05.04.1938
Efri deild: 41. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1328 í B-deild Alþingistíðinda. (1974)

28. mál, rekstrarlánafélög

*Frsm. meiri hl. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti! Meiri hl. sjútvn. hefir samþ. að fallast á að leggja til, að frv. nái fram að ganga með þeim breyt., sem eru á þskj. 115.

1. brtt. er við 3. gr., þar sem segir, að félagsmenn í sama félagi megi fæstir vera 5, en flestir 30.

Það er lagt til, að því sé breytt þannig, að þeir megi fæstir vera 10 menn.

Við á. gr. er brtt. þess efnis, að orðin á eftir b-lið: „Síðarnefnda tilhögunin skal þó að jafnaði ekki höfð, og ekki nema ef alveg sérstaklega stendur á, og skulu um þetta sett ýtarleg fyrirmæli í félagslögum og reglugerðum.“ falli burt, þ. e. a. s. þar sem frv. gerir ráð fyrir. að fyrirkomulag lána geti verið með tvennu móti. Í fyrsta lagi, að hver einstaklingur sé lántakandi hjá hlutaðeigandi lánstofnun eða félagið sjálft lántakandi gagnvart lánstofnuninni. Er lögð áherzla á það fyrra í frv. okkar einmitt með orðum þeim, sem er ætlazt til, að falli burt. breyt. myndi orsaka það, að það væri látið standa opið og án nokkurrar áherzlu. hvor aðferðin væri viðhöfð. — 6. gr. ætlast meiri hl. til, að falli niður. En hún er um það, að maður. sem er í rekstrarlánafélagi, geti líka útvegað sér rekstrarlán annarsstaðar, ef honum þykir það hagkvæmara. Meiri hl. hefir komizt að þeirri niðurstöðu, að það sé ekki rétt að leyfa, ef útgerðarmaður er í rekstrarlánafélagi, að hann fái lán á þann hátt, og er ekki ætlazt til samkvæmt brtt., að hann útvegi sér lán annarsstaðar. þá er fjórða brtt. við 11. gr. Þar er lagt til að fella burt skyldu ríkisstj. til að útvega fé til lánveitingar, en á hinn bóginn er ætlazt til, að áfram standi sú kvöð, að bankarnir, annar eða báðir, verði sér úti um lánsfé til að lána rekstrarlánafélögunum, ef þörf bankanna krefur þess.

Þetta eru þær brtt., sem meiri hl. leggur til. að verði gerðar á frv., og að þeim samþ., leggur meiri hl. til, að frv. verði samþ. Um afstöðu minni hl. get ég eiginlega ekki sagt annað en það, að þegar málið var til afgreiðslu í n., taldi hann sig, að svo komnu máli, ekki geta fallizt á málið í heild. Og geri ég ráð fyrir því, að minni hl., ef honum þykir þess þurfa, skýri þessa afstöðu sína til málsins við þessa umr.