðra manna heldur en þeirra sjömenninganna, sem telja sig Alþfl. Þessir sjömenningar hafa líka óljóst hugboð um það, að þeir séu gersigraðir menn. Ég veit, að það á eftir að koma svo greinilega í ljós, hversu gersigraðir þeir eru, að jafnvel þeir sjálfir verði að viðurkenna það. Ég er ekkert að gleðjast yfir þessu út af fyrir sig, því að það væri að sumu leyti sterkari aðstaðan í þjóðfélaginu, ef maður hefði hér rólegan sósíalistaflokk. En þessir sjömenningar hafa bara eyðilagt alla von um það, að rólegur sósialdemokratískur flokkur geti þrifizt hér á landi, því að svo aumleg hefir framkoma þeirra verið undanfarin ár og svo óttaslegnir hafa þeir verið við kommúnistana og svo rækilega hafa þeir látíð þann flokk teyma sig á asnaeyrunum, að þeir eiga sér ekki uppreisnarvon á næstu árum. Hv. þm. sagði, að við sjálfstæðismenn vildum reyna að hengja okkur aftan í meðnm. okkar í þessu máli. Við erum fylgjandi þessu máli og þess vegna höfum við gefið út sameiginlegt nál. En þessi hv. þm. sýndi þann barnaskap, að hann fékkst ekki til að skrifa undir nál., sem hann talaði fyrir, af því hann var hræddur við að hafa okkur sjálfstæðismenn á sama nál. Er þetta karlmannleg framkoma? Með þessari framkomu sinni varð þessi hv. þm. svo rækilega til athlægis, að ég held, að það sé leitun á slíku í allri þingsögunni. Flokksmenn hans voru svo að reyna að hugga hann og hughreysta og fá hann til að standa við þessa hreinu þingræðisskyldu sina, að skrifa undir það nál., sem hann var fylgjandi.

Ég held ég þurfi ekki að eyða miklu fleiri orðum að þessum sigraða manni. Ég mun á sínum tíma ekki verða verri í hans garð en það, að ég mun segja, þegar hann hverfur bráðlega héðan af Alþ.: Blessuð sé minning hans.

Út af því, sem fram kom í hans ræðu og fleiri hv. þm., að 16. gr. bannaði engin skyndiverkföll önnur en þau, sem stöfuðu af kaupágreiningi, þá hygg ég, að þetta sé ekki réttur skilningur, því að það stendur í gr.: „ákvörðun um kaup og kjör“. Orðin „kaup og kjör“ eru býsna víðtæk og geta náð til alls ágreinings um aðbúnað verkamanna við vinnu og fleira slíkt. Mþn., sem fjallaði um þetta mál, virðist hafa gert ráð fyrir þessu, því að í grg., sem fylgir þessu frv., stendur svo á bls. 74, með leyfi hæstv. forseta: „Vinnustöðvun verður að tilkynna gagnaðilja og sáttasemjara með a. m. k. í daga fyrirvara. Er þarna farið sem næst meðalvegi þess, sem í lögum er annarsstaðar á Norðurlöndum. Á þessum tíma er ætlazt til, að sáttatilraunir fari fram og að hægt sé að koma verðmætum þannig fyrir, að eigi séu þau í bráðri hættu fyrir eyðileggingu, er vinnustöðvun ber að höndum“.

Þetta virðist vera tvímælalaust hjá nefndinni, því hún talar almennt um vinnustöðvun og talar um, að hér sé um samskonar ákvæði að ræða eins og gilda hjá hinum Norðurlöndunum.

Ég ætla ekki að fara að svara kommúnistunum hér í d. frekar nú en endranær, því að það eina, sem ég get verið hv. þm. N.-Ísf. sammála um, er, að þeir eru yfirleitt ekki staraverðir í umr. um þingmál. En þegar þeir tala um okkur sjálfstæðismenn sem fulltrúa atvinnurekenda í landinu, þá vil ég aðeins benda þeim á. að þessi löggjöf er enginn sérstakur hagur fyrir atvinnurekendur í landinu. Hún skapar einmitt ný bönd á þá og takmarkar þeirra athafnafrelsi í þjóðfélaginu engu síður en verkamanna. En það þarf engan að undra, að þessir fulltrúar Stalins, sem einnig sækja um að gerast fulltrúar hjá British Petroleum undir forystu hv. 3. þm. Reykv., að þeir skilji það ekki, að það er hagur og vernd verkalýðsins, að reglur og skipulag gildi í þessum málum og það sé jafnan tryggt, að það séu verkamennirnir sjálfir, sem ráði því, hvort þeir ganga út í verkfali, en ekki einhverjir æsingafullir lýðskrumarar, sem hafi hag af því að koma á vinnustöðvunum, af því að þær færi meiri fátækt yfir þjóðfélagið og færi þá nær sínu marki, að koma á þeirri blóðugu byltingu, sem þeir nú stefna að.