11.05.1938
Neðri deild: 73. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1385 í B-deild Alþingistíðinda. (2046)
137. mál, hitaveita í Reykjavík
*Héðinn Valdimarsson:
Ég myndi geta farið, eins og hv. þm.. sem talað hafa á undan mér, alllangt út í undirbúning þessa máls og á ýmsan hátt talað á sama veg og hv. 2. þm. Skagf., bæði hvernig Sjálfstfl. var á sínum tíma mjög tregur til þess að leggja út í hitaveituna. ófáanlegur til þess að rannsaka aðra staði en Reyki, hvernig málið var misnotað við síðustu kosningar, í því skyni að Sjálfstfl. gæti haldið völdunum í bænum, a. m. k. af öllum áróður5mönnum hans, og hundruðum manna lofað vinnu við hitaveituna, ef þeir kysu Sjálfstfl. og kosningarnar ynnust, en ég álít að málið sé komið á það stig, að það sé ekki ástæða til að fara út í deilur um undirbúning þessa máls. Það er nú svo komið fyrir mönnum í Reykjavík, að þeir vilja ekkert annað en að koma þessu máli af stað nú þegar, og að ekkert sé gert, sem verði því til fyrirstöðu, að málið komist í framkvæmd, m. ö. o., að veitt sé ríkisábyrgð fyrir öllu láninu. Ég vil spyrja sérstaklega þá, sem talað hafa, hvort þeir samþ., ef frv. verður samþ. í þessu formi, að veitt verði ríkisábyrgð til yfirfærslu á öllu því láni. sem nauðsynlegt verður að taka, og í öðru lagi, hvort þeir muni vera á móti frv., ef till. um 80 eða 90% verða felldar?
Það er satt að segja mjög fróðlegt fyrir alþýðu manna að vita, hvort ætlun Framsfl. og þingsflokks Alþfl. er að vera á móti hitaveituláninu, ef það er ekki einskorðað við 80% eða 90 % .
Það hefir verið talað mikið um það, hvað Reykjavík væri vel stödd. Það má líka tala um það, að mjög lítið hefir verið tekið af ríkisábyrgðum fyrir Reykjavík. En hvað hún sé vel stödd, er fyrst og fremst komið undir því, hvað gjaldþol borgaranna til bæjarins er. Nú er það vitað, að í þessum mikla mannfjölda, sem er í Reykjavík, þá er margt af mönnum, sem hafa meiri tekjur og eiga meiri eignir heldur en menn annarsstaðar. En þar á móti kemur það, að hér er mikill fjöldi af mönnum, sem hafa svo að segja ekkert að bita og brenna. eins og sést á því, hvernig hefir orðið að halda uppi atvinnubótavinnu hér í bænum. Annað er það, að gjaldþol bæjarmanna kemur ekki að litlu leyti undir því, að hve miklu leyti ríkið leggst á það gjaldþoli. En það hefir verið þannig á hverju þinginu á fætur öðru, að ríkissjóður hefir tekið meira og meira af þessu gjaldþoli bæjarmanna í Rvík yfir til ríkissjóðs með tekju- og eignarskattinum og tollum og jafnvel skemmtanaskatti, svo það segir sig sjálft, að gjaldþolið til bæjarins hlýtur að takmarkast meir og meir.
Þá er annað atriði, að hve miklu leyti hægt er fyrir Rvík að taka innanlandslán fyrir 10% eða 20%, sem ætlunin er að skilja eftir. Ég vil benda á tvennt í sambandi við það. Annað er það, hvernig ríkissjóður stendur sjálfur í vegi fyrir því, að Rvík geti tekið innanbæjarlán, með þeirri heimild, sem hann hefir fyrir 3 millj. kr. láni. Það er ritanlegt, að það er búið að binda þá, sem von er til, að leggi fé í slíkt innanlandslán í næstu tvö árin a. m. k., svo að þeir hafa ekki neitt aflögu. Það sýndi sig, þegar byggingarsjóður verkamanna, sem er fyrir allt landið, leitaði láns. og það sennilega hjá þeim sömu. sem Rvíkurbær myndi leita til, en fékk ekki lán upp á nokkur hundr. þús. kr., þrátt fyrir það, þótt hann hefði ábyrgð þá, sem er í byggðum verkamannabústöðum, sem verður að teljast mjög góð, og þar að auki ábyrgð Rvíkurbæjar og ríkissjóðs. Það má geta nærri. jafnvel þótt ekki sé farið að vefengja, að ábyrgð Rvíkurbæjar sé góð út af fyrir sig, hvort Rvíkurbæ einum gengur betur að ná í innanlandslán heldur en þar sem bæði ríki og bær er bak við. Ég álít því, að með því að takmarka þetta við 80% eða 90%, þá sé verið að gera tilraun til þess að tefja fyrir þessu láni, og eins og ástandið er nú, þá álit ég það mjög mikinn ábyrgðarhluta. Því hefir verið lýst fyrr á þinginu, hvernig atvinnuástandið hefir verið í vetur. Við höfum atvinnuleysingjatölurnar í dag og vitum því, hvað atvinnuleysið er mikið, enda eru byggingar litlar og engin opinber vinna, sem teljandi sé. er hér í bænum. Ríkissjóður hefir hér í sjálfri Rvík ekki lagt í nein mannvirki, og í næsta nágrenni Rvíkur er ekkert annað en vegirnir, sem verður nú miklu minni vinna við en undanfarið, vegna þess að sú aðferð hefir verið viðhöfð að undirbyggja vegina í atvinnubótavinnu. þannig að það, sem gert er af ríkissjóði fyrir fé, sem veitt er á fjárl., er mikið til efni. Það er þess vegna af opinberum framkvæmdum af ríkisins hálfu hér í Rvík mjög lítið, og miklu minna en áður hefir verið. Það, sem verkamenn hér í bænum eru að vona, er þess vegna það, að þessi hitaveita komist af stað, — ekki það, að bíða verði eftir henni í 6–12 mán., meðan verið er að ná í innanlandslán, heldur að hún komist af stað í sumar, í júlí- eða ágústmánuði. Við sjáum ekki, hvernig fer fyrir fjölda manns, sem þarf atvinnu, ef ekki er í þetta lagt. Ég get því ekki skilið, að það geti verið stjórnarflokkunum það kappsmál, að halda þessum 10% eða 20% eftir af lánsfénu, að þeir vilji tefla í hættu um það, hvort hitaveitan getur komizt á. Það eru að vísu engin ákveðin loforð fyrir því, að lán fáist, þrátt fyrir þetta. En það, sem maður hefir heyrt um þetta frá borgarstjóranum, sem gera má ráð fyrir, að sé orðinn varfærpari í orðum af reynslunni, og af öðrum, sem hafa um þetta fjallað, bæði íslenzku verkfræðingunum og öðrum, þá eru miklar líkur til, að mælt verði með því af umboðsmanni þeirra Svíanna, að lán fáist, og það mun þá fást. Ég vil þess vegna leggja eindregið með því að þetta frv. verði samþ. óbreytt og þær brtt., sem gerðar hafa verið við það, verði felldar eða helzt teknar aftur.