02.03.1938
Neðri deild: 12. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1444 í B-deild Alþingistíðinda. (2146)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
*Héðinn Valdimarsson:
Ég þakka hæstv. atvmrh. fyrir svör hans, þó að ég hefði kosið, að meiri áhugi hefði verið hjá honum fyrir þessum málum en sýndi sig á ræðu hans.
En viðvíkjandi því, sem hæstv. forsrh. sagði, þá verð ég að benda á, að það frv., sem fram hefir komið um þetta efni frá mþn., hefir ekki verið sent til verklýðsfélaganna fyrr en rétt fyrir miðjan febrúar, og mun ekki hafa komið til sumra fyrr en seint í mánuðinum. Það hefir verið ómögulegt fyrir félögin að gera sér grein fyrir málinu á þessum stutta tíma og halda fundi um það. Ég vil geta þess t. d. um Dagsbrún, sem allir vita, hvað er stór þáttur í Alþýðusambandinu, þar sem hún hefir á 18. hundrað félagsmenn, að það er ómögulegt að ná í nógu stórt hús til þess að halda í félagsfundi. En á annan hátt er mjög erfitt að kynna verkamönnunum málið. Á sínum tíma, þegar samvinnulöggjöfin var samþ., þá var hún fyrst rædd á hverju þinginn eftir annað, og síðan var samvinnufélögunum gefinn langur tími til þess að rannsaka málið og koma með till. Síðan voru l. samþ. á þann hátt, sem samvinnufélögin lögðu til.
Ég vil fastlega mælast til þess við hæstv. ríkisstj., að hún ráðist ekki í að knýja áfram á þessu þingi löggjöf, sem verklýðsféögin eru ekki búin að kynna sér og gera sínar brtt. við eða þau kynnu að vera andstæð.