11.05.1938
Neðri deild: 73. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1157 í B-deild Alþingistíðinda. (1726)
102. mál, skattgreiðsla útgerðarfyrirtækja botnvörpuskipa
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég vil taka fram, að mér finnst þessi skrifl. brtt. óþörf. Þetta ákvæði 2. gr. er sett hér til þess að tryggja það, að ef einhverjar bæjar- og sveitarstj. vilja ekki undanþiggja útgerðarfyrirtæki útsvari, geti þær ekki hækkað á þeim útsvörin frá því, sem þau voru 1937. En þó að eitthvert fyrirtæki bólgni fyrir verzlun eða annað slíkt, kemur vitanlega ekki til mála, að sá atvinnurekstur sé undanþeginn útsvari. Aftur verður að taka tillit til þess, ef tapið eykst hjá útgerðinni á þessum tíma. Það hefir verið minnzt hér á Patreksfjörð í þessu sambandi. Þar er vel stætt fyrirtæki, Ól Jóh. & Co. Nú skulum við segja, að það yki stórlega verzlun sína. Sá atvinnurekstur væri alls ekki undanþeginn útsvari. En þótt hreppsnefnd Patreksfjarðar vildi ekki undanþiggja útgerðina útsvari, mætti hún ekki hækka þau frá því, sem er.