11.05.1938
Neðri deild: 73. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1390 í B-deild Alþingistíðinda. (2049)

137. mál, hitaveita í Reykjavík

Einar Olgeirsson:

Ég held, hvað það snertir, að koma þessu máli fram sem fyrst, þá væri það heppilegast, að fara ekki út í mjög stórpólitískar flokkadeilur í þinginu, þótt fyrir andstæðinga Íhaldsins sé hér mjög gott tækifæri til þess að sýna fram á, hvernig þess aðferð í þessu máli, að gera það að sérmáli Sjálfstfl., hefir gersamlega mistekizt. Við höfum nægilegt tækifæri til þess utan þings að sýna fram á það, en það, sem þinginu liggur mest á, á þessum síðasta eða næstsíðasta degi þingsins, er að flýta þessu máli sem mest.

Kommfl. hefir frá upphafi verið eindregið fylgjandi þessu máli, og við höfum barizt fyrir því í bæjarstjórn Rvíkur, að Sjálfstfl. gerði það ekki að sérmáli sínu, heldur tæki upp samvinnu við ríkisstj. um það, og fluttum við till. um það, sem drepin var af Sjálfstfl. Við álitum, að um þetta mál ætti að vera samvinna allra flokka, og þrátt fyrir það. þótt reynt hafi verið að gera það að sérmáli Sjálfstfl., til þess að nota það í pólitísku áróðursskyni. þá álit ég, eins mg nú er komið málinu. þá megi ekki tefja málið, og þess vegna beri þinginu að reyna að ganga þannig frá því, að það geti orðið sem mest trygging fyrir því. að ekkert það geti komið fyrir, sem tafið geti það. Við vitum, að af hálfu Rvíkurbæjar hefir verið leitað eftir láni erlendis og hvernig það hefir gersamlega mistekizt. Við vitum, að stríð getur þá og þegar skollið á, annað og meira stríð en það, sem nú er í Evrópu. Töf á þessu máli, þótt það væri ekki nema mánuður eða vika fram yfir það, sem nauðsynlegt er, gæti verið stórskaðleg framgangi þessa máls. Ég álít því, að það beri að gera allt, sem í þingsins valdi stendur, til þess að flýta málinn, og láta ekki hinar pólitísku erjur eða þá sök, sem Sjálfstfl. á á drætti þeim, sem orðið hefir á þessu máli, verða til þess að tefja málið. Það er vitanlegt, að það getur ekkert orðið eins mikið til þess að bjarga málinu sem fyrst eins og það, að ríkisstj. taki sem bezt undir þetta mál, og að það takist sem fullkomnust og öruggust samvinna milli ríkisstj. og bæjarstjórnar Rvíkur í því að hrinda þessu máli í framkvæmd. Það þýðir um leið, að það er öruggast, að ríkisstj. geti ábyrgzt allt lánið, ef með þarf. Við kommúnistar munum þess vegna standa með því, að frv. verði afgr. eins og það liggur fyrir, og greiða atkv. móti þessum tveimur brtt., sem fyrir liggja. Ég get að vísu búizt við því, eftir styrkleikahlutfallinu í þinginu, að till. Alþfl. verði samþ., en ég álít samt sem áður, að rétt sé að freista þess að koma því í gegn að hafa ábyrgðina alveg fullkomna. Það má ekki leggja í nokkra hættu með töf í þessu máli. Við verðum að gera allt til þess að flýta málinu.

Hv. 7. landsk. og hv. þm. Ísaf. flytja brtt. á þskj. 568. Ég býst við, að ég geti verið með síðari parti till., sem segir, að ríkisstj. sé heimilt að ábyrgjast lán fyrir Reykjavíkurkaupstað til hitaveitu, þó aldrei yfir 90% af stofnkostnaði hitaveitunnar, enda sé tilhögun veitunnar samþ. af ríkisstj. og útvegun lánsfjár gerð í samráði við hana. Vonandi er að framkvæmd verksins tefjist ekki af þeim sökum, að eigi verði bezta samvinna milli ríkisstj. og bæjarstj. Reykjavíkur um að nota þann bor, sem ríkisstj. hefir umráð á og hentugastur er til þessara rannsókna. — Um það. sem hv. 1. þm. Rang. var að segja, ætla ég að taka fram, að það væri æskilegt fyrir framgang þessa máls, sem ég álit vera eitthvert mesta velferðarmál þjóðarinnar, sem nú liggur fyrir, að byrjað yrði á framkvæmdum sem allra fyrst, sérstaklega með tilliti til stríðshættunnar, sem yfir vofir. Að öllu athuguðu tel ég, að þetta sé það nauðsynjamál. sem okkur liggur mest á, að komið verði í framkvæmd.