05.04.1938
Efri deild: 41. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1331 í B-deild Alþingistíðinda. (1976)

28. mál, rekstrarlánafélög

*Frsm. meiri hl. (Jóhann Jósefsson):

Hv. minni hl. sjútvn. hefir nú skýrt afstöðu sína eða reynt að rökstyðja afstöðu sína til þessa frv., sem í stuttu máli er sú, að hann vill láta fella frv. Hinsvegar leynir það sér ekki, bæði á því og hinu, sem hv. minni hl. heldur fram hér í umr., að hann hefir í fyrsta lagi ekki skilning á málum eða kjörum þess hóps manna. sem ætlazt er til, að þessi löggjöf verði sérstaklega að gagni, ef frv. verður samþ. Hann þekkir af reynslu ekkert inn á þetta, þessi hv. þm. Og í öðru lagi hefir hann ekki hirt um að setja sig inn í það. Þessi hv. þm. hefir, eins og kunnugt er, engin kynni haft af annari útgerð en stórútgerðinni, þegar hann var unglingur. En hann hefir varið allri sinni æfi hér í baráttu við stórútgerðina og á sviði, sem alls ekki snertir beinlínis smáútgerð víðsvegar um land. Honum er sýnilega ekki kunnugt um þá örðugleika, sem margir lítið efnaðir vélbátaeigendur oft og tíðum í byrjun vertíðar og stundum langt fram á vertíð eiga við að etja um að fá áheyrn í bönkum um nokkurn stuðning til útgerðar sinnar.

Ef hv. 3. landsk. þm. væri eins vel kunnugt um þetta og mér, og ég geri ráð fyrir hv. 2. þm. S.-M. líka, og yfir höfuð öllum mönnum, sem hafa lifað meðal smáútvegsmanna og a. n. l. borið byrðar með smáútvegsmönnum víðsvegar um land, þá mundi hann ekki vera eins ákveðinn í að halda því fram, eins og hann er, að þetta sé þarflaust mál og gagnslaust. Ég þykist vita, að þessi hv. þm. sé ekki svo sneyddur tilfinningu fyrir því, að vilja vera mönnum til gagns, ef hann hefði skilyrði til þess, að hann vilji þess vegna leggjast á móti því, að löggjöf sé sett til stuðnings félagsskap og samheldni útvegsmanna í þessu efni.

Út af 1. gr. frv., sem er svona: „Útvegsmönnum í einu og sömu verstöð eða byggðarlagi er rétt að stofna rekstrarlánafélög samkvæmt lögum þessum“ — vill hv. þm. slá því föstu, að það sé lögð skylda, sem sé lögþvingun. á herðar útvegsmanna um að ganga í svona félög: Þetta er vitanlega algerlega rangt. Þetta orðalag í l., að mönnum sé rétt að gera einhvern hlut. segir ekki, að það sé skylt. Þetta orðalag er notað í lagamáli oftast í sambandi við löggjöf, sem menn geta notað, ef þeim virðist, að þeir muni hafa gagn af því eða það sé þeim hentugt. En það er ekki þar með sagt, að þeir séu skyldir til að nota þá löggjöf. Og það var að sjálfsögðu ætlun okkar flm. frv., að binda ekki hendur manna í þessum efnum. En hv. minni hl. sjútvn. kann yfir höfuð ekki við aðra löggjöf en þá, sem bindur og þvingar.

Þá segir þessi sami hv. þm., að það sé alveg óþarft að vera að setja l. um atriði, sem þegnar þjóðfélagsins geti, hvort sem er, framkvæmt. ef þeir vilja hafa samtök um það. Hversu margt mun ekki vera í íslenzkum l., sem um mætti segja, að væri óþarft, að hafa lögfest, ef fólkið hefði samtök um að lifa eftir því, sem þau l. ákveða. Ég held, að það gæti orðið nokkuð margt. Við skulum taka t. d., þegar sú löggjöf var sett hér á landi, sem hv. 3. landsk. telur sjálfsagt, að taki fram flestu öðru, sem gert hafi gagn verkalýðnum, — þegar sett voru togaravökulögin. Þá hefði sjálfsagt mátt mótmæla þeirri lagasetningu með sama rökstuðningi og segja: Það er alveg óþarft að setja löggjöf um svefntíma sjómanna á togurum, því að hann geta menn ákveðið sjálfir, ef þeir kæra sig um, án þess að lagasetning komi til. Þannig má hið sama segja um mörg l., að þau séu óþörf, ef landsfólkið vildi bara lifa eftir samskonar reglum og í löggjöfinni eru settar. Það er eins og stóð í kverinu, sem ég lærði undir fermingu: „Þegar heiðingjarnir, sem ekki hafa lögmál, gera af náttúrunni það, sem lögmálinu er samkvæmt, þá eru þeir, þótt ekki hafi þeir lögmál, sjálfum sér lögmál.“ Ef því með rökum hv. 3. landsk. ætti að mæla á móti löggjöf, sem styður að félagsstarfsemi manna með þeim forsendum, að mönnum væri frjálst að hafa félagsskap um þetta o. fl., þá væri hægt með sömu rökum að setja fót fyrir alla löggjöf um önnur atriði en þau. sem sett eru sem þvingunarl.

Hv. 3. landsk. ætti að vera sjálfur svo sem tvær til þrjár vertíðir í stórum verstöðvum, þar sem margt er smáskipa, en fremur slæm eða a. m. k. mjög misjöfn aðstaða til þess að fá lánsfé til rekstrar útgerðarinnar. Það er margt, sem spilar inn í um það, hversu þægilegt er fyrir útvegsmenn að fá lán, og gerir aðstöðuna til þess misjafna, ýmist stjórnmál, ýmist efnahagsástæður og margar aðrar orsakir, sem koma þar til greina. Þessi hv. þm. ætti að hafa verið áhorfandi að því, að efnalitlir útvegsmenn hafa orðið að bíða með að koma bátum sínum á flot, vegna þess að þeir hafa ekki fengið rekstrarlán, stundum langt fram yfir þann tíma. sem eðlilegt er, og oft og tíðum setið af sér af þessum orsökum mikinn afla. Ég hefi oft átt erfitt með að skilja það hjá bönkunum, hvað þeir sjá sér í því. ef þeir ætla að hjálpa bátaeigendum á annað borð til að stunda útgerð, að draga það vikum saman, eins og oft vill verða, að veita þeim þá fjárhagslega aðstoð, sem þarf, til þess að þeir geti komið bátum sínum á flot. Það eru eingöngu þeir minni máttar, sem verða að láta sér þetta lynda. Ef hv. þm. hefði náin kynni af þessu, þá er ég sannfærður um, að hann væri ekki eins viss um og hann þykist vera. að hér sé eingöngu um hégómamál að ræða.

Með frv. er ætlazt til að stíga spor í áttina til þess að hjálpa útvegsmönnum til þess að fá sér rekstrarlán í tæka tíð, m. ö. o. styrkja aðstöðu þeirra til þess að mynda með sér félagsleg samtök til þess að ná þessu marki. Hv. 3. landsk. sagði með réttu: Menn geta þetta án löggjafar. Ég neita því ekki. En löggjöf, sem heitir hópi manna, sem sameina sig í þessu augnamiði, ákveðnum fríðindum, hlýtur að styðja að því, að félagslyndi festi rætur hjá hlutaðeigendum. Og þegar ég tala um félagslyndi í þessu sambandi, þá er rétt að kannast við það, að þar sem bændur eru yfir höfuð fljótir til að vinna félagslega saman að sínum áhugamálum ýmsum, þá hefir skort mjög á það víða, að útvegsmenn gerðu slíkt hið sama. Mér virðist, að útvegsmenn yfir höfuð hafi verið tregari til þess að hafa félagsleg samtök með sér um sín mál heldur en bændur. Og ef mér skjöplast ekki í þessu, þá virðist mér vera spor alveg í rétta átt, að samþ. l. eins og þessi, ekki nein þvingunarlög, heldur l., sem beina útvegsmönnum inn á þær brautir samvinnu og félagssamtaka. sem í flestum tilfellum getur ekki gert þeim neinn skaða, en á hinn bóginn verður oft og tíðum til þess að styrkja aðstöðu manna í atvinnu þeirra. Og líka má gæta þess, að ætlazt er til, að þessi félög safni þó dálitlum sjóðum. Allt þetta miðar að því að þroska þá menn, sem í rekstrarlánafélögunum væru, styrkja þeirra aðstöðu við atvinnu þeirra.

Hv. 3. landsk. var ákaflega hneykslaður út af ákvæðum 7. gr. frv., sem hljóðar um, að rekstrarlánafélög eigi rétt á innflutnings- og gjaldeyrisleyfum fyrir nauðsynjum félagsmanna sinna í réttu hlutfalli við innflutningsreglur á hverjum tíma. (SÁÓ: Samanber 2. grein, stendur í frv.). Það er rétt, að þar eru orðin „nauðsynjar félagsmanna“ ekki látin ná eingöngu til útgerðarvara, heldur líka til vara handa heimilum útgerðarmanna.

Ég sé ekki, að hér sé um misrétti að ræða, þar sem vísað er til gildandi innflutningsreglna á hverjum tíma. Ég held því, að allt mas hv. 3. landsk. um, að hér sé um misrétti að ræða milli borgaranna, hljóti vegna tilvitnunarinnar í 7. gr. um, að gjaldeyrisleyfi þessi verði veitt rekstrarlánafélögunum „í réttu hlutfalli við innflutningsreglur á hverjum tíma“, að falla alveg um sjálft sig. Hitt er mér kunnugt, sem hv. 3. landsk. þekkir miklu verr, af sömu ástæðum, sem ég talaði um áður, nefnilega af því hann hefir ekki lifað í því umhverfi, þar sem hægt er vel að kynnast gangi þessara mála, að þráfaldlega fá ekki útvegsmenn innflutnings- og gjaldeyrisleyfi, ekki fyrir sínar nauðsynjavörur, heldur sínar útgerðarvörur, veiðarfæri, mótorhluta og ýmislegt annað af því, sem beint þarf til þess að geta komizt á sjó. Þeir fá ekki þessi leyfi oft og tíðum fyrr en komið er í ótíma. Ég tala nú ekki um ástand síðustu mánaða, þegar þeir í Vestmannaeyjum hafa orðið að vera í landi vegna þess, að þeir hafa ekki getað fengið gjaldeyri fyrir mótorhlutum, sem kosta á annað hundrað krónur. Þeir hafa fengið gjaldeyrisleyfin, en ekki getað fengið gjaldeyrinn í bönkunum.

Þegar þess er gætt, að útvegsmenn eru einir þeirra aðilja, sem ná í afl þeirra hluta, sem þarf til þess að framkvæma hlutina, sem sagt ná í verðmæti fyrir erlendum gjaldeyri, þá er sannast að segja ekkert ósanngjarnt að fara fram á, að þeir eigi rétt á að fá innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir sínum nauðsynjum á hverjum tíma. En hv. 3. landsk. þykir þetta misrétti. En það er fjarri því, að svo sé. Það eru einmitt þessir menn, sem sætt hafa mestu misrétti allra borgara þjóðfélagsins um þessi mál. Það eru mennirnir til sjós og lands, sem aflað hafa verðmætanna fyrir erlenda gjaldeyrinn. Af þeim hefir ríkisvaldið og bankarnir árum saman tekið þeirra útflutningsvöru við stórum mun lægra verði heldur en hún á að metast í íslenzkum peningum. Og svo má benda á tugi, ef ekki hundruð dæma þess, að þessir menn eru látnir bíða eftir afgreiðslu á innflutningsleyfum fyrir sínum nauðsynjavörum til útgerðarinnar, á meðan gjaldeyris- og innflutningsnefnd afgreiðir leyfi til þeirra manna, sem eingöngu lifa á því að flytja inn vörur til þess að selja háu verði. Þegar farið er svo fram á, að útvegsmenn (bændur eiga nú þegar nákvæmlega sama rétt í þessu efni) fái innflutnings- og gjaldeyrisleyfi fyrir sínum nauðsynjum, þá rís hv. 3. landsk. þm. upp og fer að tala um misrétti.

Þá minntist hv. 3. landsk. á umsagnir bankanna um þetta mál. Ég man til þess, að bankarnir hafa látið eitthvað uppi um málið og heldur talið það óþarft. En það þarf engan að undra. Bankarnir eru ekki venjulega að hlaupa upp með að kalla það þörf mál, þegar einhverjum kvöðum eða skyldum er að þeim stefnt. Ég er ekkert hissa á því, þótt bankarnir séu ekkert hrifnir af því, að rekstrarlánafélög eigi að fá sérstaka aðstöðu til þess að fá lán til útgerðar sinnar fremur en einstaklingar, né heldur því, að í frv. er gert ráð fyrir, að ríkisstjórnin hlaupi undir baggann og veiti aðstoð til þess að ná inn fé, ef bankarnir ekki geta það. Ég er ekkert að flytja þetta mál fyrir bankana, svo að í sjálfu sér hefi ég aldrei búizt við því, að þeir mundu hampa þessu máli. Ég er að flytja þetta mál fyrir þann hluta útgerðarmanna, sem allajafna á erfiðasta aðstöðu gagnvart bönkunum og erfiðasta aðstöðu í lífsbaráttunni. En bankarnir hafa hvergi látið í ljós, svo ég viti til, að þetta gæti orðið til ógagns útvegsmönnum.

Skal ég svo ekki að þessu sinni fara út í fleiri atriði vegna andmæla hv. 3. landsk. Ég sagði það í upphafi máls míns og endurtek það nú að lokum, að ég tel, að andstaða hans byggist á þessu tvennu: Í fyrsta lagi því, að hann beri ekki skyn á þá örðugleika, sem hér eru á ferðum, af nokkuð náttúrlegum orsökum, þar sem hann er ekki nægilega kunnugur málunum, af því að hann hefir ekki lifað með þeim mönnum, sem hér eiga mest hlut að máli. Og í öðru lagi á því, að hann hafi ekki reynt að kynna sér þær ástæður, sem hér liggja fyrir.