30.04.1938
Neðri deild: 58. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 925 í B-deild Alþingistíðinda. (1343)

95. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

Frsm. (Bergur Jónsson):

Herra forseti! Góðir hlustendur! Í upphafi umr. um það frv., sem hér liggur fyrir, frv. um stéttarfélög og vinnudeilur, þykir mér rétt að varpa fram þessari spurningu: Er þann veg öðru visi högum háttað hér á Íslandi en í öðrum siðmenningarlöndum, að eigi sé ástæða til að lögleiða hér, eins og þar, vinnulöggjöf, þ. e. löggjöf, sem hafi að geyma ákveðnar reglur um það, á hvern hátt atvinnurekendur og verkamenn og aðrir launþegar skuli heyja deilur sínar um kaup og kjör, þar á meðal með verkföllum og verkbönnum, í þeim tilgangi, að sem minnst tjón hljótist af fyrir þjóðina og þar með eigi sízt fyrir deiluaðiljana sjálfa?

Ég hika ekki við að svara, að hér á landi sé fullkomlega jafnmikil ástæða til að reyna að koma á skynsamlegum og heillavænlegum leikreglum fyrir vinnudeilurnar, eins og þegar hefir verið gert í öllum helztu siðmenningarlöndum. Að vísu er nokkuð mikill hluti þjóðarinnar í sveitum, þar sem að mestu er rekinn einyrkjabúskapur, en meginþorri landsmanna býr nú í kaupstöðum og sjávarþorpum og skiptist þar í atvinnurekendur og launþega þeirra, við útgerðina, sem rekin er á botnvörpuskipum, línuveiðurum, vélskipum og vélbátum, við iðnaðinn, bæði síldar- og fiskiiðnaðinn, sem sífellt er í vesti, og við allskonar annan sívaxandi iðnað, við siglingarnar, sem ávallt eru að aukast, til annarra landa og með ströndum fram, og við margvíslegan annan atvinnurekstur, sem skapast af nauðsyni sambandi við aðalatvinnuvegina. Vinnuskiptingin er stöðugt að verða fjölþættari og margvíslegri, og þar með fylgir sköpun stærri og minni hagsmunastétta og hagsmunahópa, sem sameinast vegna sameiginlegra hagsmuna eftir samskonar eða líkum starfsgreinum, og dæmin eru deginum ljósari um hagsmunaárekstrana og vinnudeilurnar, bæði nú á liðandi stund og í fortiðinni á síðustu áratugum. Sú kenning, sem stundum hefir komið fram, og nú síðast við 2. umr. þessa máls hjá hv. 3. þm. Reykv., HV. að hér megi ekki lögleiða líkar eða samskonar reglur um vinnudeilur og gert hefir verið hjá stærri þjóðum, þar sem stóriðja sé rekin, hefir enga stoð í veruleikanum og virðist reist á neitun staðreyndanna, því í raun og veru eru langvarandi vinnudeilur og vinnustöðvanir enn hættulegri þessu litla þjóðfélagi en hinum stóru, því okkar litla þjóð á hvarvetna undir högg að sækja í viðskiptum sínum við aðrar þjóðir, hennar boði og banni hlítir engin þjóð. Hún verður yfirleitt að sætta sig við þá kosti, sem henni eru settir um markað og önnur þau viðskipti við aðrar þjóðir á þessum óvenjulegu erfiðleikatímum, sem er grundvöllurinn undir möguleikum hennar til að lifa að hætti menningarþjóða og siðfágaðra þjóða. Stöðvun í atvinnulífi hennar, og þá fyrst og fremst í framleiðslustarfinu og við flutning framleiðslu hennar til markaðslandanna, getur verið þjóð vorri margfalt hættulegri en samskonar stöðvun hjá ríkari og voldugri þjóðum. Auk þess hefir þjóð vor sérstöðu að því leyti, að hún hefir eigi aðeins lýst yfir ævarandi hlutleysi sínu í ófriði gagnvart öðrum þjóðum, heldur er hún líka óvopnuð lýðræðis- og friðarþjóð, sem á einskis annars úrkosta til að jafna innanlands deilur og ágreining, hvort sem er vinnudeilur eða annar ágreiningur, en að treysta á þegnskap og ábyrgðartilfinningu þjóðfélagsþegnanna til að afstýra voða, og engum stendur nær að hjálpa landsmönnum til að setja þær leikreglur, sem stutt geti að friðsamlegri lausn innanlandsdeilna, en löggjafarvaldinn sjálfu.

Af því, sem ég nú hefi sagt, er það augljóst, að skylda ber til fyrir Alþingi að lögleiða reglur, sem verða mættu til að hjálpa þjóðfélagsþegnunum til þess að jafna með sér hagsmunaágreininga, sem kunna að rísa meðal þeirra, og sérstaklega að reyna að afstýra þjóðhættulegum vinnustöðvunum. Fyrirmyndir að slíkum ráðstöfunum löggjafarvaldsins er að finna hjá öllum helztu menningarþjóðum hvítra manna, og ber oss þá ekki sízt að leita fyrirmyndanna til þeirra, sem oss eru skyldastir, frændþjóða vorra á Norðurlöndum. Ég skal þá lýsa með nokkrum orðum þeim helztu aðferðum, sem aðrar þjóðir nota til að útkljá vinnudeilur og koma í veg fyrir vinnustöðvanir.

Fyrst vil ég minnast á sáttatilraunir í vinnudeilum. Sú aðferð er í því fólgin, að ríkisvaldið skipar sáttasemjara, og stundum sáttanefndir, til þess að leita sátta með aðiljum vinnudeilna. Sáttasemjari skal kynna sér málavexti sem bezt má verða og reyna að fá aðilja til að sættast, með því að kalla þá saman og fá þá til að tala um ágreining sinn, og reyna þann veg að leiða hann til lykta. Ef ekki er unnt að fá aðilja til að sættast með viðtölum, leggur sáttasemjari miðlunartill. fyrir þá, sem þeir skuli svara játandi eða neitandi. Þessi aðferð er einhver hin venjulegasta í vinnulöggjöf þjóðanna. Er hún notuð allsstaðar á Norðurlöndum. Fyrstu 1. Norðmanna um þetta efni voru sett 1915 og breytt 1927. Fyrstu l. Svía um þetta voru sett 1906 og í Danmörku 1921. Árið 1934 var sett um það ákvæði í dönsk l. um sáttatilraunir í vinnudeilum, fyrir forgöngu jafnaðarmannaleiðtogans Steineke félagsmálaráðherra, að til þess að fella miðlunartill. sáttasemjara þurfi tiltekna þáttöku félagsmanna í atkvgr. og tiltekinn hluta greiddra atkv. á móti. Sé þátttaka mínni en 25%, er sáttatill. talin samþ.

Hér á landi gilda l. frá 1925 um sáttatilraunir í vinnudeilum, sem borin voru fram af Framsfl. og samþ. af öllum flokkum þingsins. Þótt þau séu allmiklu ófullkomnari en samskonar ákvæði á Norðurlöndum, og ákvæði þess frv., sem hér liggur fyrir um sama efni, séu talsvert fullkomnari, hafa þau l. samt oft gert mikið gagn, og er þess skemmst að minnast, að fyrir fáum dögum hefir vinnudeila við síldarverksmiðju ríkisins á Siglufirði fallið niður fyrir samþykkt miðlunartill. frá sáttasemjara ríkisins.

Norðurlöndum og víðar gilda ákvæði um vinnusamninga og samningsaðild. Eru það ákvæði um rétt verklýðs- og stéttarfélaga til að gera samninga fyrir meðlimi sína, um það, hvernig þessir samningar skuli gerðir o. s. frv. Í Noregi og Svíþjóð gilda í þessu efni l., en í Danmörku er farið eftir svokallaðri „septembersætt“, samþykkt, sem gerð var .á milli verkamanna og atvinnurekenda árið 1899. Er þar fyrst og fremst um að ræða viðurkenningu aðilja hvorra á öðrum sem samningsaðilja. í þessari „septembersætt“ er einnig ákvæði, er snertir þá vinnulöggjafaraðferð, sem er fólgin í bráðabirgðafrestun vinnustöðvunar. Ákvæði „sættarinnar“ er á þá leið, að fyrirskipuð er tilkynning vinnustöðvunar með 14 daga fyrirvara. Í Svíþjóð var árið 1935 samþ., að tilkynna skuli vinnustöðvun með viku fyrirvara, að viðlagðri sekt, og í Noregi hefir sáttasemjari vald til að banna vinnustöðvun, þar til sáttatilraun er lokið, en aðiljar geta krafizt, að banni skuli aflétt innan 14 daga, frá því er það var út gefið.

Í sambandi við vinnudeilur verður að gera skýran greinarmun réttarágreinings og hagsmunaágreinings. Réttarágreiningur er deila um skilning á samningi og gildi hans og hvort hann hafi verið rofinn eða eigi. Hagsmunaágreiningur er hinsvegar beinlínis deilan sjálf um kaup og kjör. Dómstólar um réttarágreining, eins og félagsdómur sá, sem gert er ráð fyrir að lögleiða hér, eru mjög algengir í öðrum löndum. Á öllum Norðurlöndum eru slíkir dómstólar lögfestir. En auk þess er oft samið um slíka dómstóla, eins og t. d., er aðiljar Sogsdeilunnar 1935 sömdu um, að 5 manna gerðardómur skyldi dæma um ágreining, er verða kynni um skilning á vinnusamningnum. Dómstólar í hagsmunaágreiningi eru hinsvegar fátíðir sem fastir dómstólar, enda illa séðir yfirleitt af aðiljum vinnudeilna. Munu þeir aðeins tíðkaðir í einræðisríkjum, Rússlandi, Ítalíu og Þýzkalandi. Hinsvegar er oft gripið til þeirra í lýðræðislöndum í einstöku tilfellum sem neyðarúrræði, og má nefna mörg dæmi þess, t. d. frá Norðurlöndum. Ríkisþing Dana hefir árin 1933, 1934, 1936 og 1937 ráðið til lykta alvarlegum vinnudeilum með lagafyrirmælum um, að bannað var að hefja eða halda áfram vinnustöðvun og ákveðið kaup með skipun gerðardóms. Hér hefir þetta í öll skiptin verið gert undir stjórn jafnaðarmanna. Samskonar aðferð hefir líka verið beitt í Noregi. Ennfremur ákvað stjórn Leons Blums í Frakklandi, með stuðningi jafnaðarmanna, kommúnista og (frjálslyndra) róttækra 1936 með l. og stjórnarskipun frá forseta, að hætta skyldi öllum vinnustöðvunum og leggja deilumál fyrir sáttanefnd, en gerðardómur skyldi ákveða kaupið, ef ekki næðust sættir.

Bretar og Hollendingar nota mikið þá aðferð, að reyna að vekja almenningsálitið til þess að hafa áhrif á vinnustöðvanir og leiða deilumál til friðsamlegra lykta. Er það gert á þann hátt, að láta rannsaka deilumálin sem bezt og birta um það áreiðanlegar skýrslur, sem ætlazt er til, að myndi sterkt almenningsálit, sem hafi bætandi áhrif á þann deiluaðilja, sem almenningsálitið telur hafa rangt fyrir sér. Er gripið á þessari leið í 34. gr. frv., sem hér er til umr., með því að veita ríkissáttasemjara vald til að birta skýrslu um málavexti í mikilvægri deilu, sem eigi hefir náðst sætt í, og skal hann gera það á þann hátt, sem hann telur heppilegast til þess, að almenningur fái rétta hugmynd um málavexti.

Þá ætla ég að fara nokkrum orðum almennt um frv. það um stéttarfélög og vinnudeilur, sem hér er til 3. umr.

Frv. er samið og undirbúið af mþn., sem var skipuð 15. des. 1936 af atvmrh. og í áttu sæti 2.framsóknarmenn, og 2 alþýðuflokksmenn, þeir Gísli alþm. Guðmundsson, Ragnar lögfræðingur Ólafsson, Guðmundur lögfræðingur Guðmundsson og Sigurjón alþm. Ólafsson. Að enginn sjálfstæðismaður var í nefndinni, stafaði af því, að sá flokkur hafði lagt fram frv. til vinnulöggjafar, sem skoða varð sem till. hans í málinu. N. hefir undirbúið frv. alveg óvenjuvel og rækilega, aflað sér heimilda um vinnulöggjöf í öllum þeim löndum, sem hún gat náð til, og hefir samið rækilegt nál., þar sem miklu og merkilegu efni um þetta mál er saman safnað og úr því unnið. Það eru því hin hraklegustu öfugmæli, er andstæðingar frv. hafa talað um flausturslegan undirbúning í málinu. Er það ráðlegt fyrir þá, sem kynnast vilja máli þessu til hlítar, að kynna sér nái. 1. hefir við samningu frv. haft fyrst og fremst fyrir augum fordæmi Norðurlandaþjóðanna, því næst annara lýðræðisþjóða. En jafnframt hefir hún reynt að taka sem mest tillit til íslenzkra staðhátta og aðstöðu hérlendis.

Frv. er í 5 köflum.

I. kafli, um réttindi stéttarfélaga og afstöðu þeirra til atvinnurekenda, hefir að geyma lögfestingu á stéttarfélögum og stéttarfélagasamböndum sem löglegum samningsaðiljum í vinnudeilum fyrir meðlimi sína. Þá er með ákvæðum 4. gr. reynt að hindra það, að atvinnurekendur eða fulltrúar þeirra láti verkamenn gjalda stjórnmálaskoðana sinna, t. d. með hótunum um uppsögn eða brottrekstri, loforðum um fjárgreiðslur eða hagnað eða neitun um réttmætar greiðslur. Þá er félögunum heimilað að hafa trúnaðarmenn á vinnustöðvum til að gæta réttar verkamanna og ákvæði sett um, að einstakir verkamenn geti eigi rofið samtakaheildina með því, að semja út af fyrir sig við atvinnurekanda án leyfis stéttarfélags. Ennfremur eru ákvæði um, að samningar skuli skriflegir vera, og nm uppsagnarfrest, um ábyrgð á samningsrofum, sem þó takmarkast við almennar eignir stéttarfélags, en nær ekki til styrktarsjóða og sjúkrasjóða, samkvæmt till., sem ég hefi borið fram ásamt hv. þm. N-Ísf., VJ. Sett eru ákvæði um það, hvernig trúnaðarmaður stéttarfélags skuli haga sér, og reynt að tryggja, að atvinnurekandi láti eigi trúnaðarmann gjalda starfs síns. Er kaflinn tvímælalaust að mörgu réttarbót fyrir verklýðs- og stéttarfélögin.

Í II. kafla eru verkföll og verkbönn heimiluð að l., en jafnframt sett öryggisákvæði til þess að reyna að draga úr, að til vinnustöðvunar þurfi að koma. Þannig verður eigi löglega hafin vinnustöðvun nema með almennri atkvgr. í félagi, skriflegri og leynilegri, er standi í 24 klukkustundir minnst, eða ef trúnaðarmannaráð hefir vald frá félagi til að hefja vinnustöðvun, þarf 3/4 hluta atkv. á fundi ráðsins til samþykktar á löglegri vinnustöðvun. Er það hliðstætt ákvæði við „septembersættina“ dönsku.

Ákvörðun um vinnustöðun verður að tilkynna sáttasemjara og gagnaðilja með 7 daga fyrirvara, til þess að sáttatilraunir geti hafizt og unnt sé að bjarga verðmætum, sem eru í bráðri hættu.

Þá eru bönnuð þau verkföll og verkbönn, sem eru aðeins um ágreining, er félagsdómur skal dæma um; ennfremur má eigi beita vinnustöðvun til þess að neyða stjórnarvöld til að framkvæma ólöglegar athafnir eða til að þvinga þau til að framfylgja ekki l. Í 18. gr. eru ákvæði, sem banna verkfallsbrjótum úr félagi eða sambandi að aðstoða við að afstýra vinnustöðvun. Gæti slíkt annars í ýmsum tilfellum haft í för með sér óeirðir, barsmíðar og meiðsl.

III. kafli, um sáttatilraunir í vinnudeilum, er allmikil endurbót á l. frá 1925. Þar eru ákvæði um að skipta landinu í 4 sáttaumdæmi, og verður sáttasemjarinn í Reykjavíkurumdæmi jafnframt ríkissáttasemjari. En merkilegust á kvæði þessa kafla eru í 32. gr., um atkvgr. um miðlunartill. frá sáttasemjara, sem sniðin eru eftir dönskum l., sem hafa þótt gefast vel. Ef færri en 35% af félagsmönnum hafa greitt atkv. um till., þarf meira en helming atkv. til að fella hana, og verður sá hluti að stækka, eftir því sem þátttakan minnkar. En taki ekki 20% þátt í atkvgr., telst till. sáttasemjara samþ., hvernig sem atkv. falla. Eru þessi ákvæði sett til þess að tryggja það, að örlítill minni hl. félags geti eigi, þrátt fyrir miðlunartilI., haldið áfram vinnudeilu, ef til vill þvert ofan í vilja mikils meiri hl. félagsmanna.

IV. kafli, um félagsdóm, er um sérstakan dómstól til að dæma í réttarágreiningi, þ. e. a. s. um skilning á samningi eða um samningseða lagabrot aðilja. Reynt er að ganga svo frá skipun dómstólsins, að sem mest trygging sé fyrir, að hann verði hvorttveggja, vel dómbær að þekkingu, með að hafa í honum einn dómara frá hvorum aðilja, Vinnuveitendafélagi Íslands og AIþýðusambandi Íslands, og óhlutdrægur, með því að hæstiréttur skipi 2 menn í dóminn og tilnefni 3 menn, sem ráðh. velur úr. Loks eru sektarákvæði í V. kafla.

Ég hefi nú gert grein fyrir höfuðatriðunum í frv., svo og helztu atriðum úr löggjöf annara þjóða um þessi efni. Ég vil benda mönnum alveg sérstaklega á það, að hér er engan veginn lagt til, að dómstóll verði stofnaður til að dæma um hagsmunaágreining, þ. e. a. s. deiluna sjálfa um kaup og kjör. Yfirleitt eru allar lýðræðisþjóðir horfnar frá því ráði, því að hann hefir eins og ég hefi áður sagt, reynzt mjög óvinsæll hjá báðum aðiljum vinnudeilna. Ég vil einnig benda á það, að Framsfl. hefir frá því fyrsta verið mótfallinn því, að slíkur fastur dómstóll í vinnudeilum sé settur á stofn í landinu, og ávallt talið það mesta óráð. Árin 1923 og 1925 bar Bjarni Jónsson frá Vogi fram frv. um gerðardóm í kaupgjaldsþrætum, þar sem svo var til ætlazt, að dómurinn ákvæði kaup og kjör verkamanna, ef eigi næðust samningar með þeim og atvinnurekanda. Framsóknarmenn og alþýðuflokksmenn lögðu algerlega á móti þessu frv., en Framsfl. bar hinsvegar fram frv. að núgildandi 1. um sáttasemjara. Á þinginu 1929 kom enn fram frv. um vinnudóm í kaupgjaldsþrætum, en sætti enn mótstöðu vinstri þingflokkanna og komst eigi fram. Ennfremur hefir Framsfl. alltaf staðið öndverður gegn því, að sett verði á stofn ríkislögregla til þess að skakka leikinn í vinnndeilum, en viljað efla hina almennu lögreglu, án þess að hún mætti skipta sér af vinnudeilum.

Ég er fyrir mitt leyti sannfærður um það, að allur fjöldi fólks í landinu, hvort sem eru atvinnurekendur eða verkamenn, og aðrir launþegar, opinberir starfsmenn eða bændur og búalið, muni við rólega yfirvegun komast að raun um það, að sú tilraun, sem verið er að gera með frv: þessu, til þess að leiða vinnudeilur inn á farsælari brautir og fá friðsamlega lausn á þeim, sé sjálfsögð og réttmæt. Og alveg sérstaklega vil ég vara verkamenn og sjómenn við því, að taka til greina að óathuguðu máli æsingaskrif og ræður, sem miða að því, að æsa menn gegn frv., því að samkvæmt reynslu annara þjóða af samskonar og líkum ákvæðum, er það fullvíst, að engum eru þau til meira hags en einmitt verkamönnum sjálfum. Þessu til stuðnings má benda á það, sem Sigfrid Hansen, ritari sænska verkamannasambandsins, segir í bréfi til mþn. um vinnulöggjöf, að þrátt fyrir það, þótt sænskir verkamenn hafi 1928 stofnað til allsherjarmótmæla gegn frv. um vinnusamninga og dómstól í réttarágreiningi, óski þeir nú, eftir það að hafa kynnzt l. í framkvæmdum, ekki eftir afnámi þeirra. Það er auðvitað eigi ætlun mín að fullyrða nokkuð um það, að eigi séu smíðagallar í frv. þessu né búast við því, að eigi geti, jafnvel fljótlega, reynzt þörf á að breyta því að meira eða mínna leyti, eftir því sem reynslan kennir við framkvæmd l. En hitt er ég sannfærður um, að það er full ástæða fyrir alla þjóðina til að fagna yfir því, að þessi tilraun til réttlátrar vinnulöggjafar skuli vera fram komin, og menn megi treysta því, að hún muni verða til góðs fyrir þjóðina, með þeim endurbótum og breytingum, sem reynslan kann að sýna, að síðar þurfi á henni að gera.

Þótt telja megi víst, að frv. þetta verði að l. á þessu þingi. þar sem 4 þingflokkar virðast ráðnir í að fylgja því, þá er vitanlega mismunandi sjónarmið manna og afstaða til ýmissa ákvæða frv. Sumum mun vafalaust þykja frv. ganga of skammt að sumu leyti í því, að reyna að girða fyrir vinnustöðvanir, öðrum ef til vill að sumu leyti of langt. En um það ættu allir að geta orðið sammála, sem vilja þjóð vorri vel, að verkbönn og verkföll eru þeim verst, sem í þeim standa, atvinnurekendum og verkamönnum eða launþegum. Og yfirleitt er það svo um vinnustöðvanir, eins og annan ófrið, að oftast bíða hvorirtveggju ófriðaraðiljanna í raun og veru ósigur. Það er oft sagt, að betri sé „mögur“ sátt en feitur „process“. Það er reynsla mín af málarekstri manna, sem ég í starfi mínu hefi kynnzt, að yfirleitt er mikill sannleikur fólginn í þessu „óíslenzka“ orðtaki. En sama þykist ég sannfærður um, að þeir menn, sem af eigin reynd hafa kynnzt verkföllum og verkbönnum, muni yfirleitt geta tekið undir, að minnsta kosti í þeim tilfellum, þegar vinnustöðvun hefir staðið langan tíma eða haft mikla eyðileggingu verðmæta í för með sér.

það hefir verið sagt af einum andmælanda þessa frv. hér á þingi, að rangt sé, að ríkissjóður taki á sig þann kostnað, sem frv. kann að hafa í för með sér. Þótt kostnaðarauki verði vitanlega nokkur, verða menn að athuga það, að þótt löggjöfin ekki yrði til að hindra nema örfáar stöðvanir á nauðsynjastarfi í þjóðfélaginu, myndi kostnaðaraukinn margendurgreiðast með því.

Tjónið, sem hlýzt af vinnustöðvunum, er oft svo gífurlegt, bæði fyrir aðilja sjálfa og þjóðfélagið í heild, að það getur valdið jafnvel hundraðfalt þeirri takmörkuðu upphæð, sem samkvæmt þessu frv. má verja árlega í því skyni, að leitazt verði við að fá með lagi og festu friðsamlega lausn á vinnudeilum og fyrirbyggja vinnustöðvanir. Það er því gott dæmi um rökþrot og lélegan málstað andmælenda frv., að þeir skuli grípa til röksemda eins og þeirra, að telja eftir þennan nauðsynlega, en smávægilega kostnað, sem verja á til að hindra margfalt meira tjón.

Andmælendur frv. ganga á það lagið, að reyna að æsa menn gegn frv., með því að telja þeim trú um, að hér sé um einhver „þrælalög“ eða „kúgunarlög“ að ræða. Þeir vita þó afarvel, þessir menn, og þá ekki sízt hv. 3. þm. Reykv., sem hefir alltaf viðurkennt og viðurkenndi síðast við 2. umr. þessa máls, að hann áliti rétt að setja l. um sáttatilraunir í vinnudeilum og félagsdóm um réttarágreining, að með frv. þessu er alls ekki um það að ræða að koma á fót dómstóli, sem dæmi um hagsmunaágreining, þ. e. kaup og kjör, eða yfirleitt að í frv. séu nokkur ákvæði, sem hindri nauðsynlegar vinnustöðvanir. Hér er aðeins gerð tilraun til að setja hóflegar og skynsamlegar leikreglur fyrir aðilja vinnudeilunnar, sem aðeins geta orðið til góðs fyrir alla, sem að þeim standa, og þjóð vora í heild sinni. Ég hika því eigi við að fullyrða, að andstaða Héðins Valdimarssonar og kommúnista gegn frv. á ekki rót sína að rekja til sannfæringar um óréttmæti frv., heldur stafar hún eingöngu af löngun þeirra til að nota þetta mál með rangsnúningi og röngum skýringum til æsinga og agitationar gegn Alþýðuflokknum, sem í fullu samræmi við fyrri afstöðu sína til málsins, og þar á meðal afstöðu Héðins Valdimarssonar, meðan hann var alþýðuflokksmaður, og í samræmi við afstöðu bræðraflokka þeirra á Norðurlöndum, hafa lýst sig fylgjandi málinu.