11.05.1938
Neðri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1416 í B-deild Alþingistíðinda. (2077)
137. mál, hitaveita í Reykjavík
Einar Olgeirsson:
Þessar umræður, eins og þær hafa verið upp á síðkastið, hafa leitt eitt eftirtektarvert í ljós. Það er engum efa bundið, að fjöldi í Sjálfstfl., fylgir hitaveitunni af einlægni. En hitt hefir orðið greinilegt í kvöld, að til eru menn í flokknum, sem ætlast ekki til að framkvæma það mál fyrir fólkið, heldur til þess eins að geta notað það um heila eilífð í kosningabaráttunni í Reykjavík. Þegar um það var að gera, að koma þessu máli fljótt í gegn, og þegar allir flokkar takmörkuðu sig sem þeir gátu við umræðurnar, þá stendur hv. 8. landsk. upp til þess að hleypa örgustu flokkapólitík inn í málið. Ég býst við, að hann sé fulltrúi þeirra, sem sérstaklega hugsa sér að nota hitaveitumálið sem sérmál Sjálfstfl. eilíflega fyrir kosningar, en koma því ekki í framkvæmd. Ég vil segja við slíka menn, að það lítur út sem þeir þori ekki og vilji ekki koma á hitaveitu. Ég hefi samúð með því, að umr. sé flýtt, til þess að ekki takist að þvælast fyrir málinu. Og ég vil endurtaka það, að og álít ennþá nauðsynlegra, eftir það, sem hér hefir komið fram, að láta bæjarstjórn Reykjavíkur fá þetta lán, 100%, eins og farið er fram á, til þess að ekki séu til nokkur undanbrögð fyrir þessa herra um það að afsaka sig á nokkurn hátt eftir á. En svo að ég leggi orð í belg um það, hverjum fjármálaóreiðan sé að kenna og hvernig væri nú komið, ef Sjálfstfl. réði, þá vil ég segja það stutt og skorinort: Þá væri landið komið sömu leið og Íslandsbanki fór forðum.