26.04.1938
Neðri deild: 54. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1294 í B-deild Alþingistíðinda. (1922)

34. mál, atvinna við siglingar

*Ísleifur Högnason:

Áður en gengið er til atkv. um þetta mál vildi ég aðeins minnast á eitt atriði. Í 1. gr. er gert ráð fyrir, að fækkað verði stýrimönnum úr tveimur í einn. Ég vil nú bara benda hv. þm. á, hvaða ábyrgðarhluti það er að samþ. þessa breyt. á l.

Eitt af því, sem var í erindi því, er barst frá skipstjóra- og stýrimannafélaginu, var dæmi um það. að togarar hefðu farizt vegna of fárra yfirmanna á skipunum. Menn geta séð það sjálfir, að þegar skip er búið að vera lengi á fiskveiðum, þá er skipshöfnin orðin þreytt, en þá reynir oft á skipstjórnarhæfileika við að taka land. Enda er það talið nauðsynlegt, að aldrei séu færri en 2 siglingafróðir menn uppi, þegar um er að ræða sóma sinn í því að samþ. brtt. frá hv. 5. þm. Reykv. um að fella þessa gr. niður.