07.05.1938
Neðri deild: 67. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1343 í B-deild Alþingistíðinda. (1991)
28. mál, rekstrarlánafélög
*Bergur Jónsson:
Eins og hv. 6. þm. Reykv. gat um, fylgdi ég málinu í n. með þeim fyrirvara, að ég myndi ef til vill leggja fram brtt. Ég mun þó ekki gera það við þessa umr. En það er sérstaklega 10. gr. frv., sem ég tel kannske ástæðu til að fella niður. Þar segir, að ef bankarnir, Landsbankinn og Útvegsbankinn,hafiekkireiðufé, svo að þeir sjái sér fært að sinna lánbeiðnum rekstrarlánafélaga, þá skuli ríkisstj. hlaupa undir bagga með þeim og aðstoða þá til að verða sér úti um lánsfé. Ég veit ekki, hvort ríkissjóður hefir nú þau fjárráð, að hann geti tekizt slíkt á hendur. Væri viðkunnanlegra, ef fara á út á þessa braut, að bent væri á leiðir til þess, að ríkissjóður gæti aflað sér slíks fjár. Ég tel jafnvel, að þetta gæti orðið til þess að gera félögunum erfiðara um að fá lánsfé hjá bönkunum. Þeir gætu þá sagt, að ríkinu bæri að sjá fyrir þessu fé.
Annars mun ég athuga það til 3. umr., hvort ég ber fram brtt. eða ekki. En eins og þessi gr. er nú, tel ég hana sízt til bóta.