07.05.1938
Efri deild: 67. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1059 í B-deild Alþingistíðinda. (1505)

89. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

*Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Ég skal reyna að lengja ekki mál mitt meira en nauðsyn krefur. Mér skildist, að hv. þm. S.-Þ. væri dálítið úrillur í dag, og það er því kannske ekki rétt að fara út í gamlar væringar nema það allra nauðsynlegasta í þessu viðkvæma máli hans. Hann vildi sannfæra mig um skaðsemi varamanna með því dæmi, sem hann tilfærði hér um varamannssæti hans í tryggingarráði. Hann sagði, að fyrrv. atvmrh., flokksbróðir minn, hefði gert það ónýtt, sem hann sem varamaður hefði komið til leiðar. (JJ: Hann ætlaði að gera það ónýtt). Það má vel vera, að þar hafi komið fram einhverjir ókostir á varamanninum. Ég efast ekki um, að hv. þm. S.-Þ. hefir verið að vinna þar einhver skaðsemdarverk, fyrst fyrrv. atvmrh. sá ástæðu til að reyna að koma í veg fyrir þau verk. Var ekki farið svo að í því tilfelli, að gengið var fram hjá aðalmanninum og hann ekki boðaður til fundarins? Það hefir því varla verið um það að ræða, að aðalmaðurinn gæti ekki mætt, heldur hefir varamaðurinn hér troðið sér inn. Mér hefir aldrei dottið það í hug, að varamaður noti aðstöðu sína til þess að bola út aðalmanni til þess að koma fram ákveðnum skaðsemdarverkum í ákveðnu máli. Hann var að vitna í kaupfélögin og sagði, að stjórnirnar þar þyrftu ekki að vinna svipuð verk og hann áleit, að ríkisverksmiðjustjórnin þyrfti að gera. Ég hefi nú ekki lög og reglur kaupfélaganna fyrir framan mig, en ég hygg, að flestar stjórnirnar þar hafi varamenn. En ég man ekki, hvernig það er í S. Í. S., en það or líka nokkuð annars eðlis. Það er hliðstæða við Alþ. og ríkisstj., því að fulltrúarnir koma þar fram sem þingmenn. Stjórnin er þar eins og ráðh. milli þinga.

Ég hefi aldrei látið mér detta í hug að blanda þessu saman við bankastjóra og ráðh. Það er framkvæmdarstjóri við verksmiðjurnar, sem er hliðstæður við bankastjóra og ráðh. Ég hefi ekki gert till. hér um varaframkvæmdarstjóra. Þessi rökstuðningur hjá hv. þm. er því ekki réttur. Það vita allir, að verksmiðjustjórnin ræður miklu um starfrækslu verksmiðjanna, svo sem fyrir hvað hún selur afurðirnar og hvað hún gefur fyrir síldina og ýmislegt fleira. Það er ekki þar með sagt, að stjórnin vinni að öllum framkvæmdaratriðum, eins og bankastjórar gera og ráðh., sem starfa í stjórnarráði Íslands fyrir landsins hönd. Ég visa þessari tilraun til rökfærslu af hálfu hv. þm. í þessu máli alveg heim aftur til föðurhúsanna.

Öðrum atriðum, sem hann reyndi að blanda saman við þetta mál, snertandi fyrri framkvæmdir í rekstri verksmiðjanna, ætla ég að ganga fram hjá, af því hv. 11. landsk. gerði því máli nokkur skil, enda eru það gamlar lummur, því að svo oft er búið að deila um þetta í þinginu, og ég hefi ekki séð hv. þm. S.-Þ. ríða feitum hesti út úr þeim umr., enda hefir hann ekki haft rökin á sína hlið.

Hann vitnaði í Seyðisfjarðarverksmiðjuna og vildi skella sökinni á Alþfl. og sérstaklega atvmrh. á því, hvernig rekstur þeirrar verksmiðju hefði gengið. Það er vitanlegt um þessar minni verksmiðjur, að þær eru ekki sambærilegar við hinar stærri. En ég vil minna hv. þm. á annað. Hv. þm. S.-Þ. hefir hjálpað kjósendum sínum og þeim, sem ekki eru kjósendur hans, til að koma upp verksmiðju á Húsavík. Nú dettur hv. þm. ekki í hug, að hún sé rekin sjálfstætt. Nei, hann ætlar ríkinu að reka hana til þess að komast hjá rekstrartapi. Hann er þess fullviss, að litlar verksmiðjur, eins og Seyðisfjarðarverksmiðjan og Húsavíkurverksmiðjan, geti ekki staðið einar sér. Ég hygg því, að það, sem hann sagði um tap á rekstri Seyðisfjarðarverksmiðjunnar, sé á rökum byggt, því að verðið á síldinni er svo hátt, að svona litlar verksmiðjur geta ekki staðið undir þeim kaupum. Hann ætlar að forðast það, að þetta endurtaki sig með þá verksmiðju, sem er í hans kjördæmi, og því ætlar hann að láta ríkið taka hana að sér. Og þykist ég þá hafa svarað honum, hvað það atriði snertir.

Ég vil að síðustu minnast á eitt atriði, sem hann blandaði í þetta mál, en hv. 11. landsk. minntist ekki á, sem sé vinnudeiluna á Siglufirði. Ég ætla engan dóm á það að leggja, hvort þar er farið ósanngjarnlega í sakirnar eða ekki. En í samræmi við það, sem ég áður hefi sagt, þá er það bein afleiðing af vaxandi dýrtið í landinu, að verkamenn biðja um hærra kaup. Ég vil benda hv. þm. á, að atvinnurekendur, sem eru í miklum meiri hluta um atvinnurekstur á Siglufirði og eru sennilega flestir ekki í flokki hv. þm. S.Þ., þótt þeir séu honum kannske vinveittir á annan hátt, hafa gengið hér á undan með virðingarverðu eftirdæmi um að mæta verkamönnunum nokkuð í þessu efni. Þar hefir því verið sköpuð regla um það á Siglufirði, hvaða kaupgjald væri talið sanngjarnt að búa við. Þegar þeir eru búnir að koma kaupgjaldinu í það horf, sem raun ber vitni um, þá er eðlilegt, að ríkið sem atvinnurekandi verði að fara í kjölfarið þar á eftir. Ég býst við, að framsóknarverkamenn, ef þeir eru til á Siglufirði, séu sammála öðrum verkamönnum um þetta. (BSt: Þeir eru þar til). Hv. 1. þm. Eyf. segir, að framsóknarmenn séu þar til.

Ég skal forðast að lengja þessar umr. frekar en nauðsyn ber til. Ég hefi ekki getað sannfærzt af ræðu hv. þm. S.-Þ. um það, að verkamenn séu ónauðsynlegir, og því síður hefi ég getað sannfærzt um það, að þeir væru skaðlegir. Öll dæmin, sem hann reyndi að færa fram um það, að þeir væru skaðlegir eða ónauðsynlegir, voru svo lítils virði, að ég hefi ekki getað sannfærzt.

Að síðustu vil ég segja örfá orð við hv. þm. Vestm. Hann vildi gefa í skyn, að þótt svo vildi til, að einhver félli í valinn af þeim, sem væru í verksmiðjustjórn, þá yrði ekki skotaskuld úr því að búa til mann í staðinn, og vitnaði í því sambandi í það, að fyrrv. atvmrh. hefði ekki búið til einn mann í stjórn, heldur alla stjórnina. Það var mál, sem á sínum tíma var ákveðið með samþykki meiri hl. þings. Það hefir verið upplýst í þessari hv. d. og í þinginu yfirleitt, að ráðh. setti þá bráðabirgðastjórn með samþykki meiri hl. þings.

En nú mætti búast við, þó að svo vel hefði tekizt til í eitt skipti, að þá sé ekki alltaf hægt að setja einn mann eða tvo inn í verksmiðjustjórnina, ef einhver fellur frá. Verksmiðjustjórnin er skipuð til þriggja ára í senn, og ef einhver deyr, getur Alþ. kosið í skarðið. En nú er alls ekki vist, að Alþ. sé starfandi á þeim tíma, sem maðurinn deyr, og það geta hæglega liðið 9 mánuðir, þar til það kemur saman, en það þarf að skipa annan mann í stað hins látna yfir þessa 9 mánuði. Ég býst við, að Framsfl. eða hv. þm. S.-Þ. teldi sig illa haldinn, ef formaður verksmiðjustjórnarinnar dæi milli þinga og ekki kæmi maður í manns stað. Við nánari athugun mun hv. þm. S.- Þ. fallast á það, að ef átrúnaðargoð hans skyldi falla frá, þarf að búa til annað.