02.03.1938
Neðri deild: 12. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1257 í B-deild Alþingistíðinda. (1878)
34. mál, atvinna við siglingar
*Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):
Það er rétt, sem hv. þm. Borgf. sagði, að nemendur á þessu námskeiði fyrir vélstjóra upp á Akranesi hafi orðið að taka próf hér í Reykjavík. En það er samkv. þeim reglum, sem settar hafa verið um próf frá slíkum námskeiðum sem þessu. Mér skildist líka á honum, að ekki væri ástæða til að ætla, að þeir menn, sem prófuðu þessa menn hér, hefðu ekki dæmt rétt og hlutdrægnislaust um kunnáttu þessara manna, sem prófin tóku.
Hv. þm. Borgf. fullyrðir, að hér suður með sjó séu ákvæði þessara 1. brotin. Það er kannske hugsanlegt, en mér er ekki kunnugt um, að svo sé. En þó svo væri, finnst mér það ákaflega hæpið að draga af því þá ályktun, sem hann virðist hér gera, hv. þm., að þá sé ekki annað eðlilegra fyrir hendi en að breyta l.
Að því er snertir undanþáguheimildina fyrir síldveiðiskipin, sem samþ. var á síðasta þingi, þá veit hv. þm., að þau l. voru afgr. á haustþinginu 1937 og voru staðfesting á bráðabirgðal., sem gefin voru út í byrjun síldarvertíðarinnar sumarið 1937. Hefði þá verið eðlilegast, að breyt. þessi, sem hér er um að ræða, hefði verið samþ. þá um leið og þau l. á þingi. En ég játa hinsvegar, að það er að ýmsu leyti óheppilegt að hafa undanþáguheimildir í slíkum l. sem þessum. Það gerir ráðuneytinu erfiðara fyrir. En það, sem hv. þm. drap á í ræðu sinni í sambandi við frv. hv. þm. Barð., var á fyrra þinginu 1937. En það skiptir ekki máli í sambandi við þetta frv., sem hér liggur fyrir, en mér virtist rétt, að það kæmi fram.