10.05.1938
Efri deild: 70. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (1389)

125. mál, tollalækkun á nokkrum vörum

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Eins og getið er um í nál. fjhn. á þskj. 499, þá hefir n. kynnt sér þær ástæður, sem gera nauðsynlegt að samþ. þetta frv., en ekki þykir rétt að fara nánar út í það opinberlega. En þar sem þetta frv. er eingöngu um það, að lækka toll á nokkrum tilteknum vörutegundum, má gera ráð fyrir, að enginn hafi neitt á móti því, að það verði samþ. Það er einróma till. n., að frv. verði samþ. óbreytt.