06.05.1938
Efri deild: 66. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1140 í B-deild Alþingistíðinda. (1685)

102. mál, skattgreiðsla útgerðarfyrirtækja botnvörpuskipa

*Erlendur Þorsteinsson:

Herra forseti! Ég skal ekki tefja þetta mál mikið, en út af ummælum hv. 1. þm. N.-M. vil ég lítillega geta um afstöðu Alþfl. til þessa frv. Alþfl. hefir verið fylgjandi skuldaskilum vélbátaeigenda og hverjum þeim stuðningi, sem hægt hefir verið að veita sjávarútveginum. Nú er það vitað, að togaraútgerðin hefir engan stuðning fengið undanfarið, og líka er vitað, að seinustu árin hefir þessi útgerð orðið fyrir allmiklum töpum. Hitt er annað mál, að Alþfl. er ekki sammála Sjálfstfl. um, af hverju þetta stafar, og ég get tekið undir það með hv. 1. þm. N.-M., að þessum rekstri hefir verið illa stjórnað og fé dregið út úr honum til annara óskildra fyrirtækja. Í raun og veru er það ekki þetta, sem hér er um að ræða; það verður sjálfsagt tekið til frekari athugunar af þeirri n., sem á að rannsaka hag útgerðarinnar, og mun hún á sínum tíma koma með till. um, hvernig eigi að haga þeim rekstri framvegis. Það, sem hér er um að ræða, er að veita togaraútgerðinni einhvern stuðning á þessu tímabili, þar til n. skilar áliti. Alþfl. gat ekki fallizt á frv. óbreytt, en tók þá afstöðu að fylgja því með þeim breyt., sem koma fram í nál., og eru það vitanlega miklar breyt. frá því, sem er í 1. gr. frv. Í raun og veru má segja, að þetta frv. sé ekki mikill ávinningur fyrir togaraútgerðina, ef um slæm ár verður að ræða eins og að undanförnu, því eftir þeim upplýsingum, sem fram hafa komið. eru það 1–2 fyrirtæki, sem hafa greitt tekju- og eignarskatt síðustu ár. Og þar sem hér er um litlar upphæðir að ræða, mætti kannske segja, að frv. sé að nokkru leyti óþarft. En hvað 2. gr. snertir vil ég geta þess, að bæjarstjórnir Hafnarfjarðar og Reykjavíkur hafa óskað eftir því, að fá sérstaka heimild í l. til þess að undanþiggja þessi félög útsvörum.

Að því er snertir þau félög, sem eru utan Reykjavíkur, þá eru tvö af þeim rekin með svo mikilli þátttöku bæjarsjóðanna, að þessi útsvarsundanþága mundi koma bæjarfélögunum sjálfum að mestu leyti til gagns.

Um Patreksfjörð er öðru máli að gegna. Þar mun útgerðarfélagið reka verksmiðjur, sem vitanlega geta ekki komið undir þessi ákvæði.

Hv. 1. þm. N.-M. var að tala um, að það vantaði að setja undir þann leka, að dregið væri fé út úr þessum fyrirtækjum. Þetta er einmitt það, sem Alþfl. hefir verið að reyna að gera með brtt. við 3. gr. Þar eru gerðar ráðstafanir til þess að tryggja, að ekki verði dregið fé undan, og að því, sem kann að sparast, verði varið til þess að koma félögunum á fót aftur og skapa það öryggi, að hægt verði að reka skipin.

Þá höfum við einnig komið með nýja gr. um, að fjmrh. setji nánari reglur um framkvæmd þessara l. Og þó að hv. 1. þm. N.- M. treysti honum ekki til þess að setja undir lekann, þá geri ég það.