09.05.1938
Efri deild: 69. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1304 í B-deild Alþingistíðinda. (1933)

34. mál, atvinna við siglingar

*Frsm. minni hl. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Herra forseti. Eins og nál. ber með sér, þá gátum við ekki orðið samferða í þessu máli í sjútvn. Það er eins og það sé tímans tákn hér á Alþ., að þau mál, sem mestum styr valda, eru þau mál, sem heita réttindamál hins vinnandi lýðs. Rétt á undan var mál, sem risið hefir af óánægju út af því, að ekki séu nógu margir, sem fái að læra í hinum ýmsu iðngreinum og það þurfi því að rýmka fyrir mönnum í þeim efnum. Í þessu máli skilst mér, að það eiga að kippa réttindunum af þeim, sem þegar hafa lært og eru byrjaðir að vinna, að þeir fái ekki lagalegan rétt til að stunda þau störf, sem þeir hafa lært til.

Ég ætla þá til að byrja með að ræða örlítið þær brtt., sem meiri hl. n. hefir gert í þessu máli. Ég skal viðurkenna það strax. að þessir menn hafa haft þó nokkurn skilning á því, hver endemis vitleysa frv. er, en mig grunar, að þeir sjái líka sjálfir, að þær till., sem þeir nú gera, eru til skaða.

Þeir hafa flutt brtt. við 1. gr., en hv. frsm. meiri hl. var að reyna að rökstyðja það, að þar væri nokkuð séð fyrir örygginu. Honum er það dálítið viðkvæmt mál, því hann hefir staðið mjög framarlega í slysavarnafélagsskap í Vestmannaeyjum. Honum er það því nokkuð viðkvæmt mál, hvernig séð er fyrir örygginn, þegar út á sjóinn er komið, og þá einnig það, hversu mikil þekking manna er til að stjórna, þegar út á úfinn sjó er komið. En nú er ekki nóg með það, að ákvæði frv. um að undanskilja stýrimenn á bátum undir 30 rúmlestir fengi að haldast. heldur hafa nm. orðið ásáttir um að rýmka það upp í 40 rúmlestir, sem Nd. gat ekki fallizt á. Mér finnst nú, að sökin sé farin að færast upp í bekkinn, þegar menn láta sér ekki nægja að miða þetta við 30 smálestir, heldur færa það upp í 40. Ég hefi gert nokkra grein fyrir því, hvað þetta snertir marga báta, ef miðað er við 30 rúmlestir. Ég hefi ekki kynnt mér. hvað það munar miklu, ef miðað er við 40. En ef miðað er við 30, þá eru það 90 stýrimenn, sem koma til með að vera sviptir lagalegum rétti til þess að vera stýrimenn, eins og skipaflotinn er nú.

Einasta ástæðan fyrir þessu, að því er manni virðist, er sú, að það sé svo mikill kostnaður, sem fylgi því að hafa stýrimenn. Glöggur maður, sem hefir kynnt sér þetta mál, hefi komizt að raun um, að kaup það, sem stýrimenn bera frá borði til jafnaðar, miðað við vertíð, muni vera um 75 aurar á dag. Það eru meiri ósköpin, sem felast í þessari kvöð á útgerðinni.

Það er sagt, að þetta eigi að miðast við skip, sem ætlað er að leggja afla sinn daglega á land. En það getur verið, að þessir bátar liggi úti 3–4 daga, kannske viku. Þeim er ætlað að koma daglega í land, en þeir hafa bara ekki fyllt sig yfir daginn, svo þeir liggja áfram úti þangað til þeir eru búnir að fylla sig. Það er alveg hægt að fara í kringum þetta ákvæði. Eftir l. var svo tilskilið. að þetta mætti ekki gilda um síldveiðar, en nú er því bætt við, að þetta gildi um báta, sem eru tveir um nót. Það er með þessu verið að ýta undir stærri báta en áður að vera saman um nót, til þess að losna við stýrimann og undirvélstjóra. Það er svo um þá báta, sem eru saman um nót, að þegar annar báturinn er fullfermdur, þá fer hann í land, en hinn er eftir úti, Ef þessi bátur lendir nú í dimmviðri, þá útheimtir það þekkingu að stýra þessum eina bát í land, svo hann strandi ekki eða rekist ekki á önnur skip. Hvaða trygging er fyrir því, að þetta takist, þegar aðeins er einn maður um borð, sem kann siglingareglurnar, en er kannske orðinn mjög þreyttur? Nú á skipstjórinn að vera vélamaður, ef svo ber undir, og þá er enginn maður á skipinu, sem kann að haga sér með þokumerki og annað, sem nauðsynlegt er til að forðast ásiglingu. (JJós: Vélamaðurinn). Hann kann ekki siglingareglurnar. Það er skipstjórinn einn, sem kann þær, en hann getur verið forfallaður frá að vera uppi. Það getur viljað til, að hann þurfi að fá sér blund, og þá verður hann að hafa annan við stýrið. Það vill oft svo til, að annar báturinn er úti í sjó, en hinn fer heim með aflafenginn. Stundum fara þeir líka báðir í land, og þá sigla þeir samtímis.

Það er því svo mikil fjarstæða frá öryggissjónarmiði, að það þurfi ekki að vera siglingafróðir menn á þessum skipum. Ég er hissa á því, að þm., sem unnið hefir með dugnaði að öryggismálum, skuli hafa dottið í hug að koma með jafnfráleita till. og hér um ræðir. Ég hefi sjálfur verið við Norðurland um síldveiðitímann, svo ég veit, hvað mikið er þar um þokur og dimmviðri. Það veitir því ekki af kunnáttu til að sigla í land. En því miður hafa oft viljað til strönd í dimmviðrum. Ég segi ekki, að það hafi alltaf verið vegna þess, að ekki voru siglingafróðir menn við hendina. Það þarf sannarlega útsjón við síldveiðarnar, svo ekki hljótist slys af.

Þegar ég var unglingur, þá minnist ég þess, að það voru smá skip, sem sigldu út á haf til þorskveiða, sem ekki höfðu 2. stýrimann. (JJós: Það voru seglskip). Það er einmitt það merkilega, að menn skuli halda, að það þurfi minni kunnáttu á vélskipi en seglskipi. Með auknum hraða og notkun vélaafls, þá er þekkingin einmitt nauðsynlegri heldur en áður var á seglskipunum.

Þetta er svo mikil afturför í okkar löggjöf, að ég stend agndofa og undrandi yfir því, að slíkar till. skuli vera fram komnar til þess að spara 75 aura á dag á einum stýrimanni á þessum fleytum.

Næsta brtt., sem ég geri að umtalsefni, er 3. brtt., um aðstoðarmenn við vél á fiskiskipum. Þar er gerð sama till. og nú er í frv., að þau skip, sem hafa minni vél en 800 hestafla, skuli vera undanþegin ákvæðinu um aðstoðarmann í vél. Það mun nú vera á 24 togurum af 37, sem aðstoðarmenn eru í vél. Það var talið nauðsynlegt, að aðstoðarmenn í vél væru á þeim togurum, sem höfðu yfir 630 hestaflavél. Það hefir verið færð sem ástæða fyrir því, að í sum stærri skipin væru komnar mjölvinnsluvélar, sem þurfi nákvæmt eftirlit, að því viðbættu, að í hvern einasta togara eru komin á síðustu 5 árum véltæki til bræðslu lifrar. Og það er alltaf verið að endurbæta þetta vélakerfi, sem kostar meiri pössun. Það er ekkert tillit tekið til þessa. hvorki af þeim. sem sömdu frv., né af meiri hluta n., að það má gera mun á því, hvort togararnir hafa svona mikið vélakerfi, miðað við hinar minni vélar. Og ef við förum aftur í tímann, til ársins 1915, þegar fyrsta löggjöf um skyldu til að hafa vélamenn á skipum var sett á þingi, sjáum við, að þá var svo ráð fyrir gert, að við vél, sem væri 600 hestöfl (þ. e. a. s. eins og venjulega er gefið upp um stærð vélanna í hestöflum), þá áttu að vera 3 vélstjórar á þessum skipum. Og undir það ákvæði komust allir stærri togarar, sem höfðu stærri vélar. Ég hygg, að miðað við þessi l. frá 1915, sé í þessu efni um hrapalega afturför að ræða, þar sem nú er lögð áherla á meiri flýti skipanna en þá var, og auk þess þurfa vélarnar nú meiri pössun en þá. Hvaða skilningur liggur á bak við þetta?

Á okkar skipum hafa vélstjórar lagt á sig miklar viðgerðir á vélum um borð í skipunum sjálfum, meira en hjá nokkurri annari fiskiþjóð. En líkurnar fyrir því, að þeir geti annað þessu, sem numið hefir útgerðina mörgum þús. kr. á ári, eru að hverfa með þeim till., sem hér eru bornar fram. ef að l. verða. Ég hefi því leyft mér að bera fram brtt. um það, að miða hér við 650 hestafla vélar, sem vitanlega eru niðurreiknaðar vélar, þannig að 650 hestafla vél mundi áður hafa verið 700 hestafla vél í öllum venjulegum tilfellum. En þó að ég hafi gert þessa brtt. lýsi ég því yfir. að ég er mótfallinn því. að aðstoðarmenn séu afnumdir af togurum. Ég hefi fengið mjög áreiðanlega skýrslu um, að þeirra sé þörf á togurunum. Um kostnaðinn við að hafa þessa menn á togurunum hefi ég tekið fram í nál. mínu. Þeir munu starfa um 9 mánuði á skipunum, og þá er um 31/2 þús. kr. þar að ræða. Ég fullyrði, að hér er um óhagsýni að ræða. fyrir útgerðina, að afnema slíka menn sem þessa. Það kemur miklu færra í land af því, sem gera þarf við vélar, með því að hafa þá á skipunum. Og það er dýrast fyrir útgerðina að flytja aðgerðirnar í land, ef hægt er að gera þær um borð. Ég hygg, að kostnaður við það komi því alveg fullkomlega á móti þessum 31/2 þús. kr. svona til jafnaðar. En ég býst hinsvegar við, að hér komi ekki rök til greina í þessu efni, heldur sé það ætlunin að málið skuli fram. hvað sem öllum rökum liður.

Ég sé, að n. hefir fallizt á þær till., sem ég gerði hvað snerti aðstoðarmenn á stærri skipum. Hún hefir breytt þeirri fáránlegu till., sem í frv. fólst, að afnema 3. vélstjóra á skipum eins og Brúarfossi og Dettifossi. Hún hefir breytt þeirri till. réttilega með því að láta hann vera, en afnemur svo aðstoðarmann á þessum tveimur skipum, og líka hinum öðrum stærri skipum, sem skylt er samkv. l. að hafa aðstoðarmenn á. En það hefir ekki verið lögð áherzla á að koma með brtt. um þetta. vegna þess að við vitum. að aðstoðarmaður af Brúarfossi og af Dettifossi verður ekki afnuminn. Og til hvers er þá að vera að breyta l. um þetta atriði? Þessi aðstoðarmaður er búinn að vera á skipunum frá því þau komu til landsins og var settur af nauðsyn í upphafi. Og vélstjórinn lætur aldrei þennan mann af höndum. Ég færði fram við 1. umr. gild rök fyrir því, hve mikil nauðsyn er á því um borð í farþegaskipi að hafa slíkan mann. Ég veit ekki, hvort hægt er að kalla það annað en hálfgerðan skollaleik, að vera að breyta l., vitandi það að ekki verður farið eftir þeim, eins og um er að ræða í þessu atriði.

Ég skal viðurkenna, að meiri hluti sjútvn. hefir gert ýmsar brtt., sem eru til hóta. T. d. er nú eftir 3. vélstjórinn, sem mun standa í till. n. Það er þó svolítill glampi af skilningi hjá n. í þessu máli. Ennfremur skal þess getið, að n. hefir haft fullan skilning á því, hve barnaleg till. var um að láta 3. stýrimann vera kyrran á. Súðinni, en afnema hann á Esju. Hún leggur þó til, að þessar till. í frv. verði felldar. Það er þó rétt að geta þess, sem gert er vel. En ég segi frá þessu til þess að benda á, hve mikill feikibarnaskapur og þekkingarskortur hefir átt sér stað hjá þeim mönnum, sem samið hafa og borið fram þetta frv. Ennfremur ætlazt n. til, að hafa megi tvo stýrimenn á varðbátum yfir 60 tonn. Allt skal tínt til. sem n. hefir vel gert.

Þá leggur n. til, að á fiskiskipum verði aðeins 3 vélstjórar. Og það er alveg rétt ráðið. Ég get þess í mínu nál., að það er ein af þeim fáu till., sem n. gerir. sem eru alveg réttlátar, því að það er fyrir misgáning komið inn í l., að fjórði aðstoðarmaður skuli vera á skipum með yfir 1200 hestafla vél, sem flytja þungavöru, en ekki fólk.

Þá kem ég að 4. brtt. hv. meiri hl. sjútvn., um vélamennina. Mér hefir reiknazt svo til, með aðstoð kunnugs manns, að ef tekinn er okkar fiskifloti nú. eins og hann er, þá muni láta nærri, að hér sé verið að afnema 2. vélamann á svo sem 200 fiskilrátum. Það mun láta nærri, að af þessum 313 mótorskipum yfir 12 smálestir, muni vera 200, sem hafa 50–150 hestafla vél. Hér er reynt að lappa upp á þetta. eins og sjá má af brtt., þar sem stendur, að því aðeins skuli undirvélstjóri afnuminn, að skipstjóri hafi vélgæzluréttindi. En hér er illa séð fyrir öryggi á þessum skipum, þar sem auðvitað hæglega getur komið fyrir, að þessi eini vélstjóri fatlist frá starfi sínu. t. d. meiði sig í vélinni, og verði þá þessi eini kunnáttumaður, skipstjórinn, að fara niður í vélarrúm og stjórna vélinni. Ég vil nú bara segja það, að hv. þm. Vestm. hefir ekki séð vel fyrir örygginu þarna, því að í flestum þessum bátum á enginn stýrimaður að vera. Nú mun vera sama ástæðan fyrir þessu, að það eigi að koma í veg fyrir þann kostnað, sem leiðir af því að hafa 2. vélamann. Og þessi kostnaður. sem hér er um að ræða, er kannske mikill í augum hv. frsm. meiri hl., en í mörgum þessum tilfellum er slíkur kostnaður ekki stór í augum útgerðarmanna sjálfra, þessar 23 kr. á mánuði. En það er sú upphæð. sem greidd er 2. vélamanni í þessum tilfellum vegna fagsins. En mér er sagt það af kunnugum mönnum, að í Vestmannaeyjum sé alls ekkert greitt fyrir þessi aukastörf, hvorki 2. vélamanni né 2. stýrimanni. En hvað sem er um það, þá er þó a. m. k. greitt minna fyrir það þar en hér við Faxaflóa. Svo að það getur ekki verið eins alvarlega meint hjá hv. þm. Vestm. eins og orð hans féllu í ræðu hans, að hér væri um svo mikið fjárhagsatriði að ræða. Hvað lengi eru 25 kr. að fara í súginn fyrir vankunnáttu við hirðingu einnar vélar? Hvað kostar svona stykki? Fróður maður á sviði mótorvéla hefir tjáð mér, að hvert hestafl í mótorvél kosti frá 250 0g upp í 300 kr. Hvert mistakatilfelli af hálfu vélstjóra á vélarpössuninni getur numið mörgum 25 kr. Þeim, sem samþ. þessi 1. fyrir 2 árum síðan, var það ljóst, að hér er um svo mikil verðmæti að ræða, þar sem eru mótorvélar, að fullkomin nauðsyn er á, að kunnáttumenn fari með þær. En framhjá því er algerlega gengið af formælendum þessa máls, að nauðsyn sé á, að kunnáttumenn passi þessi dýru tæki. Íslenzkir útvegsmenn eru búnir að eyða mörgum þús. kr., kannske svo hundruðum þús. kr. skiptir, í óþörf vélakaup, bara af því. að ekki hafa þeir menn verið kunnáttumenn sem skyldi, sem með vélarnar í skipunum hafa farið. Þessi orð mín styðjast við umsagnir kunnáttumanna, sem fengið hafa vélarnar úr skipunum upp í vélaviðgerðarhúsin hér. Þeir segja, að bilanir vélanna séu oft aðeins fyrir vankunnáttu þeirra manna, sem með þær hafa farið. Hér er rétt að fyrirbyggja slíkt. Það er nauðsynlegt, að maður, sem ætlar sér að öðlast vélstjóraréttindi, fái æfingu í pössun véla, en það er ekki nóg, að menn leggi stund á bóknám eitt til þess að geta orðið fullkominn 1. vélstjóri. Með brtt. minni er miðað að því að koma í veg fyrir, að slíkt geti orðið (að menn geti orðið vélstjórar að réttindum með bóknámi einu), ekki eingöngu í þágu þessarar stéttar, sem að þessu vinnur, heldur — og ég vil segja miklu fremur — fyrir þá menn, sem útgerðina reka. Mér liggur við að segja, að útgerðarmenn, sem leggja fram kröfur um, að afnema skuli þessa 2. vélamenn, verði, með því að fá það lögfest, sínir eigin böðlar, þegar fram í sækir.

Hv. þm. Vestm. sagði, að menn gætu látið skrá sig á skip sem stýrimenn og vélamenn. Þeir eiga þá sennilega að kaupa sér það að fá fyrir náð að leggja á sig meira starf og taka á sig meiri ábyrgð á skipunum en aðrir, sem fá sama kaup. (JJós: Þurfa menn ekki að kaupa sér öll réttindi?).

Ég hefi nú lagt til í brtt. á þskj. 503, sem ég flyt ásamt hv. 11. landsk. og er við brtt. meiri hl. n., að það sé látið vera nægilegt, að 2. vélstjórar vinni önnur störf á skipunum, eins og mér er kunnugt um, að viða er gert. Og því þá ekki að samþ. þessa till. og láta mennina geta verið kyrra á skipunum að l., úr því að þeir vinna allt, sem fyrir fellur á skipunum, nema að gegna störfum skipstjóra og fasts stýrimanns?

Ég hefi í brtt. mínum miðað hér við 25 rúmlestir og með því reynt að fara bil beggja, til þess að sefa að einhverju leyti óánægju þeirra, sem helzt ekki geta séð starfsmenn með réttindum á neinni fleytu, og þeirra hinsvegar, sem þykir þeir vera misrétti beittir með því. að af þeim sé tekinn réttur til starfa á skipum. En ég hefi bundið þetta við það, að það sé alveri skilyrðislaust á bátum, sem koma daglega að landi með afla sinn óaðgerðan, og þar sem viðgerðir veiðarfæra og beiting lóða fer fram í landi. Með því er trygging fyrir því, að þetta gildi aðeins um báta, sem róa beint úr landi og ætla sér að koma að landi að kvöldi sama dag. En eftir till. n. er þetta svo víðtækt, að ekki er hægt að una við þær eins og þær eru.

Í nál. mínu á þskj. 470 hefi ég gert grein fyrir því, hvað í frv. felst. Þegar ég samdi það. voru mér ekki kunnar brtt. meiri hl. n. Ég hefi því ekki í mínu nál. gert grein fyrir þeim kostnaðarauka, sem útgerðin verður að bera við það að hafa þessa kunnáttumenn og nota þá. En nál. sýnir öryggið, eins og það í raun og veru er, með því að hafa þessa kunnáttumenn. En mér er fyllilega ljóst, að það er svo mikill styr kominn um þetta mál, að það truflar athugun á því af hálfu sumra manna, og eins hitt, að hér geta þeir einir lagfært það, sem lagfæra þarf, sem náinn kunningsskap hata yfirleitt af siglingum. Þess vegna er það mín till. í málinu, að því verði vísað til ríkisstj. og að hún með aðstoð sérfróðra manna láti fram fara athuggun á málinn svo sem nauðsyn þykir þurfa. Skipstjórar, stýrimenn og vélamenn á stærri og minni skipum mundu að sjálfsögðu leggja til fróða menn til þess að fjalla um þetta, á hvern hátt ætti að breyta þessari löggjöf. Og hér ætti ekki að þurfa að kosta neinu fé til úr ríkissjóði, því að þessir menn munu að sjálfsögðu ekki telja eftir sér að leggja fram sína þekkingu til að gera till. um, hverju breyta þurfi í þessari löggjöf. Ég get illa unað því. að þessari löggjöf sé svo um bylt eins og hér er stofnað til, fyrir atbeina þeirra manna, sem í raun og veru (svo að ekki sé hart að orði kveðið) hafa lítinn eða engan skilning á því, hvað bezt hentar fyrir okkar siglingar og fiskveiðar eftir nútímakröfum og þeim vinnuhraða, sem yfirleitt er nú kominn í okkar vinnubrögð, bæði á sjó og landi.

Ég get nú látið mínu máli lokið. Ég mun þó, áður en þetta mál fer hér út úr d., gera ennþá fyllri grein fyrir því, samanborið við það, sem gildir hjá öðrum farmennsku- og fiskveiðaþjóðum, og sýna fram á, hvað við með þessari lagasetningu komum til með að stiga skrefið í þessu efni aftur á bak með tilliti til þeirra þjóða. Miðað við önnur kunnáttustörf í þjóðfélaginu, þá er hér ekki farið fram á meira en nauðsyn er á viðvíkjandi þessum kunnáttumönnum, sem á sjónum eiga að starfa og stjórna.

Ég harma það, að svona mikið kapp skuli vera lagt á mál, sem ekki er meira fjárhagsmál en þetta mál er, en dregur stórlega úr öryggi þeirra, sem á sjónum vinna. Rök formælenda þessa frv. fyrir réttmæti þess eru — og ég geri ráð fyrir að þau verði eins hér eftir sem hingað til — harla veigalítil, því að þetta mál er flutt af meira kappi en forsjá.