02.03.1938
Neðri deild: 12. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1443 í B-deild Alþingistíðinda. (2143)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

*Héðinn Valdimarsson:

Ég vildi beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forsrh., hvað það er, sem gerir aðkallandi vinnulöggjöf á þessu þingi sérstaklega frekar en á undanförnum þingum. — Þá vildi ég beina þeirri fyrirspurn til hæstv. atvmrh., hvað liði störfum þeirrar nefndar, sem skipuð var til þess að undirbúa frv. til varnar gegn atvinnuleysi ungra manna. Því var lofað á síðasta þingi, að frv. skyldi lagt fram um það mál fyrir þetta þing nú, og mér vitanlega hefir ekkert komið úr stjórnarherbúðunum í þá átt, eða frá því skýrt. Nú vita allir, að þetta er eitt af mestu vandamálum þjóðfélagsins, og væri sannarlega meiri þörf á því, að það mál væri lyst nú heldur en vinnulöggjöfin, sem hæstv. forsrh. hefir verið að tala um. Skiljanlegt væri, — að þingið tefðist af slíku stórmáli, sem skiptir að sjálfsögðu miklu fyrir mörg hundruð eða þúsundir manna í landinu, en ekki hitt, hvort vinnulöggjöfin komi einu ári fyrr eða síðar.