11.05.1938
Neðri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1403 í B-deild Alþingistíðinda. (2063)
137. mál, hitaveita í Reykjavík
Einar Olgeirsson:
Ég vil aðeins í sambandi við þessar síðustu umræður segja, að hitaveitan er fyrst og fremst mál, sem fólkið í Rvík hefir áhuga fyrir, en ekki auðmennirnir í Rvík. Og það er rangt hjá hæstv. atvmrh., ef hann býst við því, að helztu auðmennirnir í Íhaldsflokknum í Rvík muni leggja fram sérstaklega mikið til þess að koma hitaveitunni af stað. Ég býst við, að Sjálfstfl. hafi fyrst og fremst haft þá hagsmuni af þessu máli, að nota það til pólitísks framdráttar. En hitt er vitað, að áhuginn fyrir þessu máli hjá fólkinu er það mikill. að það helzt engum flokki uppi annað en að vera með því. En að auðmennirnir í Sjálfstfl. fari að leggja fram stórfé, er af og frá. Það viðurkenndi líka einn af fulltrúum auðmannastéttarinnar í Rvík. Það er þess vegna vitað, að þaðan er ekki neinnar bjargar að vænta. Svo framarlega sem á að treysta á það, að hitaveitan komist í framkvæmd, þá verður fyrst og fremst að treysta á það, að þetta mál sé gert eins vel úr garði frá Alþ. eins og mögulegt er, og reynt sé að sjá svo til, að ábyrgð ríkisins á þessu láni sé fullkomin. þannig að það verði ekki í sambandi við ábyrgðina hægt að vera með nein undanbrögð í framkvæmd þessa máls, og ekki sé hægt að kasta á hið breiða bak Alþ., að það hafi reynt að tefja fyrir framkvæmd málsins. Þess vegna álít ég það fjarri lagi, að fara að draga nokkuð verulega úr þessari ábyrgð, heldur eigi að veita hana að fullu eins og farið er fram á, því hér er um það mikið þjóðarnauðsynjamál að ræða.