11.05.1938
Efri deild: 73. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1083 í B-deild Alþingistíðinda. (1605)

126. mál, vatnalög

Forseti (EÁrna):

Ég bjóst ekki við því, að hv. 6. lands. myndi fara að veita mér ákúrur fyrir, að ég lét þetta mál, sem hér um ræðir, ganga í gegnum 2. umr., þegar enginn úr hlutaðeigandi n., sem hafði haft málið til meðferðar, kvaddi sér hljóðs. Þetta mál er litið og einfalt og hefir gengið í gegnum Nd. og gengið hér í gegn alveg ágreiningslaust. Það er svo á þessum síðustu dögum þingsins, að mál ganga venjulega með meiri hraða en á öðrum tímum þingsins, en þess vegna virðist í raun og veru engin ástæða til þess að draga mál, sem er jafneinfalt eins og þetta mál er og enginn ágreiningur er um. Ég hefi það fyrir venju að gefa frsm. orðið, eða einhverjum öðrum úr n., ef frsm. er ekki við. Hvorugur hinna nm. hafði óskað eftir því að taka til máls, enda var enginn ágreiningur um málið.

Annars sé ég ekki ástæðu til, út af jafnlitilfjörlegu atviki, að taka þetta neitt frekar til meðferðar.