06.05.1938
Neðri deild: 66. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1037 í B-deild Alþingistíðinda. (1420)

107. mál, sveitarstjórnarkosningar

*Gísli Sveinsson:

Herra forseti! Enda þótt ég geti ekki viðurkennt, að þörf sé á að ákveða í l. um sveitarstjórnarkosningar, að þeir, sem eru í framboði, megi ekki sitja í kjörstjórn, og teldi því óþarft það ákvæði, sem sett var um þetta í l., og enda þótt ég sé ekki viss um, að úr sé bætt að fullu með þessari brtt. hv. n. þeim vandkvæðum, sem hér koma til greina, vil ég þó sem 1. flm. málsins sætta mig við brtt., í von um, að þetta komi ekki að sök í framtíðinni. Þó er hér ekki enn þannig frá gengið, að útilokað sé, að menn geti komizt í nokkurn bobba með framboð og kjörstjórn í fólksfáum sveitum, þar sem þó er þörf á að halda uppi fullum lögskilum, að því er kosningar snertir, eins og í öðrum hreppum.