10.05.1938
Efri deild: 70. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1036 í B-deild Alþingistíðinda. (1409)

124. mál, ellistyrktarsjóðir sveitar- og bæjarfélaga

Frsm. (Páll Hermannsson):

Eftir breyt., sem gerð var á l. um alþýðutryggingar, var svo ákveðið, að borga skuli út alla vexti af innstæðu ellistyrktarsjóða, en nú eru þeir geymdir í aðaldeild Söfnunarsjóðs Íslands, en eftir l. hans má aldrei borga út alla vexti af því, sem geymt er í aðaldeild. Þetta frv. er því lagaleiðrétting, til þess að hægt sé að framkvæma l. samkv. útborgun vaxta af ellistyrktarsjóðunum. Þetta frv. hefir verið samþ. í Nd. og hefir nú verið athugað í allshn. þessarar d. Leggur hún einróma til, að frv. verði samþ.