28.04.1938
Neðri deild: 56. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1098 í B-deild Alþingistíðinda. (1636)

119. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Hv. þm. Dal. sagðist ekki vera ánægður með það, að grg. frv. væri í blaðamannastil. Ég er ekki sammála hv. þm. um það, því að mér finnst, að í grg. sé einmitt á mjög málefnalegan hátt skýrt frá ástæðunum, sem liggja að frv. Þá er orðið vandlifað, ef ekki er þinglegur frágangur á grg.

Hv. þm. óskaði eftir ýmsum upplýsingum, sem þyrftu að liggja fyrir, og er ekki nema gott um það að segja, að þm. óski eftir slíkum skýrslum. Í fyrsta lagi bað hann um upplýsingar um lausaskuldir ríkissjóðs. Ég vil benda á, að í fjárl. ræðu minni. sem ég flutti í upphafi þings, gerði ég fulla grein fyrir því atriði, hverjar skuldirnar væru og hverjar breyt. hefðu orðið á árinu. Það er alltaf svo, að yfir mitt ár hækka skuldirnar mikið, því að það lætur nærri, að ef ríkissjóður þyrfti aldrei að taka yfirdráttarlán, ætti hann að eiga 2–3 millj. í sjóði um áramót. En það er langt síðan svo hefir staðið á. Það er ekkert við því að segja. þó að sjóðsaðstaðan sé á þessa leið. Ég vil t. d. í sambandi við það benda á, að fjmrn. danska skuldaði 92 millj. í bönkum í Khöfn í árslok 1937, og er þó þeirra aðstaða talin prýðileg. Upplýsingar um skuldirnar er að finna í ræðu minni, sem ég nefndi áðan, en ef hv. þm. vildi vita nánar um einstaka liði, er það auðvitað sjálfsagt.

Í sambandi við frv. um innanlandslántöku voru líka gefnar nákvæmar upplýsingar. Skýrslur um ábyrgðir, sem ríkið er í, er að finna í Lr. á hverjum tíma, en endurskoðun Lr. 1936 hefir staðið lengi, en er nú lokið. Er í honum að finna tæmandi skýrslur.

Um heildarskuldir þjóðarinnar út á við er það rétt hjá hv. þm.. að það er dálítið á reiki, því að hagstofan hefir ekki fengið nógu fullkonmar upplýsingar um þær. Í þessu sambandi vil ég leiðrétta það, sem þráfaldlega hefir komið hér fram, eins og t. d. hjá hv. þm. G.-K. áðan, að á síðustu 3 árum hefði orðið 27 millj. kr. skuldaaukning. Nú skulduðum við 110 millj., en í árslok 1934 hefðum við skuldað 83 millj. Hagstofan segir, að skuldirnar hafi verið 90 millj. í árslok 1936. en síðan liggur ekkert fyrir um þær. Gjaldeyrisástandið getur verið mjög erfitt, þó að skuldirnar í heild hækki ekki. Þó að það kunni að vera svo, að þarna séu ekki allar skuldir taldar, ætti þetta að geta gefið fullnægjandi upplýsingar. Skipulagsnefnd atvinnumála hefir sjálfsagt gengið fastar eftir og því fengið aðra útkomu, en hagstofan mun svo leiðrétta eftir því. En það má ekki bera saman eldri tölur hagstofunnar og útkomu skipulagsnefndar. Hvað sem menn langar til að gera sem minnst úr því, hvernig núv. ríkisstj. hafi tekizt fjármálastjórnin, er ekki ástæða til að vera að ljúga skuldum upp á landsmenn. Ég álít varhugavert að vera að fleipra um slíkt. þegar allir eru sammála um, að við verðum að halda lánstrausti þjóðarinnar.

Ég hefi ekki við höndina tölur, sem á er byggjandi, aðrar en tölur hagstofunnar. Hún hefir þetta með höndum fyrir fjmrn., og ég efast ekki um, að hagstofustjóri vandar sem bezt til verksins.

Þá spurði hv. þm., hvort hægt væri að fá skýrslu um, hvað mikið fé það væri, sem ekki væri hægt að yfirfæra, en menn hefðu ísl. gjaldeyri fyrir. Það hafa farið fram athuganir af hálfu bankanna á þessu atriði, og undanfarin 2 ár hefi ég fengið um þetta upplýsingar frá bönkunum mánaðarlega. Þrátt fyrir það er erfitt að fá nákvæma niðurstöðu í þessu efni, og til þess liggja margar ástæður, sem ég ætla ekki að fara út í hér. 13. apríl var gerð sérstök athugun á þessu og þá lágu fyrir hjá bönkunum, þar með taldar skuldir ríkisstofnana, kringum 3 millj. kr. af kröfum. sem féllu í gjalddaga fyrir 1. jan. 1937, en þá var búið að greiða eitthvað upp í kröfur frá fyrra ári, svo að við síðustu áramót á undan hefir þessi tala verið hærri, og margt bendir til þess, að þessar kröfur í bönkunum hafi verið milli 4 og 5 millj. kr. um áramótin. Hv. þm. minntist á, hvort kannaðir hafi verið möguleikarnir fyrir greiðslusamningum hjá einstökum fyrirtækjum. Einstök fyrirtæki hafa að vísu fengið framlengda gjaldfresti sína, en okkur hefir sýnzt, að sú leið, að ætla einstökum fyrirtækjum að semja við þá, sem eiga skuldakröfur á þau, muni ekki vera fær.

Það er rétt, að einstaka ríkisstofnanir hafa samið að nokkru leyti um sínar skuldir, en það er ekki hægt að gera almennt. Til þess eru kröfurnar of margar og smáar.

Þá spurði hv. þm., hvað ég teldi hinar „duldu greiðslur“ miklar, og kvartaði yfir því, að um það hefðu komið fram mismunandi skoðanir. Það er í sjálfu sér mjög eðlilegt, eins og hv. þm. kannast við, að það komi fram dálítið mismunandi skoðanir um þetta, af þeirri einföldu ástæðu. að þær eru mjög misjafnar frá ári til árs. Það fer eftir því, hvað miklu er eytt í utanlandsferðalög, það fer eftir því, hvernig farmgjöldunum er háttað, hve mikið okkar skip flytja og enn fleiri atriði koma til greina. En það er álitið, eins og oft hefir verið minnzt á hér í þinginu, og því hefir verið haldið fram af skipulagsnefnd, að fyrir utan afborganir af föstum lánum væru þessar greiðslur rúmlega 5-6 millj. kr., og ég hefi venjulega gert ráð fyrir 6 millj. kr. í þessu skyni, þegar ég hefi rætt um þessi mál, viðvíkjandi vörubirgðunum vil ég upplýsa það, að áður en ég gerði yfirlit um verzlunina í útvarpið, eins og venja er á hverju ári, lét ég athuga gaumgæfilega, hvað til væri af íslenzkum vörum í landinu, og er í þeirri ræðu að finna nokkrar upplýsingar um þetta. Ég komst að þeirri niðurstöðu, samkvæmt því sem einstök firmu og aðrir gáfu mér upp, að vörubirgðirnar væru nokkru meiri en í ársbyrjun aðallega vegna síldarolíunnar. sem þá var fyrir í landinu. En þrátt fyrir það ber allt að sama brunni í því, að eins og útlitið er og eins og vertiðin virðist ætla að ganga, er ekki hægt að búast við, að unnt verði að flytja út 41/2 millj. kr. af gjaldeyri í afborganir án þess að fá lán. Hv. þm. hljóta því að vera sammála um, að það verði að gera einhverjar ráðstafanir í þessu skyni, eins og viðurkennt var af hv. þm. G.-K. í hans ræðu. Ég mun að sjálfsögðu veita hv. þm. Dal. frekari upplýsingar um þau atriði, sem hann telur ekki nægilega upplýst, ef hann óskar þess. Hv. þm. minntist líka á notkun þessa fjár. Það eru gefnar upplýsingar um það í grg. frv.

Hv. 5. þm. Reykv. fór nokkrum orðum um þetta mál og sagði í því sambandi, að hann væri hræddur um, að ekki kæmi allur sá gjaldeyrir, sem til ætti að falla, til afnota fyrir þjóðina, og að það væri engin stofnun, sem hefir með höndum að líta eftir þessu. Út af þessu skal ég upplýsa, að það er sérstök deild af skrifstofu gjaldeyrisnefndar, sem ekki starfar annað en að heimta inn upplýsingar um útflutningsverðmæti þeirra vara, sem sendar eru til útlanda, fá upplýsingar hjá bönkum landsins um, hvað þeir fái inn af gjaldeyrinum. Er þetta gert svo nákvæmlega, að það er færður reikningur fyrir hvern útflytjanda, og er öðru megin fært það, sem hann tilkynnir til útflutnings, eftir að verðið hefir verið gagnrýnt af hlutaðeigendum, en hinsvegar það, sem kemur inn frá honum til bankanna. Í febrúarmánuði var mér gefin skýrsla um, hvaða aðiljar hefðu ekki skilað gjaldeyri á árinu 1937 samkvæmt því, sem þeir áttu að gera, og það kom í ljós, að það voru mjög fáir og tiltölulega mjög smáar upphæðir, sem um var að ræða. Verður gengið hart eftir því, að menn geri skil. Það má segja, að til séu leiðir til þess að sleppa með gjaldeyri úr landinu, fyrst og fremst með því að gefa upp lægra verð á útfluttum vörum en rétt er og ráðstafa mismuninum, og í öðru lagi með því að gefa upp hærra verð á innfluttum vörum en þær kosta og ráðstafa því þannig, að hlutaðeigandi firmu skili mismuninum aftur þeim, sem greiða hann. Það er haft mikið eftirlit með því, bæði í samráði við síldarútvegsnefnd og aðra, sem eru kunnugir útflutningsverði, að rétt sé gefið upp útflutningsverð, þannig að þó að það kunni að vera eitthvað, sem þannig fellur undan, þá getur það aldrei verið neitt, sem verulegu máli skiptir. Einnig er haft auga með innflutningsverðinu, þó að það sé miklu erfiðara, en menn eiga á hættu að þurfa að greiða of háa tolla, ef menn gefa upp of hátt verð.

Ég sé ekki ástæðu til að lýsa neinu yfir um, hvar leitað verði fyrir um þessa lántöku að svo stöddu, og fer því ekki að þreyta kappræðu um það við hv. 5. þm. Reykv. Mér þykir óviðkunnanlegt, að þessi hv. þm. skuli sí og æ vera að tala um Landsbankann eins og umboðsmann erlendra aðilja hér á landi, sem sé meira og minna fjandsamlegur alþýðu landsins. Ég kann hálf illa við þetta og held, að hv. þm. væri sæmra að leggja þetta tal niður.

Hv. þm. G.-K. ræddi nokkuð um frv., án þess að hann lýsti afstöðu til þess fyrir hönd Sjálfstfl. Hann minntist á það, að samkvæmt áliti hans og þeirra sjálfstæðismanna mundi ekki hafa þurft að grípa til þessa úrræðis, ef þeir hefðu haft aðstöðu til þess að stjórna eftir sínum geðþótta undanfarið. Hann fór ekki langt út í þetta mál, og mun ég ekki heldur fara langt út í að ræða þetta almennt. Ég vil þó benda hv. þm. á það, sem mér fannst hann ekki mundi hafa gert sér ljóst, að það hefir verið annað að fást við þessi mál undanfarin ár heldur en árin 1924–1927, þegar Sjálfstfl. hafði hér meiri hl. aðstöðu, og að það er vitanlega ekki rétt að vitna til þess, sem þá var gert, og nota það sem röksemd fyrir því, hvernig farið hefði hjá sjálfstæðismönnum, ef þeir hefðu verið í stjórnaraðstöðu undanfarin 3 ár. Árin 1924—1927 eru einhver mestu góðæri, sem hér hafa komið. Þá var verðið á saltfiski þannig, að 1924 fengust 190–200 kr. fyrir skp., 1925 160–190 kr. og 1926 100–120 kr. 1935 voru hinsvegar greiddar 70–85 kr. fyrir skp. og 1937 73-85 kr. Þetta er samkv. upplýsingum Fiskifélagsins. M. ö. o. er verð fiskjarins nú um helmingur af því, sem það var á árunum 1924–1927. Ennfremur get ég upplýst það, að útflutningsverðmæti saltfiskjarins hefir verið 24 millj. kr. minna að meðaltali á ári undanfarin 3 ár heldur en á þessu tímabili. Þó að dregnar væru frá þessum mismun þær 10 millj. kr., sem verðmæti síldarinnar hefir síðustu árin farið fram úr því, sem áður var, þá er mismunurinn samt 14 millj. kr. á ári. Ég er hræddur um, að það hefði litið öðruvísi út eftir árin 1924–1927 og ekki verið hægt að hafa sömu aðferð og þá var viðhöfð, ef svipað hefði verið ástatt þá og síðustu árin. Ég skal ennfremur geta þess, að innflutningurinn öll þessi ár 1924–1926 var svo mikill. að það hefði orðið stórkostlegur greiðsluhalli öll árin með núverandi útflutningsverðmæti. Árin 1924 –1926 stóðu skuldirnar við útlönd ekki einu sinni í stað, þrátt fyrir þessi eindæma góðæri, þær hækkuðu um 10 millj. á þessum árum. Beri menn þær niðurstöður og ástæður, sem fyrir hendi voru 1921–1927, saman við niðurstöðu 3 síðustu ára, þá hljóta menn að verða sammála um, að í þeim samanburði er engar röksemdir að finna fyrir fullyrðingu hv. þm. G.-K. um afkomuna undir stjórn stjórnarandstæðinga.

Það hafa ýmsir talað um, að síldin hafi reynzt vel, og það er rétt, að hún gerði það á síðasta ári, en það vita allir hv. þm., að síldin hefir alis ekki megnað að vega upp á móti tjóninu af saltfisksölunni nema, eins og ég hefi þegar sýnt fram á, að litlu leyti. Það hefi verið minnzt á það áður, hve gífurlegan aukakostnað það hefir leitt af sér undanfarin ár að breyta útveginum frá því, að vera nær eingöngu þorskútgerð, í það að verða að öðrum þræði síldarútgerð. Ef einhver skyldi efast um muninn á afkomumöguleikum síðustu árin og árin 1921–1927, þá nægir að vísa til útgerðarfyrirtækjanna sjálfra. Ég vænti, að öllum sé það ljóst, að þrátt fyrir það, hvernig síldveiðin hefir gengið, er afkoma útgerðarfyrirtækjanna nú ekki að neinu leyti sambærileg við það, sem hún var 1924–1927. Ég veit, að hv. þm. G.– K. er manna bezt kunnugt um, að síldveiðin hefir ekki megnað fyrir hans fyrirtæki og önnur hliðstæð að vega upp nema litið brot af þeim skaða, sem þau hafa orðið fyrir vegna hruns þorskveiðanna. Afkoma útgerðarfyrirtækjanna er í rauninni einskonar spegilmynd af því, hvað ástandið hefir verið ólíkt á þessum tveimur tímabilum, þó að það skuli játað, að þessi mismunur hefir verið enn meiri hjá útgerðarfyrirtækjunum sjálfum en hjá þjóðinni í heild.

Hv. þm. minntist á það, að þótt afli hefði verið tregur við Faxaflóa á aðra báta en frá. sem notuðu net, mundu menn hafa hliðrað sér hjá að kaupa net vegna gjaldeyrisvandræðanna. Ég er þessu ekkí persónulega kunnugur, en ef svo hefir verið, þá hefir það verið á móti mínum vilja. Það hafa engar kvartanir borizt til mín út af þessu, enda býst ég ekki við, að það hafi átt að skilja þetta svo hjá hv. þm., að það hafi verið neitað um innflutning á netum.

Viðvíkjandi dæminu um grænmetiseinkasöluna skal ég taka það fram, að mig skortir kunnugleika á því, en ef það kynni að hafa komið fyrir, að neitað hafi verið um innflutning á útsæðiskartöflum, þá álít ég það ekki rétt og vil vona, að þetta hafi ekki átt sér stað. Mér hefir a. m. k. ekki verið skýrt frá því af forstöðumanni verzlunarinnar.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta. Ég hefi minnzt á nokkuð af því, sem fram hefir komið hjá hv. þm. Mér virðist þeir yfirleitt taka málinu með allgóðum skilningi, og nánari upplýsingar skal ég láta þeim í té, sem þess óska, eftir því sem kostur er.