12.05.1938
Efri deild: 77. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1423 í B-deild Alþingistíðinda. (2098)

137. mál, hitaveita í Reykjavík

*Erlendur Þorsteinsson:

Ég skal ekki tefja mikið fyrir afgreiðslu þessa máls. Ég hefi borið fram brtt. við frv., sem er á þskj. 595 og takmarkar þessa ábyrgðarheimild við 90% af stofnkostnaði, eða 6,3 millj kr., eftir því sem farið er fram á í frv. Þessi brtt. var einnig borin fram í hv. Nd. af Alþfl.mönnum þar, en féll með jöfnum atkv. við 3. umr. málsins.

Ástæðan til þess, að við jafnaðarmenn viljum binda þetta við 90%, er sú, að ýms bæjarfélög úti um land hafa fengið ábyrgðir, sem bundnar eru við 80% af kostnaðaverði fyrirtækjanna, sem lán hafa verið fengin til út á ábyrgðir ríkisins. Við vildum heldur hafa þessa ábyrgðarheimild bundna við 90% heldur en 80% af kostnaðarverði, úr því ekki var hægt að fá ábyrgðina fyrir 100% kostnaðarverðs.

Það mun nú þegar vera búið að leggja fram fé fyrir ýmsa vinnu við undirbúning þessa fyrirtækis, sem mun falla inn í stofukostnað þess. Það er ýms vinna hér heima, sem mun nema þessari upphæð, sem við leggjum til, að ekki verði veitt ríkisábyrgð fyrir. Auk þess má færa það fram sem ástæðu fyrir því að veita ekki ábyrgð fyrir allri lánsupphæðinni, að ekki má til minna ætlast en að þeir, sem trúa á réttmæti þessa fyrirtækis og að það muni bera sig vel og ætla þess vegna að leggja í það, vilji sjálfir leggja fram þessi 10% af stofnkostnaðinum, til þess að koma málinu áfram.

Ég vil á engan hátt vekja deilur hér í þessari hv. d. um þetta mál, en vænti þess, að þessi brtt. nái fram að ganga.