04.04.1938
Efri deild: 40. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í B-deild Alþingistíðinda. (183)
5. mál, ýmis gjöld 1939 með viðauka
*Magnús Jónsson:
Ég vil aðeins með örfáum orðum gera grein fyrir fyrirvara mínum. Hv. frsm. fjhn. gat um breyt. þá, sem er á frv. frá gildandi l., en það er elnmitt þessi breyt., sem fyrirvari minn snýst um. Ég sé nfl. ekki, hvers vegna verið er að taka inn undir þetta aðflutningsgjald af vörum samkv. f. frá 13. júní 1937, þegar jafnframt eru undanþegnar vörur eins og sykur, sírop, brennt og óbrennt kaffi, öl og aukatekjur ríkissjóðs, sem taldar eru í l. frá 27. júní 1921, en þegar búið er að undanþiggja þessar vörur, er ekki annað eftir en te og kókó. Hvers vegna hér á að undanþiggja kaffi og kaffibæti, en ekki te og kókó, fæ ég ekki skilið, þar sem ekki verður annað sagt en að hér sé um alveg hliðstæðar vörur að ræða. Er kannske nokkur ásfæða til fyrir ríkisvaldið að fara að halda fram kaffi fram yfir te og kókó? Ég fæ ekki annað séð en að þetta séu allt jafnnauðsynlegar vörur.
Að fara aftur á móti að undanþiggja öl þessu aukagjaldi, er hreint og beint skoplegt, þar sem þessi vörutegund er alls ekki flutt inn í landið; fyrir því er séð með hinum háu tollum, sem á því eru. Hvernig sem á mál þetta er því litið, fæ ég ekki annað séð en að það sé alveg óþarfi að taka upp þessa breyt. frá núgildandi l., og í því liggur fyrirvari minn.