02.05.1938
Neðri deild: 59. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1033 í B-deild Alþingistíðinda. (1374)
125. mál, tollalækkun á nokkrum vörum
Frsm. (Ólafur Thors):
Þetta frv. er flutt af fjhn. Nd. samkv. beiðni frá stj. Það fer fram á heimild fjmrh. til handa um að mega lækka nokkuð innflutningsgjald af þeim vörum, sem nefndar eru í 1. gr. frv. Ollum hv. þm. eru kunnar ástæðurnar að þessu, og sé ég því ekki, að nein ástæða sé til að ræða málið frekar að þessu sinni.