07.05.1938
Neðri deild: 67. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1351 í B-deild Alþingistíðinda. (2005)

28. mál, rekstrarlánafélög

*Frsm. (Sigurður Kristjánsson):

Ég ætla bara að gefa nokkrar skýringar. Ég heyri það, að sumum hv. þm. er ekki alveg ljóst, fyrir hverja þessi l. eiga að vera; auðvitað fyrir þá fátækustu af útgerðarmönnunum. Það er vitanlegt, að hinir efnaðri og stærri þurfa þessa ekki með. Þeir eiga beinan aðgang að bönkunum. En þetta er fyrir þá menn, sem oft og tíðum verða að bíða eftir svörum bankanna, þangað til komið er í óefni með þeirra rekstur, og stundum komið fram á vertíð, þegar þeir geta byrjað.

það er rétt, að það er ekki fyrirskipað, að bankarnir skuli lána þessum mönnum, en það eru settar reglur, sem gera það að verkum, að það er nokkurnveginn tryggt að lána þessum mönnum eins og öðrum, og ef bankarnir geta þetta ekki, þá er ætlazt til, að það komi til kasta ríkisstj. að aðstoða bankana.

það er misskilningur, þegar hér er verið að slá því fram, að hér sé verið að skylda ríkisstj. til lántöku. Það er hvergi minnzt á það, að ríkisstj. eigi að taka lán, heldur aðeins að aðstoða bankana til þess að taka lán, sem verður væntanlega sjaldan, því að þetta á ekki að þurfa að auka hin almennu útlán að neinum verulegum mun.

Hv. 5. þm. Reykv. var að spyrjast fyrir um það, hvort þessi félög væru ekki opin fyrir öllum. Ég má nú ekki eyða miklum tíma til þess að svara þessum fyrirspurnum hans, en vitanlega er tilætlunin sú, að þetta nái yfir alla þá útgerðarmenn, sem vilja vera með. Þessi félagsskapur og sú aðstoð, sem félagsmönnum er ætluð, eru fyrst og fremst fyrir þá máttarminnstu, sem ekki gætu að öðrum kosti staðið einir.