26.04.1938
Neðri deild: 54. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 902 í B-deild Alþingistíðinda. (1334)
95. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
*Héðinn Valdimarsson:
Það eru aðallega tveir hv. þm., sem hafa svarað ræðu minni og ég þarf að svara. hv. þm. Barð. og hv. þm. N.-Ísf. Báðir þessir hv. þm. eiga það sameiginlegt, að hvorugur hefir nokkurn tíma komið nálægt vinnudeilum, og hafa litil persónuleg kynni haft af þeim skoðunum og hugsunarhætti, sem ríkir hjá verkamönnum um þau mál. Það frv., sem hér liggur fyrir, ber þess líka mikinn vott, sem og ræður þessara hv. þm.
Hv. þm. Barð. fór nokkuð fljótt yfir sögu og svaraði þeim brtt., sem hafa komið, litlu öðru en því, að það væri ekki hægt að setja lög um það t. d., að stéttarfélög hefðu rétt til að ákveða kjör ekki einungis sinna meðlima, heldur og annara starfsgreina. Hv. þm. kom ekki með nein rök fyrir því, hvers vegna ekki væri hægt að setja h um þetta, og ég get frætt hann á því, að annarsstaðar er það algild regla að setja l. um þessi atriði.
Hv. þm- N.-Ísf. var að reyna að snúa út úr því, sem ég sagði, og kvað mig hafa sagt, að aliur verkalýður væri nú kominn í verkalýðsfélög, en þetta er ekki rétt; ég sagði, að flestir verkamenn hér í Reykavík væru komnir í verkalýðsfélög, og því hefði þetta ekki svo mikið að segja fyrir félög óbreyttra verkamanna hér í bænum, en úti um land hefir það mjög mikið að segja. Ég álit að vísu, að verkalýðsfélögin og verkamannastéttin sjálf sé enn í tvísýnu um það, heyrt betra sé fyrir hana, að sett séu um þetta l. eða ekki, enda vitum við, að það er aldrei nema hluti meðlima verkalýðsfélaganna, sem aðallega bera félögin uppi og reyna að koma mönnum inn í félögin hver á sínu svæði.
Svör hv. þm. Barð. við sumum brtt. mínum voru aðeins þau, að þær væru svipaðar brtt. kommúnista, og væri það nægilegt gegn þeim. Þá kom hann með atriðið um, að atvinnurekendum og trúnaðarmönnum þeirra skyldi skylt að greiða ávísanir frá meðlimum stéttarfélaga upp í iðgjöld þeirra, og sagði, að svo væri nú. En ég verð að rengja þetta. Ég held, að það hafi ekki tekizt nema með góðfúslegu samkomulagi við suma atvinnurekendur; annars telja þeir víst vinnulaunin það friðhelg, að ekki komi til mála að greiða þau á þennan hátt. Þá kom hv. þm. Barð. með það, að ófært væri t. d., að ýmsir menningarsjóðir væru notaðir sem líknarstofnanir, og átti þar með við mína brtt. við 8. gr. Þetta sýnir meðal annars, hve illa hann hefir kynnt sér málið, sem hann er að tala um, og hve hann lætur sér brtt. í léttu rúmi liggja, af því að búið er að ákveða af honum og hans flokki að afgreiða málið svona, og þá duga engin rök.
Þá sagði hv. þm. N.-Ísf., að verkamenn mætti einu gilda, hvort þeir hefðu rétt til að hafa einn eða tvo trúnaðarmenn á vinnustöðunum. Það væru alltaf nægilega margir til. Nú á að skipa trúnaðarmann hvar sem 5 menn eða fleiri eru á einum vinnustað. Það má nærri geta, hvort af t. d. 5 mönnum eru tveir, sem eru alveg jafngóðir, og skil ég ekkert í hv. þm. að segja, að engu skipti fyrir verkalýðinn að fá sjálfir að velja sína trúnaðarmenn, en að atvinnurekandi hafi ekki leyfi til að velja á milli tveggja manna. — Hv. þm. Barð. sagði aðeins um gr., sem fjallar um trúnaðarmenn, að hún væri alveg fullnægjandi. Þetta er ekki rétt. Ekki einasta þarf að hafa trúnðarmann, heldur verður líka að vera, trygging fyrir því, að honum verði ekki sagt upp, nema dómstóll eða stéttarfélag samþykki, að maðurinn hafi gerzt brotlegur á einhvern hátt í starfi sinu fyrir sitt stéttarfélag. Hinsvegar gildir það sama og um flestar aðrar gr. frv., að ef á að vera nokkur meining í þessu, þá yrði að standa þar eitthvað því líkt sem er í brtt., en það hefir aldrei verið ætlun Framsfl. eða framsóknarmanna Alþfl., að neitt slíkt ákvæði kæmist inn í gr.
Þá kom hv. þm. Barð. með það, að það væri einkennileg lýðræðishugsjón að 50 menn af 2000 ættu að geta tekið ákvarðanir til að kúga hina félagsmennina til vinnustöðvunar. Ég veit ekki betur en að þetta sé sama lýðræðið og gildir alstaðar annarsstaðar í okkar þjóðfélagi, þar sem menn eiga kost á að skera úr málum með atkvgr., þar sem allir hafa aðgang að því að kjósa. Ég kom með ákvæði um það, hvað margir ættu að kjósa minnst, og því fleiri, sem greiða atkv., því meira öryggi er um, að raunverulegur vilji félagsmanna sjáist. Um allsherjaratkvæðagreiðslu er ekkert ákvæði um, hve margir þurfi að taka þátt í henni.
Hv. þm. Barð. sagði, og sama kom fram í ræðu hv. þm. N.-Ísf., að brtt. mín um 7 daga fyrirvarann væri raunverulega alveg það sama og þeir óskuðu eftir. Því geta þá ekki þessir hv. þm. og þeirra flokkur samþ. brtt. mína, sem hefir þegar verið samþ. í Dagsbrún og fleiri verkalýðsfélögum? Í frv. mþn. er orðalagið þannig. að bæði er talað um kaup og kjör, og orðið „kjör“ getur verið nokkuð víðtækt, svo að óhætt er að segja, að á hverju samningstímabili um kaup er einnig um að ræða margskonar samninga um kjör verkamanna.
Um atriðin í 30. gr. er ekki rétt að segja, að það séu aðeins lítilfjörlegar orðalagsbreytingar. Þar vil ég fá skýrt fram, hvort það er sáttasemjari einn, sem á að ráða þessum hlutum, eða hvort taka á tillit til annara aðilja. Ef það er skoðun hv. þm. Barð., að þetta séu aðeins lítilfjörlegar orðalagsbreytingar, þá væri rétt fyrir hann að samþ. þetta eins og það er í frv. Yfirleitt er það einkenni þessa frv., að þar eru notuð sem loðnust orðatiltæki, svo að hver fyrir sig, félagsdómur, Alþfl. og Framsfl. geti á einhvern hátt snúið l. sér í hag. Flokkarnir hafa hvor um sig útlistað þetta á fundum hjá sér, en hvernig verður það í framkvæmdinni? Ætli, að ekki rísi allmargar deilur út af því? En það ætti ekki út af fyrir sig að vera tilgangur þessara l., að orða þau þannig, að þau ein skapi deiluefni.
Þá talaði hv. þm. Barð. gegn því, að meiri hl. réði viðvíkjandi málamiðlunartill., og lýsti því yfir, að hann væri fallinn frá því að óska eftir, að samþ. yrði meirihluta ákvæði það, sem felst í frv. Svo virðist um önnur mál, að Framsfl. taki munninn allfullan, þegar hann talar um lýðræði. En þegar um mál verkalýðsins er að ræða, þá á lýðræði ekki að gilda. Viðvíkjandi allsherjaratkvæðagreiðslu er það að segja, að það er ekkert, sem knýr menn til að koma þangað, annað en vilji þeirra sjálfra. Það er jafnástæðulaust hjá hv. þm. Barð. að segja, að það nái engri átt að binda framburð miðlunartill. við tvö skipti, en svo er ekki, nema þegar annar aðili mótmælir.
Viðvíkjandi félagsdómnum virtist hv. þm. álíta tryggara, að hæstiréttur, sem að vísu er skipaður lögfræðingum, tilnefndi menn í dóminn, heldur en að aðiljar gerðu það sjálfir, en ég álít, að miklu betri skilningur sé fyrir hendi hjá þeim, sem vel eru inni í málinu, og með því, að þeir skipi dóminn, fáist þar miklu meira og betra jafnvægi en ella. En eins og ríkisstjórnin er skipuð nú, álítur Framsfl. betra fyrir hana, að hæstiréttur skipi í dóminn, og það er það, sem vakir fyrir hv. þm. Ég fyrir mitt leyti álít þennan hlutleysisvaðal framsóknarmanna og þetta, að vilja troða inn í dóminn mönnum, sem aldrei hafa kynnzt vinnudeilum, alls ekki góðan.
Þá eru álíka mikilvæg rök, sem hv. þm. færði fyrir því, að ekki skuli settar neinar reglur um það, hvernig vinnuveitendur hagi sinum atkvæðagreiðslum, svo að enginn maður fari með meira en eitt atkv., en að peningamagn hans ráði engu þar um. Rökin, sem hv. þm. færði fyrir sínu máli, voru þau, að engin ástæða væri til að skipta sér af því, hvernig atkvgr. atvinnurekenda færi fram. Því er þá ástæða til að lögfesta. að í atkvgr. verkalýðsins skuli meiri hl. atkv. ráða? Því á ekki að lögfesta sama lýðræði í atkvgr. atvinnurekenda og atkvgr. verkamanna? Þarf ég svo ekki að skipta mér meira af hv. þm. Barð., en mun snúa mér að hv. þm. N.-Ísf.
Sá hv. þm. talaði mest um það, sem hann hefir hvorki heyrt eða séð, og vitnaði í sífellu til sambandsþingsins, þar sem hann hefir aldrei komið nema sem gestur, sem kallaður hefir verið þangað í flýti, þegar átti að kljúfa flokkinn. Það munum við, sem sátum sambandsþing 1936, þar sem samþ. var álit viðvíkjandi vinnulöggjöf. að það, sem fyrir mönnum vakti þá, var ekki það. að þeir væru svo fíknir í vinnulöggjöf. Sambandsfulltrúar voru klofnir í tvennt, en menn óttuðust, að e. t. v. yrði samþ. löggjöf, sem yrði verkalýðnum óhagstæð. Því var ekki tilgangurinn, að samþ. yrði einhver vinnulöggjöf, heldur að sett yrði löggjöf, sem væri verkalýðnum hagstæð, og að það álit flokksins yrði látið í ljós, hvort sem nokkurt samkomulag næðist við Framsfl. eða ekki, en reyna átti að haga málinu þannig, að ekki væri loku skotið fyrir, að það samkomulag næðist. Nú hefir framsóknardeild Alþfl. reynt að snúa þessu áliti svo, að tilgangurinn hafi verið að samþ. þessa Framsfl.löggjöf, en það var aldrei meining fulltrúanna, sem sambandsþingið sátu. Hv. þm. sagði, að það yrði að taka tillit til þeirra sérstöku aðstöðu. sem hann og skoðanabræður hans í Alþfl. hefðu til þessa máls, þar sem tveir menn úr Alþfl. hefðu verið við samningu þessa frv. Hvort þessir menn hafa verið einn eða tveir, ætti ekki að geta breytt skoðunum flokksins. Ég veit, að annar þessara manna var að vísu lögfróður, en hann hafði aldrei komið nálægt verkalýðsfélögum og vinnudeilum, en hinn var allreyndur í þeim málum. Eftir að deilur hafa risið um þetta frv., hefir sá maðurinn, sem kunnugri var verkalýðsmálum, aldrei komið fram á neinum fundi, þar sem rætt hefir verið um þetta mál, og meira að segja í því félagi, sem hann er formaður í, þar hefir hann aldrei fengizt til að taka þetta mál á dagskrá, svo að eitthvað virðist vera bogið við þetta. Hinn maðurinn hefir aftur á móti verið sendur eins og þeytispjald í allar áttir til að verja frv.
Þá er næsta atriði það, að þingfl. sá, sem hér er kallaður Alþfl., og meiri hl. sambandsstjórnar virðast ekki líta á Alþfl. sem formælanda verkalýðsins. Þótt Alþfl. styðji ríkisstj., þá er það ekkert eilífðarbandalag og hlýtur að vera komið undir þeim málum, sem ríkisstj. vill koma fram, svo að litið sé á löggjafarstarfsemina frá málefnalegu sjónarmiði, en ekki út frá því, að Alþfl. styður ríkisstj. og því verði að koma hennar málum fram.
Það er engu líkara en hv. þm. væri genginn í Framsfl. og væri kominn þar undir flokksaga. Ég hélt, að hann væri ekki svo langt kominn, þótt ég viti, að hann er á góðri leið með að komast þangað.
Að lokum segir hv. þm., að eftir atvikum sætti þeir sig við þetta frv. og muni ekki koma með brtt., af því að ekki séu líkur til, að þær fáist samþ. Ég veit ekki betur en að Alþfl. hafi hvað eftir annað komið fram með brtt. hér á Alþ. til að sýna stefnu flokksins. En nú sé ég ekki, að gerð hafi verið nein tilraun til að láta annað koma fram en að flokkurinn væri algerlega ánægður með frv.
Hv. þm. minntist á nokkrar brtt., sem ég hefi borið fram, og vildi, að ég tæki þær aftur til 3. umr. Brtt. hafa legið hér fyrir alllengi og nægur tími hefir verið til að athuga þær í hv. n., — og hvaða ástæða er fyrir hv. þm. að vilja flytja þessar brtt. inn á fund í n., ef hann hefir engan vilja á að breyta frv.? Atkvgr. mun sýna. hvort þær verða samþ. eða ekki, og það er nóg.
Ég skil ekki þann hugsunarhátt, sem virðist liggja bak við stefnu Alþfl., sem virðist vera sú, að ef hann samþ. ekki eitt eða annað með Framsfl., þá muni Framsfl. samþ. eitthvað ennþá verra með Sjálfstfl. Skyldi Framsfl. þá ekki hafa neina skoðun í þessu máli? Ef ekki er verið að ræða hér fyrst og fremst um málefnin, því eru þá þessir flokkar saman í stjórnarsamsteypu? Er það betra fyrir Alþfl. að samþ. eitthvað með Framsfl., sem hann er óánægður með, heldur en að láta Framsfl. og Sjálfstfl. samþ. eitthvað annað? Mér virðist afstaða hv. þm. ekki ósvipuð sögunni um refinn, sem missti rófu sína í gildru og vildi eftir það segja, að nú væri hann hvað fegurstur og fríðastur, og helzt ættu allir að vera rófulausir eins og hann. Þótt hv. þm. segist ekki vera ánægður með frv., þá fer hann þannig með allar brtt., að hann minnist sem minnst á þær eða gerir lítið úr þeim.
Þá tók hv. þm. að víta mína persónulegu afstöðu til þessa máls. Ég hefi leitað umsagna manna og till. og rætt við þá till. þeirra og aths., og ég hefi fengið nokkra vissu um það, að menn eru því ekki hlynntir yfirleitt. Ég veit líka. að hv. þm. er hvorki svo minnislaus eða óskynsamur, að hann viti ekki, að hann talar á móti betri vitund í þessu máli, því að hann man, að þegar Framsfl. kom fram með sitt frv. um þetta efni í fyrra, þá ákvað Alþfl. að koma einnig fram með sitt frv. til að sýna stefnu sína, þótt útlit væri fyrir, að ætti að knýja frv. Framsfl. fram. En þá hefðum við Alþfl.-menn átt að segja: „Ef þið framsóknarmenn knýið fram þetta frv., þá skulum við koma með okkar frv.“. Þá var ekki búið að sýna Alþfl., hvernig frv. Framsfl. væri. Ég gekk út frá því, að það væri stefna verklýðsfélaganna, ef frv. af þessu tagi ætti að koma fram, að reyna það. Sú óþolinmæði, sem hv. þm. N. Ísf. var að tala um, var í því fólgin, að ég vildi, að Alþfl. sýndi stefnu í þessu máli, sem hann virðist ekki nú sýna, heldur fallast á kröfur Framsfl. um að hinda verklýðsfélögin. Ennfremur játar hv. þm. N.-Ísf., að hægt væri að gera margvíslegar bætur á þessu máli, en hann hefir látið vera að bera fram brtt. um þessi efni. Þá getur hann um, að það hafi verið leitað til mín viðvíkjandi till. um þetta frv. Ég veit ekki, hvaðan þessi hv. þm. hefir þetta slúður. Annar maður, lögfræðingurinn (Guðmundur Í. Guðmundsson), sem vann að þessu máli, kom á skrifstofuna til mín, rétt þegar hann var að byrja að fást við frv., sat þar eitthvað um fjórðung stundar og spurði, hvaða till. ég hefði. Ekki eitt einasta skrifað orð var þá komið í frv. Meira var málið ekki borið undir mig.
Hann sagði, að við hefðum setið við sama borð með þetta frv. fyrir framan okkur. En það er stutt frá að segja, að okkar frv. var aldrei tekið rækilega til meðferðar, hvorki í flokksstj. né á annan hátt. fyrr en það var sent með mestu leynd, þegar búið var að ljúka við það. án þess að það hafi verið borið undir flokksstj. sem heild, á sama tíma sem meiri hl. sambandsstj. er að sprengja Alþfl. Þegar málið var þannig undirbúið, að svo virðist sem talsverður hluti flokksstj. hafi ekki vitað, hvernig það var, var alls ekki við því að búast, að við gætum komið með aths. Þær verða þá að koma á eftir, þegar frv. liggur fyrir.
Annars vil ég, úr því að komið er með þetta slúður hér á Alþ., nefna a. m. k. 3–4 atriði, sem ég veit, að hv. þm. N.-Ísf. myndi telja aðalatriði. Þá kem ég að þessu lauslega samtali, sem ég gat um áðan. Þar kom ég með athugasemdir. sem ekki hata verið teknar til greina í frv., en eru í mínum brtt., og viðvíkjandi því. sem hann segir um Framsfl. og afstöðuna til verkfalla, þá vil ég segja það fyrir mitt leyti, að mér hefir aldrei komið til hugar. að vist væri um, að Alþfl. næði samkomulagi við Framsfl. um þetta mál. hvert á móti bjóst ég við fyrir áramótin síðustu, að ekkert samkomulag næðist við Framsfl. á þessu þingi, af því að þá voru ýms mál komin upp, sem þessir flokkar voru ekki ásáttir um, 0g ég gerði ekki ráð fyrir, að Alþfl. gengi svo undir jarðarmen með Framsfl. eins og hv. þm. N.-Ísf. virðist hafa gert með ljúfu geði. Það er þess vegna sagt algerlega móti befri vitund hjá hv. þm. N.-Ísf., að afstaða mín til þessa máls markist vegna þeirrar deilu, sem er innan Alþfl. Ég hygg, að hún hefði í öllum aðalatriðum verið sú sama. þótt mér sé nú ljósara en annars hefði orðið, af hvaða ástæðu þessi aðferð er höfð við vinnulöggjöfina, sem ég hefi séð hjá sumum mönnum innan Alþfl.
Þá kom hv. þm. N.-Ísf. með það, að það væri mjög einkennilegt, að ef eitthvað jákvætt væri í frv., þá segði ég. að það væri kannske gott, en óþarft. en ef eitthvað væri neikvætt, héldi ég því fram, að verklýðsfélögin væru ekki nógu sterk til að standast það. Þetta er eðlilegt, vegna þess að hið jákvæða er það, sem einhverntíma hefir verið sett í l. eða hvort sem er er í hefð, og þá er ekki nauðsynlegt að setja ákvæði um það. Ég talaði um hina raunverulegu notkun laganna. En sé eitthvað neikvætt í þessum 1.. þá er það yfirleitt þannig, að það er á móti verklýðsfélögunum. Það er allt annað, hvort eitthvað er frjálst, eins og nú er, eða hvort búið er að fastbinda það með l.
Þá kemur hv. þm. N.-Ísf. með það, að það hafi verið gerðar kröfur um, að verklýðsfélög gætu sett kauptaxta, en þeim kröfum hafi ekki orðið framgengt vegna þess, að þá væri heimtað, að atvinnurekendur gætu sett kauptaxta á móti- Þetta eru algerlega nýjar upplýsingar, því að sá maður, sem mest hefir haft þessi mál til meðferðar, Guðmundur Í. Guðmundsson lögfræðingur, er var í mþn., sem undirbjó þetta mál, hélt því aftur á móti fram af hálfu þeirra manna innan Alþfl., sem höfðu verið að berjast fyrir því, að koma fram vinnulöggjöf, að slíkt væri óþarfi. Hv. þm. N.- Ísf. gengur ekki svo langt, og ég hefi ekki orðið var við það hjá öðrum þm. hér. En viðvíkjandi því, að kröfur um það, að kauptaxti frá atvinnurekendum gilti á sama hátt og kauptaxti verklýðsfélaganna, hefðu komið fram, þá sé ég ekkert athugavert við það, þótt kauptaxti gilti jafnt og samningur. Það hefir líka verið venja á miklu fleiri stöðum en hjá verklýðsfélögum; slíkt hefir átt sér stað víða um landið, og er það þó a. m. k. betra en það að hafa alltaf skriflega samninga, því að það hefir sýnt sig þau árin, sem ég hefi starfað að þessum málum. að þá hafa mál verið leyst með kauptaxta, sem hefðu tekið miklu lengri tíma með samningum.
Þá kom hv. þm. N.-Ísf. með það, að ég hefði ekki fundið upp neina tryggingu fyrir sjóði verklýðsfélaganna. Það hefir ekki náðst samkomulag um þetta í n. Ég held, að það standi nokkurnveginn á sama, hvaðan það kemur, en eitt er vist, að hv. þm. N.-Ísf. hefir algerlega runnið á þessu. Hann hefir ekki komið með neina brtt. um það. (VJ: Brtt., sem ekki var hægt að koma í gegn). Kjósendur Alþfl. vilja kannske vita afstöðuna. þó að ekki sé unnt að koma till. fram.
Þá kom þessi hv. þm. með það, að það væri ekki grundvallarskilyrði að fá öryggi fyrir trúnaðarmennina, svo að þeim yrði ekki síðar sagt upp. Ég segi, hvaða bót er að því fyrir þá, ef þeir fengju ekki öryggi fyrir þeim. Eins og nú standa sakir. þá er hægt að skipa trúnaðarmenn. en bótin væri að fá öryggi fyrir þeim. Það er ekki nóg að fá loforð um, að ekki megi hafa áhrif á skoðanir manna, heldur þarf að vera um eitthvað raunverulegt að ræða, og búa svo um hnútana, að eitthvað meira þurfi til til að koma trúnaðarmanni burt heldur en almennum manni.
Þá kemur þessi hv. þm. með það viðvíkjandi ákvæðinn um 20% fundarsókn, að það væri yfirboð, ef einhver kæmi með 15%. Þetta sýnir vel, hve hann er ókunnugur lögum verklýðsfélaganna, því að slíkt ákvæði er mjög algengt í verklýðsfélögum, og þykir slíkt gott í stj. verklýðsfélaga, ef fundarsókn nær því. Annars er í allsherjaratkvgr. engin trygging fyrir meiri atkvæðafjölda, heldur aðeins fyrir því, að atkvgr. taki lengri tíma.
Þessi hv. þm. kemur einnig með það, að sú túlkun, sem ég hefi gert á þessari löggjöf, sé fjandsamleg verklýðssamtökunum, en það er þvert á móti. Ég vil fá ákveðna skilgreining á því, hvað hinar ýmsu loðmollulegu gr. þessa frv. þýða. Ég vil fá úr þeim skorið þannig, að enginn vafi geti leikið á. Hægri menn Alþfl. vilja fá loðmollulegu löggjöf samþ. hér á Alþ. í því trausti, að henni verði framfylgt á hinn hagkvæmasta hátt fyrir verklýðsfélögin. En það hefir oft farið svo, að ef eitthvað vinnst á fyrir verkalýðinn, er því bara breytt aftur með löggjöf. Þess vegna er bezt að hafa það hreint, hvað menn meina með löggjöfinni, þegar hún er sett.
Hv. þm. N.-Ísf. vill gera trúnaðarmannaráðið eins og stj. félagsins. Hann segir, að það sé ekki satt. hvað það sé mannmargt. En hvaða ástæða er til að leyfa ekki stjórnum félaganna að hafa þann rétt, sem verklýðsfélögin hafa haft, frá því þau voru stofnuð? Álítur ekki þessi hv. þm., að það sé verið að reyna að ganga á snið við lögin með því að leggja þann skilning í trúnaðarmannaráð, sem hér er gert í þessu frv., þar sem bæði er talað um stj. og trúnaðarmannaráð, sérstaklega þegar þess er gætt, að það eina trúnaðarmannaráð, sem nú er til í verklýðsfélagsskap, er fjölmennt ráð?
Viðvíkjandi 10. brtt. við þetta frv., sem hv. þm. N.-Ísf. telur óþarfa, vil ég aðeins endurtaka það, sem hv. þm. Barð. hefir sagt um það mál. En hér er þrennskonar túlkun á þessu frv., og því, sem frsm. hefir sagt, hefir verið mótmælt af öðrum hér í d.
Þá gat hv. þm. N.-Ísf. þess, að sú regla, sem ætlazt væri til, að yrði notuð um miðlunartill. sáttasemjara, hefði aldrei úrslitaþýðingu. Í skýrslu, sem fylgir nál. frá mþn., er hafði þetta mál til meðferðar, er gefið nokkurt yfirlit um úrslit atkvgr. um miðlunartill. sáttasemjara. Þar eru aðeins tilgreind 6 tilfelli, og yfirleitt snúast þau öll um eitt einasta félag hér í Reykjavík. Það er heldur fátæklegt að hugsa sér, að ekki geti komið fyrir neitt öðruvísi tilfelli en þau, sem þar eru nefnd. Úr því að þessi regla hefir enga úrslitaþýðingu, hvers vegna á þá að setja hana inn í þessa löggjöf, en ekki hafa venjulegan meiri hluta? Hvers vegna á að banna verklýðsfélögum að hafa lýðræði um sinn eigin félagsskap?
Viðvíkjandi ákvæðunum um félagsdóm vildi ég benda á það, sem ég hefi áður sagt. Það er ef til vill sterkt atriði frá sjónarmiði hv. þm. N.-Ísf., að eins og nú standa sakir, eru líkur til þess, að meiri hl. félagsdóms verði skipaður af Framsfl. Ég get ekki trúað því, að betri árangur náist af þessu heldur en ef félagsdómurinn yrði skipaður eins og ég hefi gert ráð fyrir.
Þá fór þessi hv. þm. út í pólitísk verkföll og vildi halda því fram, að þau væru uppreisn, en ekki verkföll. Hv. þm. Barð. talaði um benzínverkfallið, og að ég hefði verið allra manna æstastur gegn því. Ég áleit, að eins og þá stóðu sakir, hefði þingið gert rétt í að samþ. þau l., sem það gerði, og þess vegna átti þingið ekki að láta undan í málinu. En hvað hitt snertir aftur á móti, að hafa afskipti af verkfallinn, var ég algerlega andvigur því, að það væri gert, og ég kom þar hvergi nálægt. Það er því hrein og bein fölsun staðreynda hjá hv. þm. Barð., að ég hafi á nokkurn hátt beitt mér gegn því verkfalli. Það. sem hv. þm. N.-Ísf. sagði viðvíkjandi uppreisn, er eins og hver önnur heimska. Hvaða uppreisn er það. þótt menn leggi niður vinnu? Hver á að skylda þá til að vinna og þræla, ef þeir sjálfir vilja það ekki? Er það ekki hinn frumstæðasti réttur hvers manns að ráða sjálfur svo litlu? Þetta er allt annað en að gera vopnaða uppreisn. Hv. þm. N.-Ísf. mætti muna eftir pólitísku verkföllunum. Ég ætla aðeins að benda á tvö tilfelli, þar sem pólitísk verkföll voru notuð af sósialistum í lýðræðisflokkum og höfðu þann árangur, sem a. m. k. frá okkar sjónarmiði er glæsilegur. Í öðru tilfellinu var það, þegar Stauning, forsrh. Dana, hindraði konunginn í því að halda áfram að skipta um stjórn, án þess að þingið væri rofið og fólkið fengi að láta í ljós sitt álit. Þetta var ekki nein uppreisn, en það var hótun um að leggja niður vinnu, hótun um pólitískt verkfall, og hún kom frá flokki, sem var ekki meira hraðfara en sósíaldemokratarnir dönsku. Hitt tilfellið var þegar Finnar fengu sina sjálfstjórn frá Rússum, en það varð með allsherjarverkfalli, án þess að nokkru blóði væri úthellt. Það var hin friðsamlegasta bylting, sem hægt er að fá, og þó fengu Finnar sitt takmarkaða lýðfrelsi. Ég skil ekki þann hugsunarhátt hjá þessum hv. þm., að annað eins og þetta sé uppreisn, sem eigi að berjast á móti, og Alþfl.-menn skuli telja sitt hlutverk að afmá slík réttindi og það einmitt hjá þessum mönnum. því að öðrum er ekki bannað það. Þá getur þessi hv. þm. um það, að mótmælaverkföll væru ekki bönnuð. Ef verkfalli væri beitt í því skyni að þvinga stjórnarvöldin, væri árangur þess ekki kominn undir því, til hvers væri ætlazt með verkfallinu, heldur því, hve lengi það stæði. Veit ekki þessi hv. þm. um greinarmuninn milli mótmælaverkfalla og almennra pólitískra verkfalla? Ég verð að segja það, að árangur verkfalla, sem gerð eru í því skyni að þvinga stjórnarvöldin, er ekki kominn undir því, hve lengi þau standa, heldur fer hann eftir því, hver tilgangur þeirra er.
Ég held, að hv. þm. N.-Ísf. geri alltof mikið úr mér, þar sem hann heldur, að ef ég hefði sömu pólitísku afstöðu og hann, hefði þetta allt gengið eins og í sögu í verklýðsfélögunum, og þau hefðu alstaðar samþ. þessa till. En þetta er algerlega rangt, þar sem þessi hv. þm. heldur, að deilan, sem nú er komin upp innan Alþfl., snúist aðeins um persónur eða slíkt. Þetta er hinn allra mesti misskilningur. Deilan snýst um mismunandi strauma innan verklýðshreyfingarinnar, og enginn skyldi ætla, þó að ég hefði látið þessi mál afskiptalaus, að þau hefðu ekki sætt sömu andúð sem raun er á orðin.
Ég vil geta þess í þessu sambandi, að þeir, sem vilja halda í núverandi stjórnarsamband, hvað sem það kostar og hvernig sem með Alþfl. og verkalýðinn kynni að verða farið, hafa gert það, sem þeir geta, til þess að koma fram þessari löggjöf óbreyttri. Þeir hafa notað erindreka Alþýðusambandsins og öll tæki, sem þeir hafa yfir að ráða í því skyni, að reyna að fá menn til þess að trúa því, að ekkert væri athugavert við þessa löggjöf. En þó að erindrekar Alþýðusambandsins hafi flutt þessa fregn um allt landið, þá hafa á mörgum stöðum komið fram mótmæli gegn þessari löggjöf, án þess að nokkur v æri sendur þangað. Það hafa risið upp svipuð mótmæli gegn þessu frv. eins og hér hafa verið birt í blöðunum.
Það, sem hv. þm. N. Ísf. segir um tölu þeirra félaga, sem hafi tekið afstöðu með, og hinna, sem eru á móti þessu frv., er alls ekki rétt. Ég hefi að vísu ekki tölurnar hjá mér, en ég man fyrir víst. að það eru miklu færri verklýðsfélög, sem hafa talið sig fylgja frv. óbreyttu, en hin, er vilja, að því verði breytt eða fellt. Næstum öll verklýðsfélög vilja, að því verði breytt. og flest mikið. — Þá segir þessi hv. þm., að það liggi ekki fyrir tölur um fylgið með og móti þessu frv. T. d. í Dagsbrún eru 200 atkv. talin með till. En atkvæðatalningunni var þannig háttað, að fyrst voru talin þau atkvæði, sem voru á móti, en öll önnur, eins þeirra sem ekki greiddu atkv., voru talin með. og þannig fengu þeir hátt á þriðja hundrað atkv. með till., en í rauninni voru það 50–60 menn. En vitanlega átti fyrst að leita meðatkvæða og síðan mótatkvæða. Þegar ekki er unnt að telja hendur, þá er talið út úr húsinu.
Annars vil ég benda hv. þm. N.-Ísf. á það, að rétt væri, að umsagnar aðilja yrði leitað um þetta mál á sama hátt og málum, sem snertu samvinnufélögin, var á sínum tíma vísað til samvinnufélaganna sjálfra til athugunar, og ekki gerð endanleg löggjöf um þau efni, fyrr en skýrt álit lá fyrir frá félögunum sjálfum, hvernig þau sættu sig við slík ákvæði.