26.04.1938
Neðri deild: 54. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1295 í B-deild Alþingistíðinda. (1924)
34. mál, atvinna við siglingar
*Bergur Jónsson:
Það var bara út af því, sem hv. þm. Borgf. sagði, að ólöglega hefði verið skráð á skip suður með sjó. Ég vil út af þessu geta þess, að mér er ekki kunnugt um, að l. hafi verið brotin í minni sýslu, enda eru það hreppstjórarnir á viðkomandi stöðum, sem hafa á hendi lögskráningu. Hitt er mér kunnugt um, að það ríkir mikil óánægja, ekki sízt hjá sjómönnum, yfir ákvæðum l.