12.05.1938
Efri deild: 77. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1424 í B-deild Alþingistíðinda. (2102)
137. mál, hitaveita í Reykjavík
*Magnús Jónsson:
Það er ekki þörf á miklum umr. um þetta mál. Það var rætt svo mikið í hv. Nd. og hv. þm. þessarar d. munu margir hafa fylgzt með því.
Það má út af fyrir sig segja, að hvort þessi brtt. verður samþ. eða ekki, þá sé það ekki svo mikið atriði fyrir málið, að það strandi á því. Og má segja með nokkrum rétti, að Reykvíkingar geti lagt frum þessi 10%. Ég geri ráð fyrir, að út af fyrir sig sé ekki það það erfiðasta í sambandi við þetta mál, að geta kannske skrúfað út sem lánsfé innanlands þessa fjárhæð, 10% af láninu. En ef lánið er á annað borð fáanlegt í heild sinni sem gjaldeyrislán, þá álít ég það hentugra að fara þá leið heldur. Það er t. d. vitanlegt, að þeir peningar, sem þannig væru teknir innanlands til þess að festa þá í þessu fyrirtæki með því að kaupa fyrir þá skuldabréf til þess að framkvæma þetta fyrirtæki, þeir eru dregnir út úr veltunni frá öðru, sem við vitum, að hefir tilfinnanlega skort lánsfé. Peningur, sem fengnir voru að láni innanlands til þessa fyrirtækis, geta ekki komið annarsstaðar að, en að menn dragi frá út úr lánsstofnunum og frá þeim þörfum, sem lánsstofnanirnar eiga og verða að sjá fyrir. Þar að auki, eins og gjaldeyrisástandið er nú, þá er ómögulegt að neita því, að það léttir gjaldeyrisástandið, að sem mestur hluti þess lánsfjár, sem þarf til svona fyrirtækja, sé, ef auðið er, í frjálsum gjaldeyri. Svo og svo mikill hluti þess gengi til efniskaupa erlendis. Mér finnst í raun og veru ekki ástæða fyrir hæstv. Alþ. að draga úr þeim parti lánsins, sem kemur fram sem léttir á gjaldeyrisástandinu. Ég get a. m. k. ekki séð það, svo framarlega að það liggi fyrir, að lánið geti fengizt án þess.
Ég hefi líka heyrt sem aðalástæðu fyrir því, að þessa ábyrgð eigi ekki að miða við 100% lánsins, að það sé grundvallarregla, að ríkið gangi ekki í ábyrgð fyrir láni, sem nemur allri þeirri fjárupphæð, sem áætlað kostnaðarverk fyrirtækja er. En mér finnst, að sú grundvallarregla sé ekki allskostar rétt, heldur eigi um þetta að gera nokkurn greinarmun á fyrirtækjum, eftir því, hvort þau hafa í för með sér mikla fjárhagslega áhættu eða ekki.
Nú skal ég ekki reyna að sannfæra hv. þm. um. að hér sé ekki um áhættufyrirtæki að ræða, því að þeir vita allir, að svo er ekki. Eini gallinn á fyrirtækinu er það, að heita vatnið er kannske ekki nóg fyrir bæinn, sem enn er fundið á Reykjum í Mosfellssveit. Eftir því sem sérfræðingar utan lands og innan telja, þá er þetta eini gallinn á fyrirtækinu. En útreikningar virðast sýna það, að hér sé mjög lítil eða algerlega hverfandi áhætta. Og þó að ríkið vildi láta vera eitthvert áhættuprósentur að jafnaði í sambandi við ríkisábyrgðir, þá sé ég ekki ástæðu til þess, að það ætti að halda svo fast í þá reglu sem grundvallarreglu, að þá reglu eigi að láta gilda um lán til fyrirtækis, sem hefir enga áhættu í för með sér, eins og þetta fyrirtæki.
Ég óska, að þessi brtt. verði ekki samþ., heldur verði frv. samþ. óbreytt eins og það kom frá hv. Nd.