07.05.1938
Neðri deild: 67. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1344 í B-deild Alþingistíðinda. (1994)

28. mál, rekstrarlánafélög

Atvmrh. (Skúli Guðmundsson):

Í ræðu hv. 6. þm. Reykv. kom ekkert nýtt fram er gæti sannfært mig um, að nokkur þörf væri þessarar lagasetningar. Ég sé ekki betur en að útgerðarmenn geti sameinazt um alla þessa starfsemi án nýrra; l. Hvert það félag, sem stofnað væri eftir samvinnul., gæti rekið alla þá starfsemi, sem um ræðir í frv. Ég vil t. d. benda á a-lið 5. gr., þar sem gert er ráð fyrir, „að hver einstaklingur sé lántakandi hjá hlutaðeigandi lánsstofnun að því láni, er hann fær“. Ég sé ekki, að þörf sé á sérstökum félagsskap, ef lánsstarfseminni er hagað á þennan hátt. Útgerðarmenn í verstöðum geta sameinazt um að senda fulltrúa til að semja um lán án nokkurra nýrra l. Í b-lið sömu gr. er talað um, „að félagið sjálft sé skuldunautur gagnvart lánsstofnuninni og að það úthluti lánsfénu meðal félagsmanna“. Þessa aðferð má viðhafa í hverju félagi, þó að það sé ekki rekstrarlánafélag.

Í 3. gr. er talað um, að ábyrgð félagsmanna geti verið með tvennu móti, þannig, að einn ábyrgist fyrir alla og allir fyrir einn, eða þannig, að hver félagsmaður ábyrgist aðeins sína eigin skuld, að við bættri tiltekinni upphæð, sem nánar sé ákveðin í l. hvers félags. Þetta er í samræmi við það, sem nú tíðkast í samvinnufélögunum. Hér er því ekkert nýtt á ferðinni, og þarf því ekki nýrra l. við.

Ég veik áðan að ákvæðum 10. gr., þar sem gert er ráð fyrir því, að mér skilst, að félögin njóti sérstaklega stuðnings ríkisstj. um lán á hverjum tíma. Það kemur mér undarlega fyrir sjónir, að hv. 6. þm. Reykv., sem sérstaklega telur sig fylgjandi einstaklingsrekstri og framtaki einstaklingsins, skuli vera að beita sér fyrir félagsskap eins og þessum, er njóti sérstakra hlunninda um fram einstaklinga.