11.05.1938
Neðri deild: 73. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1157 í B-deild Alþingistíðinda. (1722)
102. mál, skattgreiðsla útgerðarfyrirtækja botnvörpuskipa
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Þetta síðara ákvæði gr. er komið inn í frv. í Ed. fyrir tilmæli fjhn. þar. En út af því, sem hv. 8. landsk. sagði, vil ég taka fram, að ég álít ekki, að þessi heimild geti náð til að undanþiggja fyrirtæki útsvarsgreiðslu, ef vegur þess yxi af öðrum ástæðum en útgerð. Ef fyrirtæki eru blönduð, þá tel ég, að þessi hlunnindi geti ekki náð til annars hluta en þess, sem að sjálfri útgerðinni lýtur, því að ella yrði þetta í framkvæmdinni annað en það, sem löggjafinn ætlaðist til.