12.05.1938
Sameinað þing: 31. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1437 í B-deild Alþingistíðinda. (2134)

Afgreiðsla þingmála

Atvmrh. (Skúli Guðmundsson):

Út af fyrirspurnum og umr., sem orðið hafa um þessi mál, vil ég geta þess, að ég hefi rætt um þetta við síldarútvegsnefnd, eða einstaka menn í n. Ég hefi ekki heyrt því mótmælt af neinum, sem oft hefir verið haldið fram, og m. a. af flm. þessarar till., að sú síld, sem veiddist á Húnaflóa, væri venjulega fullt eins góð til þessarar verkunar eins og sú síld, sem annarsstaðar veiddist, eða jafnvel betri. Þetta mun hafa verið þannig framkvæmt undanfarin ár, að þau skip, sem hafa viljað notfæra sér það, að matjessalta eitthvað af afla sínum, sem þau hafa fiskað á Skagafirði eða Húnaflóa, hafa orðið að fara með þann hluta veiðinnar til Siglufjarðar eða á aðrar hafnir þar norðurfrá. Nú hafa þeir af nm. úr síldarútvegsnefnd, sem ég hefi talað við, m. a. bent á, að ef matjessíldarsöltunin væri dreifð á marga staði, þá myndi það valda auknum kostnaði við mat og eftirlit með verkuninni, auk þess sem þeir láta þess getið, að víða á þessum stöðum, t. d. við Húnaflóa og Skagafjörð, þar sem síldarsöltun er nú framkvæmd, hafi fólk, sem að því vinnur, ekki æfingu í að fara með síldina á þennan sérstaka hátt. Ég geri ráð fyrir, að eitthvað sé til í þessu, og mér er það ljóst, að það getur orðið kostnaðarsamt fyrir þessar hafnir að láta framkvæma mat og eftirlit með þessu, ef það er mjög víða. En hinsvegar tel ég það óeðlilegt, að engin söltun á matjessíld sé leyfð t. d. við Húnaflóa eða Skagafjörð, og út af fyrirspurn hv. þm. A.-Húnv. get ég sagt, að ég mun athuga þetta mál nánar og möguleikana til þess, að úr þessu verði bætt, ef það sýnir sig, sem ég vona, að það sé framkvæmanlegt.

Um hitt atriðið, sem hv. þm. Borgf. minntist á. get ég ekki sagt mikið að svo stöddu, því þar gegnir nokkuð öðru máli, þar sem sú síld, sem veidd er í Faxaflóa, er náttúrlega allt önnur vara heldur en um er að ræða í Húnaflóa og í Skagafirði. En um það, hvað talið er fært á hverjum tíma. fer eftir því, hvaða markaðshorfur eru og hvort hætta er á því, ef við flytjum út á einum tíma vöru, sem er lakari að gæðum heldur en það, sem kaupandinn vonast eftir, að það spilli fyrir síldarsölu erlendis. Ég álít, að fyrst og fremst verði að hafa í huga vörugæðin. því að með því móti er hægt að vænta þess, að við getum fengið aukna sölu í framtíðinni.

Ég sé svo ekki ástæðu til að segja fleira út af þessu.