07.05.1938
Efri deild: 67. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1164 í B-deild Alþingistíðinda. (1750)
103. mál, bráðabirgðatekjuöflun fyrir Hafnarfjörð
Páll Zóphóníasson:
Ég var alveg mótfallinn þessu frv. áður, og ég er það enn. Ég ætla að taka samanburð á álagningu útsvara í Vestmannaeyjum og Hafnarfirði, svo að menn sjái, hvort Hafnfirðingum muni lífsnauðsyn að létta á útsvörum hátekjumannanna, með umferðaskatti, er renni í bæjarsjóð. Ef einhleypur maður hefir 2000 kr. nettóárstekjur, fær hann 70 kr. útsvar í Vestmannaeyjum, en 65 í Hafnarfirði. Ef hann hefir 3000 kr. árstekjur, fær hann 190 kr. útsvar í Vestmannaeyjum, en 110 kr. í Hafnarfirði. Ef hann hefir 4000 kr. árstekjur, fær hann 380 kr. útsvar í Vestmannaeyjum, en 200 kr. í Hafnarfirði. Ef hann hefir 5000 kr. árstekjur, fær hann 610 kr. útsvar í Vestmannaeyjum, en 325 kr. í Hafnarfirði. Ef hann hefir 7000 kr. árstekjur, fær hann 1190 kr. útsvar í Vestmannaeyjum, en 635 kr. í Hafnarfirði. En þrátt fyrir þetta segja Hafnfirðingar, að útsvörin séu hæst hjá sér og þeir geti ekki lagt meiri útsvör á gjaldþegnana og þess vegna verði að skattleggja þá, sem fara milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar til þess að ná tekjum inn í bæjarsjóð. Ef við tökum Siglufjörð til samanburðar, sem hv. 11. landsk. er frá, þótt hann sé ekki þm. fyrir þann kaupstað sérstaklega, þá eru útsvörin þar svo miklu hærri en í Hafnarfirði, að ef einhleypur maður hefir þar 4000 kr. hreinar árstekjur fær hann yfir 1000 kr. útsvar á Siglufirði, en 200 kr. í Hafnarfirði. Það er því fjarri lagi, að halda því fram, að þessa sé sérstaklega þörf í Hafnarfirði, hið gagnstæða mætti segja, því að í engum kaupstað eru útsvörin tiltölulega eins lág eins og þar. Þess vegna er ástæðulaust að fara að skattleggja mannflutninga milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur til þess að útvega bæjarsjóði Hafnarfjarðar tekjur. Eins og hér er sýnt að framan, þarf að hækka útsvörin í Hafnarfirði mikið, til þess að þau komist í námunda við það, sem þau eru í Vestmannaeyjum og á Siglufirði, og þau þurfa að hækka dálítið til að komast til jafns við það, sem þau eru í Reykjavík, en þar eru þau hlutfallslega næstlægst af kaupstöðum landsins. Ég tel því bæði þarfleysu og rangt að samþ. frv. Raunar er því svo farið, að þeir menn, sem þarna eiga hlut að máli, telja, að útsvör sín séu há, en meðan þau eru ekki nema brot af því, sem þau eru í ýmsum öðrum kaupstöðum landsins, tel ég þá ekki verða illa úti, þótt þeir fái ekki að velta útsvörunum af breiðu bökunum og yfir á þá, er ferðast milli bæjanna. Ég tel enga þörf á því að lögleiða slíkt, það er rangt og stórhættulegt. Ef bæjarsjóð Hafnarfjarðar langar til að ná í meira fé en hann getur fengið af rekstri bæjarútgerðarinnar, fyndist mér ráðlegt fyrir hann að taka flutningana í sínar hendur, þá getur bæjarsjóðurinn náð í þann tekjuafgang, sem af þeim rekstri kann að verða. Slíkt væri ekki nema spor áfram í þeirri starfsemi, sem þar hefir verið rekin, sbr. bæjarútgerðina. Mér fyndist geta komið til mála, að Alþ. hlutist til um það að fá þeirri n., sem sér um fólksflutningana, heimild til að ákveða, að bæjarstjórn Hafnarfjarðar fengi leyfi til að reka bíla þá, sem annast flutninga milli bæjanna án þess að fargjöldin þurfi að hækka. En það er ósanngjarnt að láta þann kaupstað, sem hefir tiltölulega lægst útsvör, fá þau sérréttindi, að skattleggja hvern mann, sem til bæjarins kemur eða frá honum fer. Ég mun greiða atkv. móti þessu frv. og móti þeirri stefnu, sem þar kemur fram. Ég skil ekki þá þm., sem telja sig vera á móti þessari stefnu, en ætla þó að fylgja frv. Ég veit ekki, hvaða stefna það er að vera á móti því að skattleggja mannflutninga, en ætla að fylgja þessu frv. Ég vildi fá útskýringu á hinu tvöfalda sálarlífi þeirra, sem geta greitt þannig atkv. Ég vildi, að þeir lýstu því yfir, hvað þeim gengur til slíks. Það er eitthvert nýtt viðhorf, sem ég skil ekki, en vildi gjarnan skilja.