03.05.1938
Efri deild: 60. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 996 í B-deild Alþingistíðinda. (1361)

95. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

Brynjólfur Bjarnason:

Það er raunar að bera í bakkafullan lækinn að fara að ræða mikið um þetta frv. hér, þar sem svo miklar umr. hafa þegar farið fram um það, og það í áheyrn alþjóðar í útvarpinu. Auðvitað hafa hv. þdm. hér fylgzt með þeim umr. eins og aðrir. Þó vildi ég ekki láta þetta tækifæri hjá líða án þess að draga saman í mjög stutt mál helztu árásirnar á verkalýðssamtökin, sem í þessu frv. felast.

Þá er þar fyrst til að taka, að öll skyndiverkföll eru, praktískt talað, bönnuð. Samkv. l. á að tilkynna öll verkföll um kaup og kjör með sjö daga fyrirvara. Nú er það á valdi dómstólanna að skilgreina hugtakið „kaup og kjör“, og má gera það þannig, að næstum því öll verkföll heyri undir það. Við þetta bætist svo, að það er óheimilt að gera verkfall um atriði, sem heyra undir félagsdóm, og það eru mál til leiðréttingar brotum á samningum á milli verkamanna og atvinnurekenda, og loks getur félagsstjórn ekki stöðvað vinnu nema að láta fyrst fara fram almenna atkvgr. í félaginu. Það er jú hægt að setja trúnaðarmannaráð, og getur þá félagsstjórn í samráði við það stöðvað vinnu, en þá getur meiri hl. ekki ráðið, hvort kemur til vinnustöðvunar eða ekki. Þegar á allt þetta er litið, þýðir ekki að mæla á móti því, að öll skyndiverkföll eru, praktískt talað, bönnuð. Hvað er þá eftir, þegar þetta er upp talið? Nú vita allir, sem fylgzt hafa með verklýðsmálum, hvílíkt lífsskilyrði það er fyrir verkalýðinn að geta gripið til skyndiverkfalla. Að banna þau er undir mörgum kringumstæðum alveg það sama og að banna verkalýðnum að beita samtökum sínum til að leiðrétta málsstað stéttarinnar. Í ýmsum iðngreinum, t. d. byggingariðnaðinum, er það þannig, að skyndiverkföll til þess að leiðrétta misfellur og samningsrof eru oft meðal daglegra starfa félagsstjórnarinnar. Er það sérstaklega tilfinnanlegt, að þau skuli ekki vera leyfð til að leiðrétta samningsrof. Ef að á að biða eftir úrskurði félagsdóms, þegar um samningsrof er að ræða, þá er vinnan í mörgum tilfellum búin, áður en sá úrskurður kemur, og ómögulegt að fá neina leiðréttingu. Það getur verið um atriði að ræða, sem félögin hafa fengið inn í samninga eftir langa baráttu, eins og t. d. hlutfallið milli nema og sveina, um öryggi á vinnustöðvum o. fl., sem er bókstaflega ómögulegt að leiðrétta, ef þessi l. verða samþ., þegar um er að ræða þær atvinnugreinar, sem vinnan stendur stuttan tíma og yrði búin, þegar dómur fengizt í málinu. Hér á að opna allar gáttir fyrir samningsrofum, því að það er gefið mál, að þau verða framin, þegar hægt er að koma þeim við, án þess að félögin, sem að vinnunni standa, hafi leyfi til að leiðrétta samningsrofin.

Önnur aðalárásin á verkalýðinn, sem felst í þessu frv., er það, að öll pólitísk verkföll eru hönnuð, þ. e. a. s. öll verkföll, sem eiga að hafa áhrif á stjórnarvöldin til þess að framkvæma eða framkvæma ekki það, sem þeim her að gera l. samkvæmt. Alstaðar um allan heim lítur verkalýðurinn á rétt sinn til pólitískra verkfalla sem heilagan rétt, enda er oft svo, að pólitísk verkföll eru oft ekki annað en hagsmunabarátta, og nærtækt dæmi höfum við þar, sem benzínverkfallið var, sem allir kannast við. Ef samþ. á l. til að fjandskapast við eina stétt og kúga hana, og það stéttina, sem þjóðfélagið byggist allt á, þá er það heilagur réttur hennar að fá að verja sig, og ef einræðis- og ofbeldisflokkar fá aðstöðu til að beita löggjafarvaldinu, þá er allsherjarverkfall bitrasta vopn verkalýðsins og lýðræðisins. En að samþ. l., sem búa í haginn fyrir fasismann, það er blátt áfram glæpsamlegt af lýðræðisflokkum. Með þessa frv. ákvæðum er einnig opnuð leið til að samþ. lögþvingaðan gerðardóm í hvaða deilu sem er, sem verkalýðssamtökunum er nauðugur einn kostur að hlýða. Ef þau hlýða honum ekki, mundi það eftir þessum l. verða talið pólitískt verkfall og varða sektum og skaðabótakröfum. Þetta ákvæði, um að banna pólitísk verkföll, er fyrsta skrefið til þess að afnema verkfallsréttinn með öllu.

Þá ætla ég að nefna það, sem ég tel þriðju aðalárásina á verkalýðinn í þessum l. Það er, að lýðræðið í verkalýðsfélögunum er afnumið um meðferð veigamestu málanna. Þegar um till. sáttasemjara er að ræða, þá getur minni hl. ráðið yfir meiri hl. Það er meira að segja gert ráð fyrir þeim tilfellum, þar sem slíkar till. frá sáttasemjara geti verið samþ., þó að allir sem atkv. greiða, séu á móti þeim, þ. e. a. s. ef það nær ekki 20% af félagsmönnum, sem greiða atkv. Að samþ. slík l. í lýðræðislandi er hreinasta hneyksli, jafnvel þótt hægt sé að vitna til hliðstæðrar löggjafar í Danmörku. Að vísu er ekkert við það að athuga. að settar séu reglur um það, hvað margir verða að taka þátt í atkvgr. um veigamikil mál, til þess að atkvgr. sé tekin gild, en að minni hl. eigi að ráða fyrir meiri hl. getur aldrei orðið annað en hneyksli.

Þá er það fjórða aðalárásin á verkalýðinn í þessum l., sem er sú, að það er hægt að ræna sjóðum verkalýðsfélaganna. Frv. var upphaflega þannig, að hægt var að ræna öllum eignum verkalýðsfélaganna með dómi, en nú hefir verið gerð sú bragarbót á því, að ekki er hægt út af samningsrofum að gera aðför að sjúkrasjóðum eða menningarsjóðum verkalýðsfélaganna.

Þá er fimmta árásin, sem er það, að félagsdómurinn er að 4/5, skipaður andstæðingum verkalýðsins. — Þetta er stiklað á stóru og geri ég það af ásettu ráði, því eftir allar þær umr., sem fram hafa farið, tel ég óþarft að fara ýtarlega út í hin smærri atriði.

Þá ætla ég að fara nokkrum orðum um skyldur og svokölluð réttindi verkalýðsfélaganna. sem eiga að felast í þessu frv. því er haldið fram, að í þessum kafla sé um að ræða ný réttindi fyrir verkalýðsfélögin. Við skulum athuga þau dálítið nánar. Í 5. gr. segir, að stéttarfélög séu lögformlegur samningsaðili um kaup og kjör. Þennan rétt hafa flest verkalýðsfélög í landinu þegar aflað sér með sinni baráttu, en þau félög, sem ekki hafa áunnið sér hann, — hverju eru þau bættari, þótt annað eins og þetta standi í l.? Engu. Þótt þetta standi í l., þurfa atvinnurekendur alls ekki að semja við félögin. Þeir geta sagt: „Jú, þið eruð lögformlegur samningsaðili, en ég sem bara ekki við ykkur“. Það skipar enginn atvinnurekendunum að semja við félögin. Það getur kostað jafnmikla og langa baráttu fyrir þessi félög, sem ekki hafa áður verið viðurkennd sem samningsaðili, þrátt fyrir þetta ákvæði. Það er ekki annað en orðaglamur.

Þá er sagt, að atvinnurekendur megi ekki láta verkamenn gjalda pólitískra skoðana sinna. Ég vil spyrja: Hvenær kemur það fyrir, að atvinnurekandi segi mönnum opinberlega upp vinnu vegna stjórnmálaskoðana? Það er aldrei gert. Pólitískar ofsóknir og vinnusviptingar eru algengar, en hitt skeður aldrei, að atvinnurekendur segi opinberlega, að þeir segi mönnum upp vegna afskipta þeirra af verkalýðsmálum og störfum fyrir þau. Það eru alltaf fundnar aðrar ástæður. Sama gildir um trúnaðarmennina. Þeir mega ekki gjalda sinna starfa fyrir verkalýðsfélögin. En atvinnurekandi getur sagt trúnaðarmönnunum upp, þegar honum sýnist, svo að það ,er lítill vinningur fyrir verkalýðsfélögin að mega kjósa sér trúnaðarmenn, þar sem engin trygging er fyrir því, að þeir haldi starfi sínu. Tökum nú togaraflofann t. d. Hvaða trúnaðarmann mundi vera hægt að fá til að starfa þar eins og trúnaðarmaður á að gera, án þess að hann sé verndaður með l.? Hann ætti t. d. að sjá um, að vökulögin væri haldin. Þrátt fyrir þetta ákvæði er þannig í pottinn búið, að enginn maður mundi fást til að gegna þessu starfi, án þess að honum væri tryggð vinna á flotanum. Það er eins og sé verið að gera gys að verkalýðssamtökunum með svona ákvæðum í l., sem er beinlinis stefnt á móti verkalýðssamtöknnum. Það er ósvífni að ætla að telja verkamönnum trú um, að með þessu sé þeim veittur nýr réttur. Verkalýðurinn sættir sig ekki við svona l. Hann á hér fjöregg sitt að verja, enda hafa a. m. k. 27 félög mótmælt þessum l., þar á meðal langstærsta og þýðingarmesta verkalýðsfélagið í landinn, sem er Dagsbrún, svo og stærstu félögin utan Reykjavíkur, svo sem verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði, og verkamannafélögin á Norðfirði og á Siglufirði. Auk þess hefir þing byggingariðnaðarmanna mótmælt þessum l., og þessi mótmæli hafa alstaðar verið samþ. með yfirgnæfandi meiri hl. og sumsstaðar í einu hljóði. Fáein félög hafa talið sig geta sætt sig við frv., en þau hafa næstum því öll tekið fram, að þau sætti sig aðeins við þau með veigamiklum breyt. Þau félög, sem hafa mælt með frv. eins og það liggur fyrir, hygg ég, að séu ekki fleiri en 3 eða 4, og í sumum félögunum hafa meðmælin verið samþ. með örlitlum meiri hl. á fámennum fundum. Önnur félög, sem hafa samþ., að þau muni sætta sig við l., eru yfirleitt minni og veikari félög úti um land, og félög, sem hefir verið ógnað til að gera þessa samþykkt. Ég hefi hlustað á málflutninginn, þegar verið var að reyna að vinna menn til fylgis við frv. Það hefir verið sagt við verkamennina, að ef þeir ekki samþ. þetta frv., þá kæmi bara annað verra í staðinn. Með öðrum orðum, ef þið ekki samþ. þetta, þá kemur hún grýla og tekur ykkur. Þetta er ekkert annað en að félögunum hefir verið ógnað til að samþ. þetta, og svo er sagt, að félögin mæli með frv., þó að vitað sé, að þau gera það tilneydd. Nei, sannleikurinn er sá, að verkalýðsfélögin hafa talað, og vilji þeirra er ótvíræður. Hv. þm. verða að gera sér það ljóst, að ef þeir ætla að samþ. l., sem þýðingarmesta stétt þjóðfélagsins er staðráðin í að beygja sig ekki undir, þá verða þeir að gera sér ljóst, til hvers slíkt leiðir. Það er alvörumál á ferðinni, þegar Alþ. er að stiga slíkt spor sem þetta. Framsfl og Alþfl. hafa áður lýst því yfir, að það sé þýðingarlaust að setja svona l. á móti vilja verkalýðsins, og þetta er vissulega rétt. En nú er einmitt verið að setja slík I. á móti vilja verkalýðssamtakanna. Hjá því fer ekki, að slík l. verða ekkert annað en ónýtt pappírsgagn eða þá, að það verður gerð tilraun til að beita ofbeldi. Í hvorugu tilfellinu verður hér um að ræða l., sem tryggi vinnufrið í landinu. Í báðum tilfeilunum verða þau til að spilla fyrir vinnufriðnum, og í báðum tilfellum til að hnekkja áliti löggjafans. Það er nærtækt dæmi um l., sem voru sett í Noregi 1927, sem varð að afnema aftur. Þar var yfirstéttin staðráðin í að beita ofbeldi, en þau voru samt brotin á bak aftur. Þegar um er að ræða heila stétt sem eina lögbrjótaheild, þýðir ekki að ætla sér að beita refsingum gegn þeirri stétt. Slíkt er ekki nokkur leið í landi, sem ríkir í einhverjar leifar af lýðræði. Þó að einhverjir af upprunalegum upphafsmönnum þessa frv. hafi ef til vill haft í huga að leggja út í stríð við verkalýðssamtökin. þá veit ég, að meiri hl. hv. þm., sem að því stendur að samþ. þetta frv., óskar ekki eftir slíku. Eigi veldur sá er varir, og þess vegna vil ég nú enn einu sinni skora á hv. þm., að þeir sjái sóma sinn í því að fella þetta frv. eða láta það daga uppi.