09.05.1938
Neðri deild: 68. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1364 í B-deild Alþingistíðinda. (2029)
137. mál, hitaveita í Reykjavík
*Flm. (Pétur Halldórsson):
Herra forseti ! Ég þakka hv. ræðumönnum hér í deild fyrir vinsamlegar viðtökur yfirleitt. Þó þótti mér miður, að hæstv. fjmrh. skyldi boða það af hálfu flokks síns. að hann vildi ekki veita ríkisábyrgð fyrir meira en 80% af kostnaðarupphæðinni. Það er rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að þessi regla hefir verið tekin upp og framkvæmd — líklega aðeins í þessu eina tilfelli, sem ráðh. nefndi, rafvirkjun Akureyrar. En ráðh. benti þó á það sjálfur, að þetta fyrirtæki hefir nokkra sérstöðu. Og ég vil leggja á það áherzlu, að fyrirtæki. sem sparar með rekstri sínum næstum 100% af þeim gjaldeyri, sem stofnun þess kostar, í vöxtum og afborgunum, — fyrirtæki, sem sparar innflutning með hverjum sekúndulitra, sem streymir um leiðslurnar, og útrýmir næstum kolaflutningi til bæjarins, það hefir þá sérstöðu fyrir þjóðina í heild, að fullkomlega er réttmætt, að ríkið ábyrgist alla lánsfjárupphæðina.
Ekki get ég fallizt á, að það sé rétt, að 80% eigi að vera algild. Það verður að haga þessu eftir því, sem skynsamlegast þykir. Og í þessu tilfelli er skynsamlegast að gera ráð fyrir. að lánsféð verði allt tekið erlendis. Án þess að fara langt út í rökræður vil ég biðja hv. þm. að gleyma ekki þeirri grundvallarreglu, að það á að vera alveg sama, hvort lánið er tekið erlendis eða innanlands. Aðeins vegna þess, að við búum um stundar sakir við gjaldeyrisörðugleika, sem hér hefir verið komið upp, virðist mörgum nokkur munur á þessu tvennu. En við verðum að reikna með því, að þeir örðugleikar hverfi eftir stuttan tíma. Lánið verður að endurgreiða jafnt, hvort sem það er tekið innanlands eða erlendis, og þá kemur nokkuð í sama stað niður, hvaðan það sparifé er tekið. Fyrir alla, sem ekki reikna með endalausu volæði, heldur því, að það sé aðeins augnabliksástand og að við komumst einhverntíma úr kútnum, og vilja nokkuð að því vinna, eru þessar röksemdir gegn því að taka allt lánið erlendis einskis virði, þegar í hlut á fyrirtæki, sem er hagfræðilega öruggt að beri sig, og meira en það, — þarf ekki stuðning nema þann, að menn noti sér hitann, þegar hann er boðinn.
Það er ekki aðeins ónauðsynlegt, að þessu athuguðu, heldur mjög ástæðulítið, að þeir, sem við fyrirtækið eiga að skipta, verði að leggja fram hluta af kostnaðinum. Það er að öllu leyti réttmætt, að fyrirtækið borgi sjálft kostnaðinn á löngum tíma með eigin arði. Talið um það, að viðskiptamenn þess þurfi að sýna hug sinn til þess með því að leggja nokkurt fé fram í byrjun, finnst mér sýna rangan hugsunarhátt. Ég held, að allir skynsamir menn geti orðið sammála um, að eins og á stendur, sé bezt fyrir alla aðilja að fá allt féð erlendis með 25–30 ára greiðslutíma eða svo löngum sem unnt er að fá.
Hæstv. ráðh. talaði um, að sjálfsagt væri, að lánið yrði fengið í samvinnu við ríkisvaldið. Ég vona, að þar verði um þá eina samvinnu að ræða, að báðir aðiljar megi vera vel sæmdir af.
Ég óska þess mjög ákveðið, að hv. þd. fallist á að veita heimild til að ábyrgjast lánsféð allt, ef þess verður leitað erlendis.
Hv. 1. þm. Rang. beindi til mín nokkrum fyrirspurnum. Hann spurði, hvort svo hefði snúizt við síðan í vetur, þegar talað var um að fá lán án ríkisábyrgðar, að nú væri það ekki hægt. Ég skal svara því, að enginn vafi er á, að Reykjavík getur fengið lán til slíks fyrirtækis sem þessa með þeim fjárhagsástæðum, sem bærinn hefir. Það eina, sem lánveitendur vilja fá öryggi fyrir, eru yfirfærslur í erlendri mynt á vöxtum og afborgunum árlega. Það mun hv. þm. fallast á, að fyrir geti komið, að Reykjavíkurbær hafi ekki ráð á nægum erlendum gjaldeyri, þó að nóg sé til af íslenzkum peningum til að greiða þetta. Ég gat þessa í fyrri ræðu minni, að ábyrgðin er í rauninni eingöngu trygging fyrir yfirfærslu. Ég get sagt það í einu orði, að ég ber engan kinnroða fyrir það, sem ég hefi gert í þessu máli. Enda hefir ekkert komið upp, sem hnekkir því, sem ég hefi sagt, að bærinn hafi nægilega tiltrú til þess að fá lán án ríkisábyrgðar. — Það var alveg óþarft af hv. þm. að spyrja, hver meiningin væri með fyrstu málsgr. grg., því að málið liggur ljóst fyrir, eins og ég benti á í fyrri ræðu minni.
Ég vissi, að Alþfl. mundi verða frv. fylgjandi, enda vænti ég þess, að þeir vilji veita ábyrgð fyrir 100% lánsfjárins, þó að fulltrúi þeirra, hv. 7. landsk., vildi ekki binda sig við það í ræðu sinni. Það var líka eins og vænta mátti, að fulltrúar Kommfl. hér í d. mundu mæla með frv. En mér þótti gæta leiðinlegs misskilnings hjá hv. 5. þm. Reykv., þar sem hann gat ekki stillt sig um að kasta því fram, að sjálfstæðismenn hefðu ekki átt að vinna á eigin spýtur með brauki og bramli að þessu máli því til tafar. Ef einhverjum þykir aðdragandi málsins óeðlilega langur, þá skýtur það nokkuð skökku við. Sannleikurinn er sá, að þessu máli hefir verið hraðað mjög mikið, eftir því sem föng eru á. Enda fékk meiri hl. bæjarstjórnar ákúrur fyrir það í vetur sérstaklega, að hann hefði flasað að málinu til þess að geta notað það við bæjarstjórnarkosningar í janúar. Ekki er hvorttveggja rétt, að meiri hl. bæjarstjórnar hafi flýtt málinu um of og seinkað því um of. En hvað sem því liður, á að vísu að hraða framkvæmdum sem mest héðan af. Þeir, sem nú reka mest eftir, þykjast kannske vita, að við höfum áratuga reynslu fyrir því, Íslendingar, að slík milljónafyrirtæki og lántökur til þeirra þurfi litinn undirbúing og engan tíma. Skynbærir menn sjá betur. Ég held, að ef litið er yfir málið og meðferð þess, þá beri hún með sér, að unnið hefir verið að því málefnisins vegna, en af engum öðrum ástæðum.