11.05.1938
Neðri deild: 73. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1152 í B-deild Alþingistíðinda. (1712)
102. mál, skattgreiðsla útgerðarfyrirtækja botnvörpuskipa
Frsm. (Steingrímur Steinþórsson):
Fjhn. hefir orðið sammála um að leggja til, að frv. þetta verði samþ., en hefir þó gert till. um að breyta því lítilsháttar. Fjhn. leggur til, að b-lið 3. gr. frv. verði breytt þannig, að inn í þann lið, sem er um það, „að eigi sé úthlutað arði til hluthafa eða félagsmanna á meðan tapið er eigi að fullu jafnað“, verði bætt þannig, að á eftir þessum tilfærðu orðum úr b-lið 3. gr. frv. komi: né hluthöfum ívilnað á annan beinan eða óbeinan hátt, svo sem með hækkuðum kaupgreiðslum eða auknum hlunnindum. — Þessi ákvæði vill n. láta gilda um fyrirtækin, meðan þau njóta þeirra fríðinda, sem um getur í frv. Fjhn. er sammála um að bæta þessu inn í til frekara öryggis um það, að þessi hlunnindi séu aðeins veitt þegar réttlætanlegt þykir.
Hv. 5. þm. Reykv. hefir flutt brtt. við frv. á þskj. 534, sem fer að nokkru leyti í svipaða átt og brtt. fjhn., og get ég sagt það um leið, að fjhn. mælir á móti því, að sú till. verði samþ.
Sé ég svo ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um málið að svo stöddu, að öðru leyti en því, að fjhn. lítur svo á viðvíkjandi 2. gr. frv., um heimild bæjar- og sveitarstjórna til að undanþiggja sömu útgerðarfyrirtæki (sem um getur í 1. gr.) útsvari á sama tíma og tiltekinn er í 1. gr., að þau séu laus við skattgreiðslu, — fjhn. lítur svo á, að vel geti svo verið ástatt um fyrirtæki, sem er útgerðarfyrirtæki, að rétt geti verið að leggja útsvar á vissar starfsgreinar þess, svo sem t. d. verksmiðjurekstur, þó að ekki sé lagt útsvar á þau vegna útgerðar. Ég tek þetta fram sem álít fjhn. um þetta atriði.