30.04.1938
Neðri deild: 58. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 965 í B-deild Alþingistíðinda. (1349)

95. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

Einar Olgeirsson:

Þið hafið heyrt á fyrri ræðum hér í hv. deild, að það vantar ekkert á, að þau sameinist hjúin, Íhaldið og Framsókn og Bændaflokkurinn og hægri menn í Alþfl., í einingu andans og bandi friðarins. Það boðar vafalaust ekkert gott fyrir alþýðuna, þegar öll þessi hersing skríður saman, og ekki sízt þegar húsbóndinn á þessu kærleiksheimili er auðsjáanlega Eggert Claessen, sem er upphafsmaðurinn að þessari vinnulöggjöf og mest hefir fyrir henni barizt. Og um hvað haldið þið, að öll þessi hersing sameinist svo hjartanlega? Um það, að skerða þau dýrmætustu réttindi, sem verkalýðurinn á. Og af hverju sameinast menn um þetta sérstaklega á þessum tíma? Það er af því, að nú er kreppa í aðsigi. Nú er baráttan að harðna, baráttan um það, hvort byrðar kreppunnar eigi að lenda á atvinnurekendum og auðmönnum eða bændum og verkamönnum. Atvinnurekendastéttin býr sig undir að ráðast á lífskjör verkalýðsins og rýra ennþá meira hið lága kanp verkamanna og gera atvinnuleysi þeirra enn tilfinnanlegra. Afturhaldið býr sig nú út í það á öllum sviðum að svipta verkalýðinn réttindum sínum og rýra hans lélegu lífskjör. Bæði á þessu þingi og því síðasta hefir verið flutt hvert frv. á fætur öðru í þessa átt. Það voru síldarbræðslulögin, frv. um iðnaðarnám, sem liggur nú fyrir, frv. um breytingu á l. um atvinnu við siglingar. Bæði þessi síðastnefndu frv. ganga beinlínis í þá átt, að rýra stórkostlega þau réttindi, sem verkalýðurinn hefir áunnið sér. En aðalatriðið í þessari samfelldu árás afturhaldsaflanna á Íslandi er þessi vinnulöggjöf, sem liggur fyrir. Og það er auðséð, að sérstaklega alþýðusambandsstjórnarþingflokknum þykir nú mikils við þurfa að reyna að verja þessa vinnulöggjöf, þessa harðvítugu árás á verkalýðinn. Það er nú sendur í „pontuna“ sá maðurinn af hálfu hægri mannanna í Alþfl., sem aðeins er notaður eins og nokkurskonar lausnari í sárustu neyð sambandsstjórnarinnar, hv. þm. N.-Ísf., VJ. Hann kemur nú fram á vígvöllinn. Í haust vann hann það frægðarverk að sundra verkalýðshreyfingunni, einmitt þegar möguleikinn var á að sameina hana. Þessi hv. þm. er nú sendur út af örkinni til að reyna að sannfæra verkalýðinn um, að honum sé betra að láta sjálfviljugum leggja sér fjötur um háls heldur en að berjast sem dreng fyrir frelsi sínu. Hann er svo sem ekki í vandræðum, hvað hann á að segja við verkalýðinn, ef verkalýðurinn kynni að leyfa sér að vera á annari skoðun. Hann segir einfaldlega: Verkalýðurinn kann ekki að meta þetta dýrmæti, sem ég er að bjóða honum hér, og það er verst fyrir hann sjálfan. Það er ekki óvanalegt, að vilji verkalýðssamtakanna sé að engu hafður af þessum herrum. Þeir hafa alltaf skoðað sig sem herra verkalýðsins, en ekki erindreka hans og þjóna. Þess vegna er í rauninni meginhugsun þeirra í afstöðunni til verkalýðsins álíka eins og einræðiskonungs í fyrri daga: „Vér einir vitum“, og liggur stundum við, að hv. þm. N.- Ísf. taki sér þau orð í munn. En verkalýðurinn á Íslandi lítur öðruvísi á málið. Verkalýðssamtökin eru ekki verk einstakra manna, heldur eru þau byggð upp af elju,fórnfýsi og dugnaði fjöldans. Þau hafa tekizt með því, að hundruð og þúsundir manna í landinu vinna í sameining að því að byggja þau upp, vinna að því að efla tölu félagsmanna, safna aurum fátæklinganna í þeirra eigin sjóði, til að reisa hús og heimili fyrir alþýðuna, eins og á Siglufirði, Akureyri, Vestmannaeyjum. Sauðárkróki, Reykjavík og viðar. Það er barátta hinna fátæku, sem ekkert eiga nema vinnuafl sitt — engan auð, engin embætti, engin völd —, en skapa með vinnu sinni allan auð, sem til er, og halda uppi með starfi sínu þjóðfélagsbákninu með öllum þess embættum, völdum og gæðum. Verkalýðurinn heyir sína frelsisbaráttu, og þar sem hann hvorki hefir auð né völd, þá er það eina vald, sem hann hefir, það að neita að selja vinnuafl sitt, gera verkfall. Hann veit, að það er eitthvert sterkasta vopnið jafnt í hagsmuna- sem réttindabaráttunni. Það er þetta vopn, sem nú á að deyfa, — þennan rétt á að skerða. Það duga engar lagaskýringar til að skýra það verk, sem nú er verið að gera. Með því frv., sem fyrir liggur, er verið að eyðileggja að miklu leyti möguleika verkalýðsins til skyndiverkfalla. Þó að í vinnusamningum eigi að vera ákvæði um aðbúnað á vinnustöðvum og ákvæði um kaupgreiðslu í peningum og hversu oft hún fari fram, og að ekki séu utanfélagsmenn í vinnu, þá þýða þau ekkert, ef ekki er hægt að gera skyndiverkfall. Þessu þýðir ekkert að mótmæla, og meira að segja varð hv. þm. N.-Ísf., VJ, að viðurkenna þetta í umræðum um þetta mál, að nauðsynlegt væri undir sérstökum kringumstæðum að brjóta þessi lög, með því að lifi verkalýðsins gæti orðið stefnt í voða, ef ekkert yrði gripið inn í með skyndiverkfalli, og yrði þá dómstóllinn að viðurkenna réttmæti slíks á eftir.

Þessir hægri menn, sem ganga hér fram eins og berserkir, afsaka sig með því, að ef þeir stæðu ekki með þessu frv. um vinnulöggjöf, þá myndi Framsfl. samþ. jafnvel verra frv. með Íhaldinu. Þetta er tvöföld rökvilla. Annarsvegar hefðu borgaraflokkarnir ekki þorað að setja svona lög gegn einróma mótspyrnu verkalýðsins á Íslandi. Og hinsvegar er sannleikurinn sá, að þó að það séu bara hægri mennirnir, sem samþ. nú þetta frv. með Framsókn, þá skapast þar með einmitt sá langþráði möguleiki fyrir Íhaldið, að geta komið á ennþá verri vinnulöggjöf með Framsókn, þegar búið væri að brjóta ísinn með samþykkt þessa frv. Einmitt nú á þessu þingi sjáum við, hvernig Framsókn og Íhaldið taka höndum saman um hvert frv. á fætur öðru, sem öll skerða rétt verkalýðsins. Við sjáum, hvernig fór með gerðardóminn. Við sjáum nú frv. um atvinnu við siglingar, sem fækkar stórum stýrimönnum og vélstjórum. stofnar lífi sjómanna og sjófarenda í hættu og er svo fram úr hófi skeytingarlaust um örygg ið á sjónum, að efamál er, hvort hægt er yfirleitt að reka allan flotann, ef það verður samþ. Við sjáum frv. um iðnaðarnám, sem á að rýra rétt iðnfélaganna og skapa aukið atvinnuleysi í iðnaðinum. Og öll þessi frv. setur Framsókn í gegnum þingið með hjálp Íhaldsins, þó að ríkisstjórn Framsóknar sitji með stuðningi hægri mannanna.

Hvað hefði nú legið nær en að svara þessum auknu árásum afturhaldsins á lífskjör og réttindi alþýðunnar einmitt með fullkominni einingu verkalýðssamtakanna og verkalýðsflokkanna, svo sterkri og voldugri einingu, að hún hefði hvorki hikað við að leggja út í nýjar kosningar, til að sýna vaxandi fylgi einhuga alþýðu, né út í nægilega skörp mótmæli utan þingsins, — eins og þau, sem hnekktu ríkislögreglufrv. forðum daga, og var þá Íhaldið þó í meiri hl. á Alþingi. Samt þorði það ekki að setja frv. í gegn. En hægri mennirnir klufu þessa einingu og eyðilögðu. Þeir hopa á hæl fyrir afturhaldinu, en berjast gegn verkalýðnum, kljúfa nú hvert jafnaðarmannafélagið á fætur öðru og fótum troða vilja verkalýðsfélaganna.

Hvað uppsker alþýðan fyrir klofning þeirra? Hún uppsker þrælalögin, sem hér er verið að ræða. Hún uppsker vaxandi atvinnuleysi. Hún uppsker húsnæðisskort, því að það fást ekki byggðir neinir verkamannabústaðir í sumar. Hún uppsker minnkandi öryggi á sjónum og vaxandi atvinnuleysi í iðnaðinum. Þetta er byrjunin á uppskeru alþýðunnar af svika- og klofningsstarfsemi hægri mannanna. En hvað uppskera þeir sjálfir? Þeir uppskera bankaráðsembætti handa Jónasi Guðmundssyni, forstjórastöðu handa Haraldi Guðmundssyni, smærri bitlinga handa smærri spámönnunum, og þar sem þeim þykir þetta ekki nóg, þá er nú komið fram frv. á Alþingi, sem hefir þann einn tilgang að koma þeim Pétri Guðmundssyni og Sigfúsi Sigurhjartarsyni út úr útvarpsráði, svo að klofningsmenn geti komið einhverju verkfæri sínu þar að með hjálp Framsóknar. Svona hugsa þeir sér nú uppskeruna handa sér. Og þetta kalla þeir að vinna fyrir alþýðuna.

Svo kemur þessi hv. þm. N.-Ísf., VJ, og fer að prédika fyrir verkalýðnum, að vinnulöggjöfin eigi nú að frelsa hann og vera skjöldur hans í stéttabaráttunni. Já, það væri nú helzt líklegt, að Framsfl: gengi inn á þessa löggjöf þá! Ef Framsókn vill allt í einn fara að samþ. löggjöf, sem væri skjöldur verkalýðsins, því semja þeir þá ekki um t. d. að lögbjóða 8 st. vinnudag eða að koma hér á almennilegum atvinnuleysistryggingum? Slík löggjöf hefir fengizt í gegn á Norðurlöndum og víða, og þótt skjöldur verkalýðsins. En hér er þetta öðruvísi. Hér er sannleikurinn sá, að Framsfl. heimtar þrælalöggjöf, sem Íhaldið gengur inn á og hægri alþýðuflokksbroddarnir eru með. Þeir eiga að verja löggjöfina frammi fyrir alþýðunni ef hægt væri að blekkja einhverja til að vera með henni. Og þess vegna er hv. þm. N.-Ísf. valinn til þessa óvinsæla verks, að reyna með gyllingum sínum að snúa kúgun, ófrelsi og fjötrum í lausn og frelsi. Hann segir, að verkamenn standi nú berskjaldaðir. Hann kemur nú fram fyrir verkalýðinn í útvarpinu og segir: „Vinnulöggjöf þessi á að vera ykkur skjöldur; nú eruð þið berskjaldaðir“. Verkamenn, ég spyr ykkur: Hafa lögin verndað ykkur, þegar auðvaldið hefir ofsótt ykkur, og jafnvel hægri foringjarnir hundelta ykkur fyrir það, að þið höfðuð kommúnistískar skoðanir? Hafa lögin um kjallaraíbúðir tryggt ykkur að komast úr kjallaraíbúðunum? Hafa þau ekki einmitt verið brotin miskunnarlaust? Hafa lögin um kaupgreiðslu í peningum ekki verið þverbrotin, nema þar sem samtök ykkar voru nógu sterk til að sjá um, að þeim yrði framfylgt? Nei, gyllingar hv. þm. N.-Ísf. eru það frekasta, sem hér hefir heyrzt. Það eru einmitt samtök verkamannanna, sem verða þeirra sverð og skjöldur í baráttu þeirra fyrir lífinu. Og þessi samtök þurfa einmitt að verða nógu sterk og harðvitug til þess að geta séð um það, að þessi litla réttindalöggjöf, sem til er, geti komið að notum.

Það sýnir sig því, að það, sem mest riður á, er, að samtök verkalýðsins séu sem öflugust; en um leið er hv. þm. N.-Ísf. að gylla hér vinnulöggjöfina, en þeir hægri menn að reyna að sundra þessum samtökum og smeygja á þau fjötri vinnulöggjafarinnar. Það er sérstaklega eftirtektarvert, að með þessu frv. er verið að banna verkföll verkamanna gegn löggjafar- og framkvæmdarvaldinu. Það á því einmitt sérstaklega að lama áhrif verkalýðshreyfingarinnar á þessu sviði, og það þýðir meðal annars að hindra, að verkalýðurinn geti beitt verkfalli gegn nýjum þrælalögum, t. d. gegn þeim frv. um nýja gerðardóma og enn verri vinnulöggjöf, sem Íhaldið og Framsókn undirbúa nú fyrir næsta þing. Þegar kemur til átaka um þessi nýju þrælalög, þá er verkalýðnum, að viðlögðum sektum og skaðabótum, — bannað að beita verkföllum gegn ríkisvaldinu. Þannig hafa þá hægri mennirnir séð til þess að gera afturhaldinu mögulegt að fjötra verkalýðinn, meðan þeir væru að koma á enn verri þrælalögum. Þess vegna reynir hv. þm. N.- Ísf. að gylla þennan fjötur fyrir verkalýðnum; því að það ríður einmitt á því fyrir auðvaldið að koma þessu ákvæði í lög. Því að auðvaldið þekkir vald verkalýðsins, m. a. frá benzínverkfallinu. Þess vegna keppir auðvaldið eftir því að binda fyrst hendur verkalýðsins, svo að hann geti ekki beitt verkfalli. Með þessum l. væri þannig rudd braut fyrir hverskonar gerðardóma og þrælkunarlög, nema verkalýðurinn hafi þessi l. að engu og láti þau ekki hindra sig í frelsisbaráttu sinni, –og það mun hann vissulega gera.

Hv. þm. N.-Ísf. á erfitt í öllum gyllingum sínum að skýra fögnuð Íhaldsins yfir þessu frv., því að alþýðan á því sannarlega ekki að venjast, að Íhaldið fylki sér sem einn maður um mál, sem líkleg væru til að vera skjöldur fyrir verkalýðinn. Það er þá eitthvað aldeilis nýtt að gerast.

Svo talaði hv. þm. N.-Ísf. um það, að það sé hægt að vera með góðri vinnulöggjöf. Ef hann ætti við löggjöf um 8 tíma vinnudag og þess háttar, eða þá nýtilegar atvinnuleysistryggingar, þá mun ekki vanta fylgi okkar né verkalýðsins með slíkri löggjöf. sem þessir háu herrar eru að berjast fyrir. Hinsvegar sagðist hv. þm. vera á móti slæmri vinnulöggjöf. Hvað er slæm vinnulöggjöf? Það er löggjöf, sem skerðir réttindi og frelsi verkalýðssamtakanna. Hvað gerir þetta frv.? Það veitir verkalýðnum engin veruleg réttindi, en skerðir stórkostlega þann rétt og það vald, sem verkalýðurinn nú þegar hefir aflað sér. Við kommúnistar bárum fram brtt. við 2. umr. málsins, sem miðuðu að því, að gera nokkuð af þeim „réttindum“ í I. kafla, sem hægri mennirnir eru að hjala um, að raunverulegum réttindum. Hver einasta af þessum tillögum var kolfelld. Frv. hefir því aðeins að geyma skaðleg ákvæði, sem takmarka og skerða verkfallsrétt verkalýðsins. Frv. er því einmitt dæmið um slæma vinnulöggjöf, eftir skýrgreiningu hv. þm. N.-Ísf.

Allra hlálegast verður þó, þegar farið er að athuga röksemdaleiðslu þessa hv. þm., af hverju íslenzkur verkalýður fái svona fyrirmyndar vinnulöggjöf, — já, svona líka fyrirmynd! Hann talar ekki um það, af hverju sé verið nú á Alþingi að rýra öll réttindi, sem verkalýðurinn hefir áunnið sér. Hann talar ekki um, af hverju ekki fáist hér fram slík réttindi sem 8 stunda vinnudagur og nýtar atvinnuleysistryggingar, eins og gilda á Norðurlöndum. Nei, hann talar bara um það, af hverju vinnulöggjafarfrv. þetta sé skárra frv. en þau, sem gilda á Norðurlöndum. Af hverju þorir auðvaldið ekki að bjóða verkalýðnum á Íslandi það sama og á sér stað annarsstaðar á Norðurlöndum? Það stendur þannig á, að ríkisvaldið hér er veikara en á Norðurlöndum og verkalýðshreyfingin í hlutfalli við það tiltölulega sterk. Og svo er hv. þm. N.- Ísf. að reyna að þakka þeim hægri mönnum það, sem stafar af þessum styrkleika, sem hægri menn eru að reyna að veikja með því að reyna að sprengja verkalýðshreyfinguna á allan hátt.

Þá ætla ég að gera nokkrar aths. viðvíkjandi atriði, sem litt hefir verið rætt nú. En það er mikið talað um af hálfu Íhaldsins að vernda persónufrelsið. Þá er ekki nema eftir öðru, sem það gerir, að ráðast sem skarpast á persónufrelsi verkamanna til að rýra það. Það er ekki nóg, að verkalýðurinn selji daglega sitt vinnuafl og næstum lifi þannig eins og þrælar, heldur vill Íhaldið veikja samtök hans sem allra mest og fjötra hann í verkfallsbaráttunni. Það er eftirtektarvert, að mennirnir, sem tala mest um lýðræði og skýra það m. a. sem rétt meiri hl. til að ráða málum heildarinnar, þeir ætla að þverbrjóta allt lýðræði í verkalýðsfélögunum. Með 32. gr. frv. er lýðræði í verkalýðsféIögunum takmarkað svo, að þótt t. d. 300 manns í verkalýðsfélagi, sem hefir 1500 meðlimi, samþ. einum rómi að hafna till. sáttasemjara, og enginn greiði till. atkv., þá skoðast hún samt samþykkt! Þetta einræði sáttasemjara er það, sem lýðræðispostularnir nú bjóða verkalýðnum upp á.

Og þá skulum við renna augunum yfir hin pólitísku verkföll. Þessir sömu menn, sem nú berjast fyrir því, að fá inn 17. gr., segjast vera með lýðræði, en á móti einræði. En hvað er sterkasta stoð lýðræðisins? Eru það ekki verkalýðssamtökin? Stafar ekki hættan fyrir lýðræðið frá auðvaldinu, þeim stéttum, sem boða fasisma og nazisma? Og hvað dugar betur á móti þessum stefnum heldur en frjáls og sterk verkalýðssamtök? Danski verkalýðurinn þekkir þetta af reynslunni. Árið 1921, þegar kóngurinn ætlaði að gera nokkurskonar byltingu ofan frá og koma svo að segja á einræði, þá var það danski verkalýðurinn, sem mótmælti þessu með allsherjarverkalli. En það er einmitt það, sem reyna á að girða fyrir með þessum lögum. — Ég hefi í sambandi við þessar umr. hvað eftir annað spurt hv. þm. Alþfl. og Sjálfstfl. að því, hvernig þeir hefðu litið á 17. gr., ef hún hefði verið komin í gildi 1931, þegar Framsókn kom á einræðisstjórn hér, eftir því sem Morgunblaðið sagði þá. Þeim hefir orðið svarafátt og er það enn.

Þá er það eitt atriði, sem mikið hefir verið um rætt í sambandi við þessi lög, og það er svipting verkalýðsfélaganna á yfirráðum sinna sjóða, þar sem hægt er að ræna allar eignir verkalýðsfélaganna með aðför út af skaðabótum. Þetta atriði hefir sætt einna skörpustu mótmælum frá hendi verkalýðshreyfingarinnar, og þessi mótmæli hafa þegar áorkað nokkru. Stjfl. hafa ekki þorað annað en að taka nokkurt tillit til þeirra, og flytja nú 2 þm. stjfl. till. um að undanskilja að nokkru húseignir og sjúkra- og menningarsjóði verkalýðsfélaganna frá aðför út af skaðabótum. Þetta er árangurinn af baráttu verkalýðsins utan þings og sýnir, hver áhrif hún getur haft.

Það kom fram hjá framsóknarþm. BJ, alveg eins og hjá hv. þm. V.-Ísf., VJ, að það væri engum meir til hagnaðar en verkalýðnum sjálfum, að þessi lög væru samþ. Það er eftirtektarvert, ef hægri mennirnir í Framsókn líka fara að samþ. vinnulöggjöf einungis fyrir verkalýðinn. — Þetta er eins og þegar Jónas Jónsson vildi fara að gera bandalag við Magnús Guðmundsson um það að byggja fangelsi, en það átti aðallega að vera fyrir verkalýðinn. Þessir menn ætlast til þess, að verkamenn séu auðsveipnir og hlýðnir, og óska sérstaklega, að þeir beiti ekki verkfallsvopninu, vegna þess að það er þeirra sterkasta, og svo að segja einasta vopn.

Þá kom Íhaldið inn á það, að það væru ekki nema launaðir æsingamenn, sem sköpuðu baráttu verkalýðsins. Þetta er hin vanalega skoðun Íhaldsins. Það hefir ekki hugmynd um það, hvernig verkalýðshreyfingin er sköpuð, og skilur ekki, að hver einstaklingur finnur til sinnar kúgunar og þráir frelsi af klafanum, sem hann er bundinn á. Þess vegna rís hann upp, og þar með skapast hin sterka barátta.

Það fer ekki dult, hvað Íhaldið ætlar sér með þessum lögum. Það ætlar að sníða úr þeim æ sterkari fjötra á verkalýðinn. Og það stóð heldur ekki á hv. þm. Barð. að viðurkenna, að vafalaust þyrfti á næstu þingum að breyta þessum lögum.

Hv. þm. V.- Sk. var að tala um einhverja sérstaka friðarspilla og níðhöggva í þjóðfélaginu. Ef hann hefði skilið, hvað átt er við með þessu, þá hefði hann ekki mælt þetta, því að það eru fáir, sem hafa sýnt sig í því eins og atvinnurekendur, að nota vald sitt til þess að sveita verkamenn til undanlátssemi, og stöðva togaraflotann til þess að hafa pólitísk áhrif á ríkisvaldið. Og þetta vald atvinnurekenda er að engu leyti rýrt með þessari löggjöf. Þeir hafa ótakmarkað vald til hverskonar vinnustöðvunar sem þeim þóknast. En fulltrúa Íhaldsins finnst þetta ekki nóg, það þyrfti gerðardóm í viðbót, og við sjáum þegar, að ekki stendur á Framsfl. að samþ. þá, en þegar þessi þrælalöggjöf er komin í gegn, verður erfiðara fyrir verkalýðinn að svara slíku á viðeigandi hátt með mótmælaverkföllum.

Með þessu frv. er því verið að vinna tvennt. Í fyrsta lagi að fjötra verkalýðshreyfingnna. Það er meiningin að brjóta skarð í þann múr, sem verkalýðshreyfingin hefir skapað kringum sig, eins og þegar Grikkir sátu um Troju, og það hlutverk, sem Trojuhesturinn lék, eiga hægri mennirnir að leika nú, þegar þeir samþ. þessa löggjöf. Þeir ráða því ekki, hvaða breyt. verða gerðar á henni, þegar einu sinni er búið að samþ. hana, jafnvel þótt góður vilji þeirra sé fyrir hendi. Íhaldið og Framsókn fara sínu fram, þegar búið er að koma þeim fjötrum á verkalýðinn, sem í þessu frv. felast.

Í öðru lagi er með þessu frv. verið að stofna til ófriðar í landinu. Verkalýðurinn mun verja frelsi sitt. Hann mun ekki virða þræla- og þvingunarlög; hann mun vernda rétt sinn og samtök, fjör sitt og frelsi. Og þeim, sem nú ætla að knýja þessi lög gegnum þingið á móti vilja verkalýðssamtakanna, er bezt að athuga áður, hvort þeir ætla sér að vera með því, að útbúa þann ríkisher, sem Ólafur Thors var að heimta hér á dögunum og tvímælalaust mun þurfa til þess að framkvæma þessa löggjöf.