12.05.1938
Sameinað þing: 31. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1440 í B-deild Alþingistíðinda. (2139)
Afgreiðsla þingmála
Jón Pálmason:
Ég vil byrja á því að þakka hæstv. atvmrh. fyrir hans góðu undirtektir, og vænti ég þess, að hann geri skyldu sína í þessum efnum á þá leið, að hann sjái um, að á næsta sumri verði matjessíldarsöltun leyfð við Húnaflóa og Skagafjörð. En viðvíkjandi því, sem hv. þm. Ísaf. var að tala um, að söltunarleyfi á Skagaströnd og við Húnaflóa hefði ekki verið notuð síðastl. ár, þá er það af þeim ástæðum, sem sumum hv. þm. er kannske ekki kunnugt um, að á síðastl. ári var allt kapp lagt á að koma síld í bræðslu vegna hins háa verðs. En bæði í hitteðfyrra og þar áður var matjessíldarsöltuu bönnuð á Skagaströnd, Sauðárkróki og á Hólmavík. Það er svo ósvífin atvinnukúgun, að það er neyðarkostur að líða slíkt.
Þó ég hafi ekki mikið vit á síldarmálum, þá get ég upplýst það. að kunnugir menn halda því fram, að hvergi á landinu sé jafngóð síld til söltunar eins og Húnaflóasíldin, og telja, að það muni ekki minna en einni krónu á máli á þeirri síld vegna fitu og þeirri síld, sem veidd er fyrir Austfjörðum.
Hvað því viðvíkur, að ekki sé neinn áhugi hjá saltendum fyrir því að fá lyfi til söltunar á þessum stöðum, þá er því til að svara, að það liggja fyrir á þskj. ákveðnar kröfur frá aðalsaltendunum á þessum stöðum, bæði við Húnaflóa og Skagafjörð, og er það skjalfest sönnun fyrir því, að hv. þm. Ísaf. fer hér með rangt mál.
Ég skal svo ekki hafa fleiri orð um þetta, en ég treysti loforði hæstv. atvmrh. í þessum efnum.