11.05.1938
Neðri deild: 73. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1154 í B-deild Alþingistíðinda. (1715)

102. mál, skattgreiðsla útgerðarfyrirtækja botnvörpuskipa

*Ólafur Thors:

Aðeins fá orð. Það er rétt, að það komi fram, að þeir, sem hér fara fram á þennan stuðning, meta mikils þann hug, sem hv. Alþingi sýnir útgerðinni með þessum ívilnunum. Ég get þessa af því, að ég hefi heyrt raddir utan þings og innan, sem telja þetta einskis virði og vilja ekki láta Alþingi eiga neitt gott skilið fyrir. Að vísu er ekki líklegt, að útgerðin hafi í nánustu framtíð bein hlunnindi af þessu, en hún er allt um það þakklát.

Með þessu frv. er skapaður möguleiki til þess ef eitthvað birtir til, að útgerðin geti grynnt á skuldum sínum, þrátt fyrir þau hörðu ákvæði, er hér gilda um greiðslu skatta og útsvara. Hér er fyrst og fremst verið að skapa útgerðarfyrirtækjunum möguleika til að geta greitt bönkunum, en vafasamt væri, að bankaskuldirnar greiddust, að óbreyttum lögum, þótt vel kynni að ára. Ég tel það heilbrigða stefnu að lofa þessum fyrirtækjum að nota hvern sinn gróða, ef betur árar, til að koma rekstri sínum á réttan kjöl aftur.

Ég vildi aðeins taka þetta fram, til þess að vitna mætti í það um, að útgerðarmenn eru þakklátir fyrir þessar ívilnanir.