10.05.1938
Neðri deild: 72. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1240 í B-deild Alþingistíðinda. (1848)

138. mál, mæðiveiki

*Thor Thors:

Það var útúrsnúningur úr orðum mínum, sem kom fram hjá hv. þm. Mýr. Ég gat þess, að ég hefði því miður litla tiltrú til girðinganna, að þær kæmu að gagni, en teldi það hinsvegar beinlínis skyldu Alþ., að láta einskis ófreistað, ef það kynni að koma að gagni, og fyrir þá sök er ég því fylgjandi, að t. d. þessi girðing verði lögð yfir Snæfellsnes, eins og aðrar girðingar, sem í frv. eru. Ég tel það rangt hjá hv. þm. Mýr., að bætur samkv. þessu frv. megi ekki koma þeim að gagni, sem um þessar mundir verða fyrir þungum búsifjum af veikinni. Hvað snertir þau tvö sveitarfélög, sem ég ber sérstaklega fyrir brjóstinu, hafa þau hina síðustu mánuði orðið fyrir miklum töpum, og það eykst dag frá degi. Það er erfitt fyrir þessi sveitarfélög að þurfa að bíða eftir hjálp til næsta árs, því að það er vitað, að sú hjálp, sem kemur fyrst, er bezta hjálpin.

Ég mun halda fast við þann skilning minn á frv., að það beri að rétta öllum hjálparhönd, sem fyrir töpum hafa orðið, áður en úthlutun fer fram, og ekki getur n. úthlutað fénu, fyrr en búið er að veita það á fjárl.