11.05.1938
Neðri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1402 í B-deild Alþingistíðinda. (2061)

137. mál, hitaveita í Reykjavík

Atvmrh. (Skúli Guðmundsson):

Ég skal ekki eyða löngum tíma í frekari umr. um þetta mál. Ég vil aðeins segja örfá orð út af því, sem fram kom hjá hv. 2. þm. Reykv. og hv. 4. þm. Reykv. Bæði ég og hæstv. fjmrh. höfum lagt áherzlu á, að það sé mjög varhugavert að hverfa frá þeirri reglu, sem upp hefir verið tekin um að ábyrgjast aðeins 80% af slíkum lánum, og ef það er gert, þá mun það draga dilk á eftir sér. Það mun sýna sig síðar, að það verður erfitt fyrir þingið að risa móti því að láta önnur héruð og bæjarfélög hafa ábyrgð fyrir öllum stofnkostnaði þeirra framkvæmda, sem þau vilja ráðast i, ef það er gert nú fyrir Rvík.

Hv. 2. þm. Reykv. segir, að þó lán fengist innanlands, sem hann vildi, að því er mér skildist, draga íefa, þá yrðu kjörin miklu verri. Ég vil þá spyrja hann, hvar sé áhugi Reykjavíkurbúa fyrir þessu máli og þeirra fórnfýsi í þessum efnum? Það er vitanlegt, sem betur fer, að margir í Rvík hafa yfir það miklu fjármagni að ráða, að þeir geta auðveldlega lánað bænum 1/5 af kostnaði hitaveitunnar, ef hann getur ekki lagt það fram úr eigin sjóði. Hvar er áhugi þeirra fyrir þessu mikla velferðarmáli bæjarins, ef þeir vilja ekki leggja þetta fram, án þess að ríkisábyrgð sé fyrir þeim hluta lánsins?

Hv. 2. þm. Reykv. veit vel, að hans flokkur hefir haldið því fram undanfarið í ræðu og riti. að ríkið væri á heljarþröminni, en Rvík væri vel stæð. Hvernig stendur þá á því, að sjálfstæðismenn í Rvík fást ekki til að lána bænum fé, nema ríkið gangi í ábyrgð, eins og mér skildist á ræðu hv. þm.? Ég fæ ekki skilið áhuga þeirra fyrir málinu, ef þeir vilja ekki lána lítinn hluta til þessara framkvæmda með ekki lakari kjörum en hægt er að fá 80% af fénu fyrir erlendis. — Hv. 4. þm. Reykv. talaði í þessu sambandi um síldarbræðslur og að ekki myndi ríkið koma þeim upp, nema að fá allt lánið í einu lagi og þá vitanlega erlendis. Ég vil ekki fallast á þetta. Það er ekkert því til fyrirstöðu, ef í slíkt fyrirtæki er ráðizt, að þá sé nokkur hluti lánsins tekinn innanlands. Og hvað á að segja um hafnargerðir, sem fá ekki frá ríkinu nema 80% af kostnaði í styrki og ábyrgðir? (Fjmrh.: Og hefðu aldrei átt að fá meira). Fæst af þeim héruðum, sem koma upp hafnarmannvirkjum hér á landi, munu færari um að leggja fram fé af eigin sjóði. Þau verða að taka lán í tvennu lagi, og er enginn að fárast um það. Ég get þess vegna ekki skilið það, þegar hv. 4. þm. Reykv. telur það fjarstæðu, að halda því fram, að nokkuð eigi að koma af fé frá þeim, sem njóta eiga þessara merkilegu framkvæmda. Ég fæ ekki skilið þann hugsunargang. Það er ekki rétt, sem hann sagði, að sú regla, sem tekin hefði verið upp undanfarið um þetta, væri um alveg ósambærilegar framkvæmdir og því ekki hægt að taka tillit til þess. Þetta er ekki rétt hjá hv. þm. — Ég skal svo ekki hafa um þetta mál fleiri orð.