11.05.1938
Neðri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1421 í B-deild Alþingistíðinda. (2086)

137. mál, hitaveita í Reykjavík

*Pétur Halldórsson:

Ég vil endurtaka það, sem ég sagði hér áðan, að ég hefi ekki orðið var við það, við umleitanir fyrir lántöku til hitaveitunnar, að sú lántaka hafi ekki getað gengið af því, að það hafi staðið á ríkisábyrgð. Má ég líka minna hæstv. fjmrh. á það, þar sem hann sagði, að gjaldeyrisörðugleikarnir hefðu verið kunnir í haust, að á sama tíma sem ég þóttist mega treysta því. að lán stæði til boða til hitaveitunnar ríkisábyrgðarlaust, þá hélt þessi sami hæstv. ráðh., að á sama hátt stæði til boða með ríkisábyrgð lán fyrir Akureyrarkaupstað í London. En það gilti sama um bæði þessi lán, hver sem ástæðan er til þess, að þau fengust ekki.