10.05.1938
Neðri deild: 71. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1085 í B-deild Alþingistíðinda. (1624)
132. mál, stimpilgjald
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Brtt. sú, sem hér er flutt, fer aðeins fram á það, að í stað þess, að ríkisstofnanir hafa verið skyldaðar til að nota stimpilmerki á ávísanir, þá sé þeim nægilegt að setja á ávísanirnar stimpil, sem er auðkennandi fyrir þær ávísanir, sem frá þeim koma.
Ég vona, að hv. þm. geti fallizt á þessa brtt., þar sem hún er aðeins til sparnaðar.