09.05.1938
Neðri deild: 68. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (2024)

137. mál, hitaveita í Reykjavík

*Flm. (Pétur Halldórsson):

Herra forseti: Ég held, að það eigi ekki að þurfa að halda langa framsöguræðu fyrir þessu frv., um að ríkið gangi í ábyrgð fyrir Reykjavíkurbæ fyrir láni til hitaveitu, sem bærinn er að ráðast í að gera. Eins og vitað er, er hér í Reykjavík sú einstaka aðstaða, að í nágrenni bæjarins er af náttúrunnar bendi nokkuð mikið heitt vatn, sem hagnýta má til hitunar húsa fyrst og fremst hér í Reykjavík. Bærinn hefir eignazt réttindi til þess að hagnýta þetta heita vatn, og hefir nú síðustu 3–4 árin varið nokkuð miklu fé til þess að auka vatnsrennslið þar í því skyni. að þar megi sem fyrst ná í nægilega mikið heitt vatn til þess að hita með öll hús í Reykjavík. En eins og er, er ekki nægilegt vatn til þess á Reykjum í Mosfellssveit. En það er ekkert, sem bendi til, að menn þurfi að falla frá þeirri sterku von, sem um það er, að þarna megi fá nægilega mikið heitt vatn til hitunar í öllum bænum. En þar er þó þegar fundið svo mikið heitt vatn, að það borgar sig vel að virkja það nú, þ. e. 175 lítrar á sekúndu af 85 stiga heitu vatni. Það hefir komið í ljós við athugun. að það er gott fjárhagslegt fyrirtæki að virkja nú þegar þetta vatn, og þá er það ætlun bæjarstjórnar Reykjavíkur að halda áfram borunum þarna og leggja kapp á að flýta þeim, helzt svo, að meðan færri hluti verksins er unninn og virkjað er það vatn, sem fyrir er, megi auka vatnsrennslið með þessum borunum svo, að heita vatnið nægi bænum öllum. og væri þannig hægt að framkvæma alla vatnsveituna í einni lotu.

Ég þarf ekki að lýsa því, hvað Reykjavíkurbær hefði mikið gagn af því, ef hægt væri með þeim tilkostnaði, sem gert er ráð fyrir, að þurfi til mannvirkisins. að nota þetta heita vatn í staðinn fyrir kolin. sem aðallega eru notuð í bænum og flutt eru frá öðrum löndum með ærnum kostnaði. Það hefir líka sýnt sig. að Reykjavíkurbúar standa sem einn maður að baki þessa fyrirtækis og bíða með mikilli óþreyju eftir því, að það komist á.

Eins og hv. þdm. sjá, fylgja hér í grg. frv. nokkrar tölur til upplýsingar um kostnaðinn í sambandi við þetta mannvirki, bæði að því er snertir allt fyrirtækið og líka sérstaklega þann hluta þess, sem nú þegar er hægt að ráðast í að framkvæma, og sömuleiðis um áætlaðan rekstrarkostnað og rekstrartekjur fyrirtækisins. Til viðbótar því, sem þar er sagt, skal ég geta þess, að þegar reiknað er með því, að hver sekúndu-lítri gefi af sér 3600 kr. á ári, þá samsvarar það söluverði á vatni, sem jafngildir 40 kr. verði á kolasmálest, og á því verði er útreikningurinn byggður, en það eru ekki líkur til. að kolaverðið lækki í Reykjavík verulega niður úr 40 kr., smál. Ég má segja, að síðan ettir stríð hafi það ekki farið verulega niður fyrir 40 kr. í smásölu. Sem stendur mun kolaverðið í Reykjavík vera 54–56 kr. smálestin. Svo að þótt reiknað sé með því kolaverði, sem telja má líklegt, að muni haldast lægst í næstu framtíð, þá er þetta fyrirtæki fjárhagslega öruggt og gefur af sér góðar tekjur. En þess er farið á leit, að ríkisábyrgð sé veitt fyrir láni til mannvirkisins, fyrst og fremst vegna þess, að það er vitað, að fjárhagsástand landsins nú á síðari tímum er mjög örðugt, svo að það vekur athygli fjármálamanna erlendis — og að því er virðist ekki minna nú upp á síðkastið — að það eru örðugleikar hér með greiðslur í erlendri mynt á því, sem landsmenn eiga að standa skil á, og þar sem það er líka augljóst, að þau opinberu lán. sem ríkið ber ábyrgð á sérstaklega, munu hafa nokkra sérstöðu, borið saman við önnur hin, sem ríkið er ekki í ábyrgð fyrir, þá þykir mér sjálfsagt að fara þess á leit. að ríkisábyrgð verði veitt fyrir þessu láni, sem þýðir það fyrst og fremst. að sú ýtrasta og fyllsta trygging er gefin fyrir yfirfærslu á vöxtum og afborgunum þessa láns, þegar þar að kemur, sem vænta má í þessu landi. Eg vona, að það sé hættulaust fyrir ríkissjóð að ábyrgjast greiðsluna, ef um það er að ræða að greiða í íslenzkum krónum, því að fyrirtækið mun standa undir þeim kostnaði árlega. Ríkisábyrgðin er að sjálfsögðu fyrst og fremst yfirlýsing ríkisvaldsins um, að það muni að sínu leyti bera ábyrgð á greiðslum af þessu láni eins og þeim, sem ríkið hefir tekið sjálft eða er í ábyrgð fyrir, og að þau kjör, sem þetta lán sætir, séu ekki lakari heldur en þau beztu, sem fyrir eru.

Ég skal svo ekki orðlengja um þetta frekar, nema ástæða gefist til, en óska, að málið fái greiðan gang gegnum þingið og því verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og fjhn.