07.05.1938
Efri deild: 67. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1165 í B-deild Alþingistíðinda. (1751)
103. mál, bráðabirgðatekjuöflun fyrir Hafnarfjörð
*Bjarni Snæbjörnsson:
Ég vil þakka fjhn. fyrir góða afgreiðslu á þessu máli, enda þótt ég hefði heldur kosið, að það hefði verið samþ. óbreytt eins og það hefir verið borið fram. En ég vildi ekki gera að kappsmáli, að því væri aftur breytt í þá mynd, sem það upphaflega var. Það má þó segja, að það getur eitthvað verið til í því, sem frsm. þessa máls minntist á, að menn notuðu sér það, að fara úr vögnunum, áður en komið væri alla leið til Hafnarfjarðar, t. d. við vegamótin, þar sem Hafnarfjarðar- og Álftanesvegurinn mætast. En mér heyrðist á honum, að þeir, sem notuðu sér slíkt, gætu aðeins verið þeir, sem ekki væru Hafnfirðingar, og hann hlyti því að telja þá eitthvað betri en aðra menn. En ég held nú ekki, að það sé rétt. Ég held, að það myndu ekkert frekar verða hinir, sem fyndist þessi skattur koma hart niður. Annars held ég, að flestir sætti sig við þetta. Hefði þessu frv. verið breytt þannig, að þeir, sem fara úr bilnum við Vífilsstaðaveg, skyldu vera undanþegnir þessum skatti, þá hefði ég frekar getað sætt mig við það.
En viðvíkjandi ummælum hv. 1. þm. N.- M. vil ég segja það, að útsvarsálagningin er komin á heilann í honum, svo að til vandræða horfir, og þá kemur upp í mér læknirinn, og þegar slíkt kemur fyrir, verða menn að varast allan æsing, og þeir þurfa að fá sem mesta ró. Þess vegna ætla ég ekki að svara honum.