11.05.1938
Efri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1125 í B-deild Alþingistíðinda. (1664)
119. mál, lántaka fyrir ríkissjóð
*Magnús Jónsson:
Ég geri ráð fyrir, að út af þessu frv. hefðu spunnizt nokkrar umræður, ef meiri tími hefði verið til, og ég fyrir mitt leyti hefði gjarnan viljað ræða ofurlítið við hæstv. fjmrh. um þetta mál í sambandi við ýms orðaskipti okkar í milli um fjármálastjórn ríkisins undanfarin ár.
Lántaka eins og þessi er náttúrlega ekkert annað en alveg fyrirsjáanlegur hlutur, eins og haldið hefir verið á fjármálum okkar undanfarin ár, en okkur hefir greint allmikið á um það, þar sem ég hefi ekki trú á þeirri einkennilegu og víst alveg einstæðu fjármálapólitík, að ætla sér að auka kaupgetuna í landinu með því að auka á gjaldeyrisörðugleikana og bjargast yfir örðugleikana með því að loka hana inni, eins og kallað er. Það er reynt að loka bana inni, eins og ef reynt væri að sjóða hrafnsegg, án þess að nokkur gufa kæmist út.
Það er ýmislegt fleira í þessu máli, sem gerir það að verkum, að það er nokkuð erfitt fyrir Sjálfstfl. að taka afstöðu til þess, ekki sízt þar sem hann hefir þá sannfæringu, að í raun og veru sé til þessa máls komið af því, að hans ráði hefir ekki verið fylgt í þessu máli á neinn hátt og hann yfirleitt ekki til kvaddur á neinn hátt um fjármálastjórnina undanfarin ár.
Það má einnig nefna það í þessu sambandi, að hér er um að ræða lántöku, sem ekki er ætlazt til, að verði að eyðslufé, heldur aðeins sem gjaldeyrislán, þannig að í raun og veru sé allt það fé, sem greiða á, innt af hendi af þeim aðiljum, sem eiga að greiða það, ríkissjóði, bæjar- og sveitarfélögum og einstaklingum, og er svo meiningin, að þessir aðiljar leggi fram fullvirði í íslenzkum gjaldeyri, og á sá gjaldeyrir að safnast upp hér innanlands, þangað til hann yrði smátt og smátt notaður eftir getu og þörf til þess að losa sig við hinar erlendu skuldir, en því fylgir náttúrlega töluvert traust á þeirri stj., sem hefir meðgjöf með það mikla fé, sem þannig safnast, að vera viss um, að því verði ekki varið til annars en að greiða fyrir þessari framtíðarnotkun. Og það er ómögulegt að neita því, að við sjálfstæðimenn höfum ekki góða reynslu af andstæðingum okkar í þessu efni. Ég er orðinn svo gamall í hettunni hér á þingi, að ég man til þeirra hluta, að jafnvel sjóðir, sem ákveðið hefir verið í lögum, hvernig geyma skyldi, hafa verið teknir að láni af ríkinu eins og ekkert hafi í skorizt, og það hefir viljað brenna við fram til síðari tíma, að fé, sem beinlínis var ákveðið. að skyldi fara til ákveðinnar notkunar, hefir svo ekki verið fyrir hendi, þegar til átti að taka. Það er þess vegna eðlilegt, að mönnum, sem ekki bera almennt traust til núverandi hæstv. ríkisstj., sé litið um að fá henni þetta fé í hendur sem nokkurskonar „tabú“, ósnertanlegan hlut, þessar 11–12 millj. kr., og ég er hræddur um, að þegar hörgull er á fé til framkvæmda innanlands, en kröfurnar hinsvegar miklar, þá verði krafturinn kannske ekki nógu mikill til þess að standa á móti því, að þetta fé verði í raun og veru gert að eyðslueyri.
Það þarf því í vissu falli meira traust á stj., til þess að greiða þessu frv. atkv. heldur en Sjálfstfl. hefir ástæðu til að bera til hæstv. núverandi stj.
Það er líka eitt atriði enn, sem ég vil minnast, sem ég tel töluvert varhugavert, og það er, hvernig eigi að geyma þetta fé. Mér er það ekki ljóst, og ég heyrði ekkert á þetta minnzt í umræðunum um málið í Nd. Ég get ekki betur séð en að allt þetta mikla fé verði að geyma vaxtalaust skilst mér helzt, og að vextirnir af hinu erlenda láni verði þess vegna hreinn og beinn skattur, því að ef á að fá bönkunum til ávöxtunar svona heppilegt fá í hlutfalli við það fjármagn, sem þeir annars ráða yfir, þá er augljóst, að við það mundi hlaupa svo mikil þensla í atvinnulífið, að það hlyti að draga stórkostlega úr möguleikunum til þess að komast úr þeirri kreppu, sem við erum að reyna að komast úr með þeirri ráðstöfun, sem hér er verið að gera. Og eftir reynslunni að dæma er ég mjög hræddur um, að það verði kannske nokkuð erfitt fyrir bankana að hafa alltaf handbært fé, hvenær sem þeir vilja, því að reynslan sýnir, að það fé, sem bankarnir setja í atvinnuvegina, er alltaf meira eða minna fast. Þarna er um að ræða verulegan skatt, því að þótt segja megi, að þetta lán verði ekki gert að eyðslueyri, þá kemur það út á eitt, það er eyðslueyrir að því leyti, að við verðum að bera vextina af því að langmestu leyti. Verði það sett á lokaðan reikning, þá er það jafnhandbært, ef ekki ætti að festa það.
Á hinn bóginn verður því ekki neitað, að hverjar sem orsakirnar eru til þess, að svo er komið sem raun ber vitni, þá eru í raun og veru ekki sjáanlegar margar leiðir til út úr því ástandi, sem er. Það er erfitt að sjá, hvernig hægt er, nema þá með tilbúnum hætti, ef svo mætti segja, að komast yfir örðugleikana og greiða þessar miklu afborganir af gjaldeyri, sem til fellur á hverju ári. Ég verð næstum að segja, að það sé ógerningur, eins og nú er komið. Til þess þyrfti að kreppa svo mikið að innflutningnum, að ég get naumast séð, að það væri gerlegt, a. m. k. sennilega ekki með öðru en mjög flóknum og viðtækum ráðstöfunum, vöruskömmtun og öðru, sem ég tel mjög mikið böl, ef þyrfti að beita, þó að að því geti komið. Það er böl, sem ástæða er til að forðast í lengstu lög.
Önnur leiðin er að taka þann kostinn, að stöðva greiðslur, með öllu því, sem því fylgir, og loka þannig í raun og veru um ófyrirsjáanlega framtíð möguleikunum fyrir landið til þess að taka lán til hinna nauðsynlegustu og mest arðberandi hluta.
Þriðja leiðin er sú, að vonast til þess enn, að í ári batni og að hægt verði að fleyta sér yfir tímann, sem á milli líður, með því að hliðra sér hjá afborgunum og taka lán til þeirra. Vitanlega er það ekki nema bráðabirgðaráðstöfun, sem ekki getur gert neitt gagn, nema eitthvað batni í ári eða tekin sé upp gerbreytt stefna, frá því sem nú er í fjármálastjórn þjóðarinnar, sem miði að því, að úr greiðist með gjaldeyrisörðugleikana.
Þessar ástæður, sem eru með og móti þessu máli fyrir sjálfstæðismönnum, hafa vafalaust valdið því, að Sjálfstfl. tók í Nd. þá afstöðu til þessa máls, að láta það afskiptalaust. Sjálfstæðismenn hafa ekki verið til ráða kvaddir um það, sem valdið hefir þeim örðugleikum, sem gerir nú þessa lántöku nauðsynlega. Ég sagði það í byrjun, þegar við komum saman í fjhn. í dag, að mér þætti líklegt, að við sjálfstæðismenn tækjum þessa afstöðu til málsins einnig hér í Ed. Eftir það hefir svo komið fram ný hlið á málinu. Þegar ég lýsti þessu yfir í n., hafði ég í huga afstöðu stjórnarflokkanna í Nd., þar sem þeir fylgdust að í afstöðu til málsins og ekki var annað sýnt en að það væri afstaða þeirra beggja í heild. En eftir það hefir komið yfirlýsing frá hv. 11. landsk. um, að hann taki ekki afstöðu til málsins. Ég segi þá fyrir mig, að ég tek ekki afstöðu til málsins, þangað til ég veit, hvaða afstöðu hv. 11. landsk. tekur til þess, eða hvað undir því býr, að hann ekki tekur afstöðu til þess. Ég geri ráð fyrir, að hér séu einhverjir samningar á bak við. Getur verið, að það séu kaup, sem mér er sama um, og líka getur vel verið, að það séu kaup, sem mér er ekki sama um og ég óska alls ekki, að séu gerð, og óska ekki að sitja hlutlaus hjá gagnvart ríkisstjórninni gegn andstöðu annars stjórnarflokksins, sem hingað til hefir verið. Ég vil, að gefnu þessu tilefni, að hv. frsm. lýsti því réttilega yfir, að ég tók þetta fram í n., lýsa nú yfir, að ég geymi fullkomlega að taka afstöðu til þessa máls, þangað til ég sé, hvaða afstöðu stuðningsflokkur ríkisstjórnarinnar tekur til þess. Hér fyrir Alþ. liggja mál, sem ég fyrir mitt leyti hefi svo mikinn áhuga á að fá afgr., að ef líf einhvers slíks máls er í veði, vil ég ekki á neinn hátt sleppa þeim tökum, sem ég get haft á þessu máli til þess að koma þeim fram. En ég óska eindregið eftir, að það verði látið í ljós, hver er afstaða Alþfl. í þessu máli.