11.05.1938
Efri deild: 73. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1322 í B-deild Alþingistíðinda. (1945)

34. mál, atvinna við siglingar

*Frsm. minni hl. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Herra forseti'. Ég get látið niður falla umr. almennt um málið. En við umr. í gær beindi ég fyrirspurn til ríkisstj., en það stóð þá svo á,að enginn ráðh. var mættur. Nú er hæstv. forsrh. hér viðstaddur, og vil ég því endurtaka tilmæli mín frá í gær, en þau voru á þá leið, hvort ríkisstj. myndi ekki sjá sér fært að taka þessa löggjöf um atvinnu við siglingar á íslenzkum skipum til endurskoðunar milli þinga og kveðja sérfróða menn sér til aðstoðar um þá endurskoðun. Ég vil í því sambandi benda á, að það væri æskilegt, að Alþýðusambandið mætti velja þar einn mann, Farmanna- og fiskimannasambandið annan, en fyrir smáútvegsmenn hygg ég að bezt væri, að Fiskifélag Íslands veldi mann. Fyrir hinn stærri útveg, eins og togarana, hefi ég ekki komið auga á annan aðilja en Vinnuveitendafélag Íslands. Að sjálfsögðu myndi svo ríkisstj. hafa sem sinn fulltrúa oddamanninn í þessari athugun, sem væri þá sennilega jafnframt formaðurinn.

Ég vil rökstyðja þessi tilmæli mín með því, að ég tel það ekki verjandi fyrir þingið að gera þing eftir þing ýmsar stórfelldar breyt. á löggjöfinni, án þess að kveðja til sérfróða menn og úr hópi þeirra manna, sem eiga að búa við þessa löggjöf.

Ég mundi einnig óska þess, af það væri kleift, að þetta mál mætti daga uppi með það fyrir augum, þar sem vænta mætti, að ýtarleg athugun á málinu færi fram og frv. í því efni gæti þá legið fyrir næsta reglulega Alþ. Ég hafði gert uppkast að þáltill. í þessa átt, en þar sem komið er að þinglokum, þá taldi ég ekki öruggt, að slík þáltill. næði afgreiðslu, og þess vegna vil ég beina þessum tilmælum til ríkisstj. Ef hún tekur vel undir þau, þá mun ég taka það eins gilt og um þáltill. sé að ræða.

Að öðru leyti get ég verið stuttorður um þetta mál. Ég skal þó leyfa mér að geta þess. að við hv. 11. landsk. höfum borið fram brtt. við brtt. okkar á öðru þskj. um það, að í staðinn fyrir „þorskveiðar“ komi: fiskveiðar. Þessi till. er flutt í samkomulagi við einn nm. úr sjútvn., hv. þm. Vestm. Mér skilst, að hann muni þá geta fallizt á okkar brtt-, og mun hann að sjálfsögðu gera grein fyrir því.