03.05.1938
Efri deild: 60. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1007 í B-deild Alþingistíðinda. (1363)

95. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

Brynjólfur Bjarnason:

Herra forseti! Ég þarf ekki að svara þessari löngu ræðu hv. 3. landsk. miklu, vegna þess að í henni var ekki eitt atkvæði, sem hrakti einn staf eða eitt orð í ræðu minni áðan. (SÁÓ: Hv. þm. getur gert það næst). Það þarf ekki frekar að gera það næst. Ræða hv. þm. hefir ekki meira gildi, þó að hún fyrnist.

Hv. 3. landsk. tók það fram í upphafi ræðu sinnar, að ég hefði verið að bera blak af honum, þar sem ég sagði, að hann væri ekki upphafsmaður málsins. Það er rétt, að fyrsti hvatamaður þess er hann ekki, en hann hefir látið hafa sig sem verkfæri til þess að semja l., og það eru ærnar sakir. (SÁÓ: Í Rússlandi mundi maður missa kollinn fyrir það). Ég býst ekki við, að hv. þm. mundi missa kollinn, þó að það sé auðvitað svo í Rússlandi, að ef menn taka höndum saman við fasistana til uppreisnar gegn verkalýðnum, geti þeir misst kollinn. Það er rétt, að ég minnist á það atriði, sem hv. 3. landsk. var að tala um: reglur um vinnudeilur í Rússlandi. Hann hélt því fram, að kommúnistar væru á móti öllum reglum í vinnudeilum. Það fer sannarlega eftir því, hvernig þær reglur eru. Við kommúnistar erum með þeim reglum í Rússlandi, sem gefa verkalýðnum yfirráð. Hv. 3. landsk. hefir ekki glögga hugmynd um það, sem hann er að tala um. Í Rússlandi ræður verkalýðurinn sjálfur kaupi sínu og ræður sjálfur forstjóra fyrirtækjanna. En við kommúnistar erum á móti því, að í kapitalistísku þjóðskipulagi séu settar reglur um vinnudeilur, vegna þess að við vitum, að þessar reglur hafa alltaf þann tilgang að hefta athafnafrelsi verkalýðsfélaganna. Það veit hv. 3. landsk., og hann var að segja það í öðru orðinu.

Hv. þm. spurði, hvernig okkur dytti í hug, að verkalýðurinn hefði meiri hluta í dómnum. Og hann sagði, að það væri eðlilegt, að við kommúnistar værum á móti þessari löggjöf, því að það væri einkenni byltingarstefnu, að kenna mönnum að hlýða ekki l. Það er einkennilegt, hvað hv. 3. landsk. er mikið á móti byltingarstefnum. Ég hélt, að sósíalistar gætu ekki verið á móti byltingarstefnum, því að sósíalisminn er byltingarstefna. Ef menn hætta að fylgja byltingarstefnu, eru menn ekki lengur sósíalistar. Hv. þm. hélt því fram, að við vildum engin lög hafa. og spurði, hvað við værum þá að gera hér á Alþ., úr því að við kærðum okkur ekki um lög eins og vinnulöggjöfina. Ég hélt, að hv. þm. vissi, að við höfum borið hér fram mörg lagafrv. Sum þeirra liggja í n. hjá hv. þm., og ég var einmitt fyrir skemmstu utan dagskrár að spyrja hann hvað þeim liði. Hv. þm. hefir annað að hugsa en að taka til meðferðar framfærslulöggjöf, lög um framfærslu sjúkra og örkumla og önnur lítilfjörleg mál! Það er þessi löggjöf um stéttarfélög og vinnudeilur, sem glepur hv. þm. svo mjög. Það mátti skilja það á hv. 3. landsk., að hann liti svo á, að við ættum ekkert erindi inn á Alþ., úr því að við vildum ekki samþ. slík l.

Þá sagði hv. þm., að vinnulöggjöf eins og þessi, og verri en þessi, gilti um öll Norðurlönd, en þau væru mjög til fyrirmyndar í þjóðfélagsmálum. En ég vil spyrja hv. þm.: Úr því að hann vill fara svo mjög að dæmi Norðurlanda, því vill hann þá byrja á þessari löggjöf. sem er komin þar á fyrir áhrif atvinnurekenda til höfuðs verkalýðnum? því ekki byrja á löggjöf um 8 stunda vinnudag, um vinnu kvenna og barna og ótal margt annað, sem þar er komið á fyrir löngu, en vantar alveg hjá okkur? Nei, við eigum að taka upp það í löggjöf Norðurlanda, sem er á móti verkalýðnum!

Það kom ýmislegt skrítið fram hjá hv. þm., m. a. það, að verkalýðurinn í Noregi hefði verið svo veikur, og því hefði farið sem fór 1927. En sannleikurinn er sá, að þau lög voru brotin á bak aftur. Ber það sérstaklega vott um, að verkalýðurinn hafi verið veikur? Það var ekki hægt að framkvæma lögin, af því að verkalýðurinn var svo sterkur. Það er ekki auðvelt í lýðræðislandi að setja l. og framfylgja þeim, sem eru á móti hagsmunum heillar stéttar.

Þá fór hv. þm. að reyna að hrekja ýmislegt af orðum mínum. Hann heldur því fram, að skyndiverkföll séu leyfð með þessum l. Ég skil ekki, að menn skuli geta stangazt svona við staðreyndirnar. og það m. a. s. menn, sem hafa samið frv. Hv. þm. talaði um, að ég væri mikill trúmaður. Það getur vel verið, að ég sé trúmaður, en hv. 3. landsk. slær mig margfaldlega út í þeim efnum, því að hann trúir því enn, að skyndiverkföll séu ekki bönnuð, þó að það standi margsinnis í frv. sjálfu, að þau séu bönnuð, og hv. þm. hafi sjálfur samið frv. Það stendur, að verði að tilkynna innan 7 sólarhringa um verkfall snertandi kaup og kjör. Hvað er kaup og kjör? Það er algerlega á valdi dómstólanna að skilgreina þetta. En þegar verið er að bera fram l. á móti verkalýðnum, þá er alltaf sagt, að þetta eða hitt sé alveg meinlaust. Svo koma dómstólarnir og leggja það út eins fjandsamlega verklýðnum og þeir mögulega geta. Ég býst við, að hv. þm. þekki það vel til dóma hæstaréttar, að þeir geti gert sér í hugarlund, hvernig dæmt mundi verða af þeim dómi, sem hæstiréttur ræður mestu í.

Og það er enn betur gengið frá ákvæðunum um skyndiverkföll. Eins og hv. þm. viðurkenndi, er óheimilt að hefja nokkurn tíma verkfall um atriði, sem félagsdómur á úrskurðarvald um, m. a. til leiðréttingar á samningsrofum. Þar að auki er gengið þannig frá, að félagsstjórnirnar geta ekki, án þess að láta fara fram almenna atkvgr., stöðvað vinnu, hvað sem á liggur. Ég tel ekki, þó að gert sé ráð fyrir, að trúnaðarmannaráðið geti hafið vinnustöðvun, því að svo er um hnútana búið, að til þess þarf 3/4 hluta greiddra atkvæða á lögmætum trúnaðarmannaráðsfundi eða þar yfir, þannig að ef klofningsmennirnir í Alþfl. hefðu 1/4 hluta atkv., gætu þeir hindrað vinnustöðvun. Þetta mál er ákaflega augljóst. Sem sagt, þó að maður geti sagt, að hægt væri að gera skyndiverkfall þrátt fyrir l., þá sjá það allir, sem hafa lesið þetta frv., að skyndiverkföll eru praktískt talað bönnuð.

Hv. þm. lagði þetta ákvæði, um bann gegn því, að gera verkföll til þess að leiðrétta samningsrof, þannig út, að það væri hagur fyrir verkalýðssamtökin og réttarbót. Hann rökstuddi þetta með því, að það væri svo dýrt að reka mál fyrir dómstólum. Hvernig er hægt að skilja þetta? Ég treysti mér ekki til þess og ég hygg, að svo muni vera með flesta. Vitaskuld er dýrt fyrir verkalýðsfélögin að reka mál fyrir dómstólum, og það er ágætt fyrir þau að geta flutt mál ókeypis fyrir dómi. En að af því þurfi að draga þá ályktun, að það sé hagur fyrir verkalýðsfélögin, að þeim sé bannað að gera verkföll til að leiðrétta samningsrof, það er annað mál.

Við skulum nú taka þetta ofurlítið praktískt og líta á. hvernig þetta mundi vera í atvinnugrein, þar sem um er að ræða dreifða vinnu, sem ekki stendur nema stuttan tíma hjá hverjum atvinnurekanda. Þegar um slíkt er að ræða, getur farið svo, að það verði harla lítils virði að bíða eftir úrskurði félagsdóms, t. d. hvað snertir öryggi á sinnustað. Það getur vel verið búið að kosta mannslif, áður en dómur félagsdóms fellur. Getur félagsdómur leiðrétt það, ef öryggisráðstafanir eru ekki haldnar og það kostar mannslíf? Ef um það er að ræða, að atvinnurekandi notar ekki nema sem ódýrastan vinnukraft, þvert á móti öllum samningum, hvernig getur þá félagsdómur gefið leiðréttingu á því, kannske löngu eftir að vinnan er hætt? Sama er að segja um kaupgreiðslu. Ef tregða er á því, að kaup sé greitt, og málið er lagt fyrir félagsdóm, getur farið svo, að ekkert sé af atvinnurekanda að hafa, þegar vinnunni er lokið. Það má geta nærri, hvort hv. þm. þekkir ekki mörg slík dæmi, því að honum varð tíðrætt um sína reynslu á sviði verkalýðsmálanna. Ég þekki mörg slík dæmi, þótt ég hafi kannske ekki eins mikla reynslu í þessu og hv. þm. Eina ráðið til þess að fá þá umsömdu kaupgreiðslu er að hóta vinnustöðvun. (SÁÓ: Þetta er hvergi bannað). Það er bannað ef það stendur í samningum, og ég var einmitt að tala um þau atriði, sem þar standa.

Þá vék hv. þm. að lýðræðinu í verkalýðsfélögunum og vitnaði, eins og fyrr. í önnur lönd til þess að sanna sitt mál. Hv. þm. telur eðlilegt, að undir þeim kringumstæðum, þegar um er að ræða till., sem eiga að ákveða kaup og kjör hlutaðeigandi verkamanna, geti minni hl. ráðið meiru en meiri hl.; hann telur það eðlilegt, af því að dæmi séu um slíkar reglur í öðrum löndum. Hann telur það eðlilegt, að í félagi eins og Dagsbrún geti farið svo, að atkv. sáttasemjara hafi meira að segja en atkv. 399 Dagsbrúnarmanna. Ég reikna með 2000 atkvæðisbærum mönnum í félaginu, því að ég geri ráð fyrir, að þeir muni verða það á næstunni. Hv. þm. heldur því fram, að í sjómannafélaginu hafi slíkir hlutir sem þetta aldrei komið til greina; þær atkvgr., sem þar hafa farið fram hingað til, hafi verið þannig, að þessi ákvæði myndu engin áhrif hafa. Er það ekki rétt? (SÁÓ: Jú). Ég fullyrði, að þetta sé rangt. Ég fullyrði, að það hafi komið fyrir mörg tilfelli í sjómannafélaginu, þar sem þetta myndi koma til greina. Mér er kunnugt um, að það hefir verið gerð ákvörðun um kaup og kjör á fundi í því félagi, þar sem ekki hafa verið 20% félagsmanna mættir. Aftur á móti er ekkert við það að athuga, þó að það þurfi að vera viss þátttaka í atkvgr. á fundi um veigamikil mál, til þess að hún sé gild. En hitt er athugavert, að minni hl. ráði yfir meiri hl. og að sáttasemjari hafi meiri rétt en 20% félagsmanna. Menn þekkja þess dæmi í félögum, að það þurfi stækkaðan meiri hl. til þess að samþykkja mikilsvarðandi mál, það sé ekki hægt að samþykkja lagabreyt., nema meiri hl. sé svo og svo stór. Hinsvegar þekkjast þess engin dæmi í félögum, að till. séu samþ., þrátt fyrir það þótt meiri hl. felli þær, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv. Þetta lætur sem öfugmæli í eyrum allra manna, sem eru vanir því að starfa undir lýðræðisfyrirkomulagi.

Þá kom þessi hv. þm. að pólitísku verkföllunum og banninu á þeim. Þótt undarlegt megi virðast, taldi þessi hv. þm., sem telur sig fulltrúa verkalýðsins, sjálfsagt að banna pólitísk verkföll. Ég hugsa, að það sé leit á sósialista, sem lýsir því yfir, að bann á pólitískum verkföllum sé rétt, þannig að þessi afstaða hv. þm. er furðuleg. Hann sagði, að hér væri um að ræða lög og rétt, og að það ætti ekki að gera verkföll á móti lögum og rétti, slíku ætti að breyta á Alþingi. Ég skal nefna gerðardómsl. á þessu þingi sem dæmi. Sjómannafélagið samþ. að hafa þessi l. að engu og að það teldi sig óbundið af l., hvað kjör á síldveiðunum snerti. Væru nú samþ. l. um bann gegn pólitískum verkföllum, hvaða þýðingu hefði þá fyrir sjómannafélagið að gera slíka samþykkt og þessa? Alls enga. Séu sett h um gerðardóm eða kaup og kjör yfirleitt ákveðin með sérstökum l., þá er vitaskuld bannað að gera verfall gegn slíkum l., svo framarlega sem þetta frv. nær fram að ganga. M. ö. o., hv. þm. hefir alveg gengið fram hjá því þýðingarmesta í þessu máli, að með þessum ákvæðum er hægt að taka verkfallsréttinn af verkalýðssamtökunum í öllum mikilsvarðandi deilum. Það er alltaf hægt að setja sérstök l. um gerðardóma, og þá koma þessi ákvæði til að gilda. Þá er það pólitískt verkfall að hefja vinnustöðvun í trássi við slíkan dóm og varðar sektum og ótakmörkuðum skaðabótum.

Hv. þm. kom inn á benzínverkfallið og sagði, að með því hefði ekkert unnizt. Með því unnust 400 þús. kr. á ári fyrir bilstjórana. Og svo segir hv. þm., að það hafi ekki verið verkfallinu að þakka, þótt hver einasti maður viti, sem hefir lesið blöðin frá þessum tíma, að meðan verkfallið stóð yfir. komu fram ný og ný tilboð um að verkfallinu skyldi verða létt af, jafnskjótt og Nafta fengi innflutningsleyfi. Það var trássast við þetta, þar til stjórnarvöldin urðu að láta undan. Það er því ákaflega hallur málstaður hjá hv. þm. að koma með svona rök, sem allir vita, að eru röng.

Hv. þm. talaði um, að í nágrannalöndunum færu verkalýðsflokkarnir öðruvísi að, til þess að koma sínum málum fram, en að beita pólitískum verkföllum. Þar kysu þeir bara fleiri fulltrúa á þing. Ef t. d. sjómennirnir hefðu farið þessa leið, þegar gerðardómslögin voru sett, og sagt sem svo: „Við skulum hlíta þessum l. nú, en kjósa fleiri fulltrúa á Alþingi næst“, getur verið að biðin hefði orðið nokkuð löng eftir því, að þeir fengju nógu marga þm., sérstaklega þó ef þeir væru eins innrættir og þessi hv. þm. og samþykktu l., sem taka réttinn af verkalýðsfélögunum til frjálsra verkfalla.

Hv. þm. átti ákaflega erfitt með að skilja, að þetta ákvæði móti pólitískum verkföllum væri til að ryðja fasismanum braut. Þetta sýnir, að hv. þm. hefir ekki fylgzt vel með atburðunum, sem hafa verið að gerast í heiminum undanfarin ár. Það má nefna mörg dæmi um þetta, og pólitískum allsherjarverkföllum hefir oft verið beitt til þess að hefta yfirgang fasista. Ef þetta hefði verið gert í tæka tíð í Þýzkalandi, hefði verið hægt að stöðva fasista þar. Það er sök skoðanabræðra hv. þm., að fasistar náðu fótfestu í Þýzkalandi. Þegar Kapp-upphlaupið varð, voru kommúnistar ekki tiltölulega sterkir, en þeim tókst þá að fá sósíalista í lið með sér í allsherjarverkfalli og héldu velli. Við höfum líka dæmi frá öðrum löndum, t. d. Danmörku, um pólitísk mótmælaverkföll móti afturhaldinu, og með þeim hafa unnizt þeir sigrar, sem annars hefði ekki verið unnt að vinna. Má t.d. nefna páskadagana 1921.

Hv. þm. vildi halda því fram, að tímabundin mótmælaverkföll væru leyfð þrátt fyrir ákvæði frv. Ég veit ekki, hvernig hann fer að fá það út úr frv. Eftir því að dæma eru öll verkföll bönnuð, sem gerð eru í þeim tilgangi að þvinga stjórnarvöldin til að framkvæma athafnir, sem þeim l. samkvæmt ekki ber að framkvæma, eða framkvæma ekki athafnir, sem þeim l. samkvæmt er skylt að framkvæma. Nú er vitað mál, til hvers mótmælaverkföll eru hafin, og það er því augljóst, að öll slík verkföll verða dæmd ólögleg. — Það er einkennileg þessi tröllatrú, sem hv. þm. hefir á borgaralegum dómstólum, þvert ofan í betri vitund og alla reynslu bæði hans og annara.

Í sambandi við gagnrýni mína á því, að samkvæmt frv. er hægt að ganga í sjóði verkalýðsfélaganna og tæma þá, spurði hv. þm., hvort það væri nokkuð verndarákvæði í núgildandi lögum fyrir slíka sjóði. Ég vil spyrja hann: Hvar eru í l. slík ákvæði um bann gegn hagsmunabaráttu verklýðsfélaganna sem þau, er hér á að setja? Og ef félögin brjóta í bága við þessi l., er hægt að dæma þau í sektir, allt að 10 þús. kr. og ótakmarkaðar skaðabætur. Það skiptir að vísu minnstu máli, þótt hægt sé að dæma félögin í sektir og skaðabætur, ef þau hafa það frjálsræði, sem þeim er nauðsynlegt til sinnar hagsmunabaráttu, en það á að taka af þeim samkvæmt frv. Þetta er mergurinn málsins; hitt er ekkert annað en útúrdúrar, að ætla að afsaka þetta á þann hátt sem hv. 3. landsk. þm. var að reyna að gera.

Þá talaði hv. þm. um skipun félagsdómsins og taldi þar fengið fram það bezt mögulega. Hv. þm. kallar þá skipun það bezt mögulega, að hafa einn fulltrúa frá verkalýðssamtökunum og fjóra frá andstæðingum verkalýðssamtakanna. Og svo spyr hv. þm. mig. hvernig ég geti hugsað mér, að verkalýðurinn geti orðið í meiri hl. í slíkum dómi. Ég get ekki hugsað mér, að slíkur dómur yrði settur, þar sem verkalýðurinn væri í meiri hl. Ég gæti hugsað mér dóminn skár skipaðan en þennan. en ég tel, að slíkur dómur sem þessi geti aldrei orðið nein réttarbót fyrir verkalýðinn.

Loks var hv. þm. að reyna að gylla I. kafla frv. og sýna frum á, að hér væri um einhvern stórkostlegan nýjan rétt fyrir verkalýðinn að ræða, sagði, að ekkert væri til í löggjöf Norðurlanda, sem væri hliðstætt við þennan kafla. Ég get vel trúað þessu, því að ef slíkt væri sett í l. þar, myndi verða hlegið að því, enda er það ekki til annars. Ég færði svo ýtarleg rök fyrir þessu í fyrstu ræðu minni, að ég þarf þar engu við að bæta.

Hv. þm. sagði, að við hefðum lengi þurft að berjast fyrir því, að verkalýðsfélögin væru viðurkennd sem lögformlegur samningsaðili, og að við þyrftum enn að berjast fyrir því. Vitaskuld. Og við þurfum eins að berjast fyrir því, þótt þessi l. verði samþ. Atvinnurekendur geta auðvitað sagt: „Herra minn trúr, þið eruð lögformlegur samningsaðili, en við bara semjum ekki við ykkur“.

Þá hélt hv. þm. því fram, að 1. gr. frv., þar sem tekið er fram, að menn hafi rétt til að stofna stéttarfélög og sambönd, sé einhver sérstök réttarbót, þessi réttur hafi aldrei verið viðurkenndur. Ég veit ekki betur en að mönnum sé heimilt eftir stjórnarskránni að stofna félög í öllum löglegum tilgangi. Hv. þm. sagði, að komið gæti til mála, að því yrði haldið fram, að verkalýðsfélögin væru ekki stofnuð í löglegum tilgangi. Þetta hefir aldrei verið vefengt. Og þegar litið er nánar á þetta, sjá allir, að hér liggja fyrir l., sem eru þannig úr garði gerð, að nauðsynlegar athafnir verkalýðsfélaganna í þeirra hagsmunabaráttu, sem hingað til hafa verið löglegar, eru gerðar ólöglegar, m. ö. o., starfsemi verkalýðsfélaganna, sem allt til þessa hefir verið óvefengd og lögleg, er gerð ólögleg. Þess vegna er það furðulegt, að nokkur skuli halda því fram, að hér sé um nýjan rétt að ræða.

Nokkurn veginn hið sama er hægt að segja um það, sem hv. þm. sagði um trúnaðarmennina. Hann eyddi mörgum orðum til þess að sýna fram á, hversu rangt það væri hjá mér, að þeir væru til einskis gagns. Ég hélt því fram í ræðu minni, og hefi alltaf haldið því fram, að það væri mikils virði fyrir verkalýðsfélögin að hafa trúnaðarmenn. Vitaskuld. Og það væri mikilsvert, ef verkalýðsfélögin fengju viðurkennt með l., að þeir væru friðhelgir. En það er gersamlega þýðingarlaust að setja í l. ákvæði um trúnaðarmenn, nema réttur þeirra sé tryggður. Verkalýðsfélögin geta hvar sem er sett trúnaðarmenn, en þeir hafa engan lagalegan rétt. Það er hægt að reka þá af vinnustaðnum, þó að það standi í l., að það megi ekki gera það vegna pólitískra skoðana. Og þrátt fyrir þessi l. myndi ekki vera hægt að fá á togara trúnaðarmann. sem rækti sitt eftirlitsstarf, án þess að eiga það á hættu, að hann fengi hvergi vinnu á flotanum.

Það yrði að tryggja þeim vinnu á annan hátt en með þessum l.

Í vinnulöggjöf Norðurlanda er þessu betur fyrir komið. Í Danmörku eru ákvæði í l., sem tryggja trúnaðarmenn fyrir ofsóknum. En slíkt vantar með öllu í þessi l.

Hv. þm. sagði, að það væri betur vandað til þessarar löggjafar en hliðstæðrar löggjafar á Norðurlöndum, hvað snerti kosningu trúnaðarmanna, þar sem gert væri ráð fyrir, að félagsstj. tilnefndu þá, en ekki verkamenn á vinnustaðnum. Hv. þm. áleit það hættulegt. Hverskonar trúnaðarmenn myndu verkamenn kjósa? Þeir myndu kjósa þá, sem þeir treystu bezt. En hv. þm. er hræddur um, að þeir myndu ekki treysta bezt þeim sömu mönnum og hann. Hann vill hafa fulltrúa, sem verkamenn e. t. v. treysta ekki. Ég skal í þessu sambandi minnast á trúnaðarmanninn við Sogið. Trúnaðarmaðurinn, sem verkamenn kusu sér, var mjög gallaður á ýmsan hátt, en samt sem áður treystu þeir honum betur en þeim, sem nánustu samstarfsmenn hv. 3. landsk. þm. voru að reyna að troða upp á þá, svo að þarna er höggvið nokkuð nærri hv. 3. landsk., þegar hann er að tala um þetta. Ég held, að það sé bezt fyrir hann að tala sem minnst um slíka hluti.

Að síðustu kom hv. þm. inn á mótmæli verklýðsfélaganna og hélt því fram, að aðeins lítill hluti verklýðsfélaganna hefði tekið þátt í þessum atkvgr. Það var nú séð svo um, eins og kunnugt er, að verklýðsfélögin hefðu svo lítinn hlut til þess að taka afstöðu til málsins, að þau áttu yfirleitt ekki kost á því, að láta málið fara til allsherjaratkvæðagreiðslu. En hitt er víst, að í þeim félögum, þar sem samþ. voru mótmæli gegn vinnulöggjöfinni, en það er yfirleitt í stærstu og þýðingarmestu félögum landsins, var þetta samþ. á mjög fjölmennum fundum með yfirgnæfandi meiri hl. eða í einu hljóði. Þetta veit hv. 3. landsk. Aftur á móti er öðru máli að gegna með þau félög, sem slysuðust til að mæla með frv. Ég nefndi tvö félög, sem kannske eru þau þýðingarmestu af þeim, sem fengizt hafa til þess að mæla með frv. Í öðru félaginu var till. þeirra skoðanabræðra hv. 3. landsk. samþ. með 34:18 atkv., en í hinu félaginu, Prentarafélaginu, var hún samþ. með 22:17 eða 18 atkv. Þannig var nú atkvgr. þar, og með þessum félögum er flaggað alveg sérstaklega. Ekki í einu einasta félagi, sem mælti með frv., var allsherjaratkvgr., heldur var hóað saman fundum af nokkrum mönnum, og tókst að keyra þetta í gegn með örlitlum atkvæðamnn á mjög fámennum fundum. Ég lýsti því í framsöguræðu minni, hvernig lítil félög voru fengin til að mæla með þessu.

Hv. þm. vildi ekki fallast á það, að mikill meiri hl. verkalýðshreyfingarinnar hefði mótmælt þessu frv. Ég get, ef hann vill, talið upp þau félög, sem hafa mótmælt frv. — en svo eru önnur, sem hafa mælt með því, að l. yrðu sett, en bara önnur l. en þessi —: verkamannafélagið Dagsbrún, þvottakvennafélagið Freyja, A. S. B., Múrarasveinafélag Reykjavíkur, Málarasveinafélag Reykjavíkur, Félag járniðnaðarmanna, starfsstúlknafélagið Sókn, Iðja, félag verksmiðjufólks í Rvík, Iðja, félag verksmiðjufólks á Akureyri, verkalýðsfélagið Þróttur á Sigluf., Verkamannafélag Akureyrar, verkakvennafélagið Einingin á Ak., Bílstjórafélag Akureyrar, Verkalýðsfélag Húsavíkur. verkalýðsfélagið Hvöt á Hvammstanga, Verkalýðsfélag Norðfjarðar, Verkalýðsfélagið á Eskifirði, verkalýðsfélagið Drífandi í Vestmannaeyjum, Verkakvennafélagið Snót í Vestmannaeyjum, Verkalýðsfélag Borgarness, Verkalýðsfélagið Bjarmi á Stokkseyri, Verkalýðsfélagið Báran á Eyrarbakka, Vélstjórafélag Akureyrar, verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði og Bakarasveinafélag Íslands, með því að fella till., sem mælti með frv.

Öll þessi félög hafa harðlega mótmælt, og það er alveg fullvíst, að svo framarlega, sem tími hefði unnizt til að láta allsherjaratkvæðagreiðslu fara fram í félögunum, hefðu úrslitin orðið ákaflega svipuð. Maður sér það á því, að því fjölmennari sem fundirnir hafa verið; því tiltölulega fleiri hafa greitt atkv. með mótmælunum.

Það má t. d. nokkuð marka málflutning þessa hv. þm. á því, sem hann var að fræða hv. þdm. um meðferð þessa máls í verkamannafélaginu Hlíf. Þar var málið rætt á tveimur fundum, sem báðir voru boðaðir opinberlega, og yfirleitt var ekkert til þess sparað, að þetta mál yrði tekið til rækilegrar meðferðar í félaginu. öðrum þessum fundi voru mættir þeir menn, sem skoðanabræður hv. 3. landsk. telja sína sterkustu menn í þessu máli, lögfræðingur, sem fenginn var til að semja álit n., og hv. þm. Seyðf., sem þá var atvmrh. En svona fór nú samt þar. Svo komum við að Sjómannafélaginu, og það merkilega skeður, að um leið og hv. þm. er að finna að því, að ekki hafi farið fram allsherjaratkvæðagreiðsla í þeim félögum. sem hafi samþ. mótmæli með e. t. v. 3–4 atkv. atkvæðamun, þá boðar hann alls ekki til fundar í Sjómannafélaginu til þess að taka málið fyrir. Það hefði verið meira en nógur tími til þess, eftir að gerðardómurinn féll, svo að hann hefði getað látið þetta mál fara til allsherjaratkvæðagreiðslu; ef honum hefði verið það áhugamál, hefði hann getað það. En ástæðan fyrir því, að hv. þm. hefir ekki leitað álits félagsins, er allt önnur; hún er sú. að hv. þm. veit, að meiri hl. félagsins er andvigur þessum lögum.

Eg get svo látið þetta nægja að sinni. Við höfum, eins og hv. þm. tók fram, tíma til þess að ræða frekar um þetta síðar, ef okkur sýnist svo.