12.05.1938
Efri deild: 77. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1428 í B-deild Alþingistíðinda. (2106)

137. mál, hitaveita í Reykjavík

*Jónas Jónsson:

Þetta mál verður nú víst, sem betur fer, afgr. með skemmri ræðutíma hér í hv. d. heldur en var í Nd. í nótt. En það hefir nú verið svona eðlileg afleiðing af eldri hlutum, að menn bjuggust nú við. að það væri bót að því að gera svona hreint eins og þar var gert í þessu máli eða nota það til innra uppgjörs. Maður vili vona, að það hafi ekki óþægileg eftirköst. heldur hafi aðeins verið innri hreinlætisráðstöfun, sem mátti búast við eftir gömlum og nýjum andstöðum. En það væri ákaflega æskilegt vegna þessa máls út á við, að það hætti sá gamli leikur, að mál, sem mjög snerta viðskipti okkar við útlönd, séu notuð til innra uppgjörs. Ég hefi fulla ástæðu til að segja þetta, af því að enginn hefir orðið fyrir meira aðkasti í sambandi við þetta mál, og enginn hefir heldur reynt meira til þess fyrr og síðar að halda málum, sem snú. mjög að útlöndum, utan við deilur hér hjá okkur en ég.

En um það, hvort veita skuli ríkisábyrgð fyrir 9li eða 100% af þessu láni, finnst mér, að hvort af þessu, sem gert verður, þá sé það fremur leiðinleg afgreiðsla á málinu. Það var vitað, að bærinn gerði fyrst ráð fyrir, að hann þyrfti ekki beinlínis á ríkisábyrgð að halda vegna þessarar lántöku. En það hefði þó orðið nokkuð nærri því, því að það hefði þó alltaf orðið að koma til greina fyrir Reykjavíkurbæ yfirfærslutrygging hjá Landsbankanum vegna þessarar lántöku á sínum tíma. En nú er horfið að þessu ráði. Það er ekki oft, sem því er vel tekið í blöðum Sjálfstfl., sem ég sting upp á. Ég held, að í 20 ár hafi kannske aldrei nema í þetta ein, skipti komið fram einskonar samstarfsgrundvöllur, sem mér virtist vera sjáanlegur um það, að það yrði reynt í þessu hitaveitumáli að hjálpast að í að taka eitthvað verulegt af peningum til þessarar framkvæmdar innanlands og treysta á fórnfýsi borgaranna í þessu máli, en leita aðallega til útlanda um það fé, sem gengur til kaupa á útlendu efni, sem þarf til fyrirtækisins. Og þó að þessi leið verði ekki farin nú, því stendur hún einhverntíma í fullu gildi. Það verður einhverntíman að hætta því að taka lán erlendis líka til þess að borga verkakaup, auk þess sem nauðsynlegt er og verður sennilega oft að fá þau til kaupa á erlendu efni.

Nú hefir verið hallazt að því af forráðamönnum bæjarins að óska eftir 100% ábyrgð fyrir þessu láni. En Framsfl. í Nd. hefir aftur á móti haldið fast við sína gömlu kröfu um, að aðeins 80% ábyrgð verði veitt, kröfu, sem hefir verið beitt gagnvart hinum fátækari bæjum, svo sem Akureyri og Ísafirði, og hv. þm. búast við, að þau bæjarfélög geti staðið undir. Þá kemur að því, að Alþfl. slær undan. Alþfl. hefir ekki þá ábyrgðartilfinningu að geta staðið með stjórninni í þessu máli, þó að hann að vísu beri ábyrgð á ríkisstj. enn. Og það er alveg eins og komið hefir fram í hverju málinu eftir annað hér á þingi í vetur að þar, sem Framsfl. hefir reynt að bjarga málum viðkomandi atvinnu manna og öðru. til þess að rétta eitthvað við úr niðurlægingarástandi, þá má heita, að Alþfl. hafi alltaf brugðizt. Það eru nú tvö ný dæmi um þetta al eg sérstaks eðlis. Alþfl. hefir tekizt á síðustu stundu að eyðileggja iðnlöggjöfina nokkurn veginn. Það eina, sem getur huggað mann því viðkomandi. er, að það má skoða það mál sem einskonar tilraun um það, hvort menn séu farnir að skilja þá hættu, sem stafar af kommúnistískum áhrifum í A1þfl. Niðurstaðan varð sú, að Alþfl. fór nákvæmlega í för konunúnista með því að taka upp allar þeirra kröfur. Alþfl. er ekkert hissa á því, að með iðnlöggjöfinni sé lokað fyrir það, að nokkur maður geti lært rafmagnsiðnað, þegar svo nauðsynlegt er að leiða rafmagn frá Soginu eins og nú er. Einmitt þessi aðstaða, að iðnaðarmenn eru búnir að móðga þjóðfélagið og svíkja það traust, sem þeim var fengið. Þessir menn hafa fengið nokkurnveginn það, sem þeir hafa viljað. En það, sem samt hefir hafzt upp úr þessari tilraun, er, að það er búið að prófa þingið. Það er vitanlegt, að svo að segja hver einasti maður í tveim aðalflokkum þingsins er með þessum lögum. Hinsvegar á Alþfl. eftir að gera það upp við sig fyrir næsta þing, hvort bann ætlar yfirleitt að leika það hlutverk, að láta í hverju atriði undan kommúnistum. Þá sé ég ekki hver hans sérstaða verður — Svo er annað mál, sem var afgr. í gær, þar sem verið er að gera leik að því að spilla atvinnu og níðast á þeim. sem sízt mega við því. Mér skilst, að hv. þm. Ísaf. hafi komið með till. í Nd. um það, að skylda þessu litlu mótorbáta, sem safnast víða af landinu norður fyrir land á síldveiðar og verða að vinna tveir saman, til að hafa 8 yfirmenn. Þessi ágæti forkólfur sjómannastéttarinnar, sem mér líkaði oft vel við fyrr á árum, vill nú ekkert annað en að þessir bátar verði að hafa 3 yfirmenn, og þetta er samþ. í gærkvöldi. Það eru slíkir erfiðleikar. sem alltaf eru, þegar meirihlutaflokkur er ekki í stjórn. Þetta hefir flokkur, sem hefir ábyrgðartilfinningu, eins og Framsfl., oft orðið að gera í samstarfi við Alþfl., að ganga inn á til bráðabirgða ósanngjarnar kröfur, sem kemur fljótlega til, að þurfi að laga, eins og iðnlöggjöfina og siglingarlöggjöfina. (BrB: Þetta er nú hitaveitan). Já, þetta er um hitaveituna, en ég þarf ekki að sækja ráð til þessa manns, sem greip fram í, hvernig ég haga orðum mínum hér. Ég er að víta ýmiskonar ábyrgðarleysi, sem mikið hefir borið á upp á siðkastið. Það birtist í áhugaleysi kaupmannastéttarinnar, sem heldur því fram, að eigi að flytja takmarkalaust inn í landið. þó að ekkert sé til að borga með. Eins hefir nokkur hluti af verkamannastéttinni undir áhrifum kommúnista og manna þeim skyldum sýnt sitt mikla ábyrgðarleysi í því að halda áfram að sökkva framleiðslunni. Og þrátt fyrir það þótt öllum mönnum sé það vitað, að það er ekkert vit í öðru en borga sjálfir kaup verkamanna. sem vinna í þessu fyrirtæki, þá vilja sumir ekki sætta sig við annað en að borga allt með útlendu fé. Það hefir nú ekki tekizt að ná samvinnu um þetta á heilbrigðum grundvelli, og ég álit það rangt hjá Sjálfstfl. og Alþfl. að sætta sig ekki við 80%. Ég verð að segja það, að ég gef ekkert fyrir þetta málamyndayfirklór Alþfl. í þessu efni. Og ég fyrir mitt leyti lýsi því yfir, að allt þetta athæfi er mér svo fjarri skapi, að ég vil ekki koma nærri að bera ábyrgð á því. Mun ég þess vegna ekki greiða atkv., af því að ég álit þetta vera til skammar og verð þess vegna að unna Alþfl. þess, að hann hefir eins og oftar nú á síðustu stundu flúið frá málum. Það er bezt. að hann fái ánægjuna af því líka að flýja í þessu máli með sínum höfuðandstæðingum, sjálfstæðismönnum. Þessi mál öll saman haf, verið rekin alveg sérstaklega af hv. 11. landsk. og hans mönnum. Þau verða sem eftirmæli eftir þetta þing og eftir þann hugsunarhátt, sem þessi flokkur hefir sérstaklega staðið að.