07.05.1938
Neðri deild: 67. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1347 í B-deild Alþingistíðinda. (2000)

28. mál, rekstrarlánafélög

*Frsm. (Sigurður Kristjánsson):

Hæstv. atvmrh. er enn að tala um, að hér sé ekki um annað að ræða en það, sem menn geti gert án l., og því séu l. óþörf. En þetta er hin mesta fjarstæða. Í frv. eru einmitt veitt hlunnindi, þau eru í 11. gr. Þar er bönkunum lögð sú skylda á herðar, að veita félögunum lán og ríkisstjórnin skylduð til þess að aðstoða bankana, ef þeir hafa ekki ráð á því. Þessu getur ekki hver félagsskapur séð sér fyrir. Ég skal taka það fram, að þegar fyrst kom fram frv. um rekstrarlánafélög hér á Alþ. — þau áttu aðallega við landbúnaðinn — þá var ætlazt til, að ríkisstj. sæi bönkunum fyrir fé. Er það haganlegt fyrir smáframleiðendur, sem hafa lítinn aðgang að lánsstofnunum, að geta þá komið til ríkissjóðs. En svo langt er ekki gengið í þessu frv., heldur er ætlazt til þess; að framleiðendurnir skipti við lánsstofnanirnar, en að þeim sé skylt að veita lánin, ef þær hafa fé til þess, og að ríkissjóður skuli aðstoða við að afla rekstrarfjárins, ef lánstofnanirnar hafa það ekki.

Út af skrifl. brtt. hv. þm. Barð. vil ég segja það, að ég held, að ekki sé rétt af hv. flm. að koma fram með hana við þessa umr. Ég er sannfærður um, að við nánari athugun muni hann sjá, að ekki er fært að fella þessa gr. niður úr frv. Ég tel hana einmitt þýðingarmesta af gr. þessa frv. Hún fjallar um það, að þessum félagsskap skuli séð fyrir rekstrarfé, og tel ég ekki nokkurt minnsta vit í að fella hana niður. Þá er betra að samþ. frv. alls ekki. Ef ekki er tryggt, að þessi félög fái rekstrarfé, þá er þýðingarlaust að vera að stofna þau. Ég vil því mælast til, að till. verði annaðhvort tekin aftur eða felld.